Töluðu sig saman um að taka yfir Dropbox Jóhannesar

„Það þarf að loka net­fang­inu hans og end­urstilla lyk­il­orðið á drop­box reikn­ingnum til að læsa hann úti af því,“ sagði Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri Samherja á Kýpur, í skila­boðum til Örnu McClure, inn­an­hús­lög­fræð­ings útgerð­ar­innar, og Aðal­steins Helga­sonar lyk­il­starfs­manns. Jón Óttar Ólafsson rekur nákvæm­lega hvernig hann braust inn á Dropbox upp­ljóstr­ar­ans í Namib­íu­mál­inu í yfir­lýs­ingu sinni til dóm­stóla.

Töluðu sig saman um að taka yfir Dropbox Jóhannesar

Jón Óttar Ólafsson, rann­sak­andi Samherja, sótti gögn inn á Dropbox-geymslu­ský Jóhann­esar Stef­áns­sonar í kjöl­far þess að hann steig fram og ljóstr­aði upp um Namib­íu­málið svo­kall­aða. Þetta er stað­fest í yfir­lýs­ingu hans sjálfs til namibískra dóm­stóla. 

„Ég opn­aði að nýju í fyrsta sinn drop-box sem ég hafði lokað í júlí 2016. Það hafði aldrei verið greint af neinum allan þennan tíma,“ segir Jón Óttar í yfir­lýs­ingu sinni. 

Þessi yfir­lýs­ing Jóns Óttars, sem og ann­arra lyk­il­starfs­manna útgerð­ar­innar, var send namibískum dóm­stólum 31. apríl síð­ast­lið­inn. Í yfir­lýs­ing­unum er allri ábyrgð á mútu­greiðslum og öðru ólög­legu vísað á Jóhannes sjálfan en þó á sama tíma dregið í efa að nokkuð sak­næmt hafi átt sér stað.

Yfir­lýs­ingar Jóns Óttars og Örnu Bryn­dísar Baldvins McClure, inn­an­hús­lög­fræð­ings Samherja, lýsa nokkuð ítar­lega hvernig þau komust yfir Dropbox-reikn­ing Jóhann­esar og hvenær þau sóttu þangað gögn. Samkvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar var um að ræða per­sónu­legan aðgang hans, ekki geymslu­svæði á vegum fyr­ir­tæk­is­ins. 

Það skal tekið fram að í gögnum máls­ins er búið að þýða íslenskan póst­inn yfir á ensku og er þetta þýð­ing af þeim texta á íslensku.

Ingvar full­yrti að inni á þessum drop­box-reikn­ingi væri að finna skjöl sem tengd­ust starf­sem­inni í Namibíu. Engu að síður var um að ræða per­sónu­legt geymslu­ský Jóhann­esar. 

Skoðaði gögnin eftir uppljóstrun

Arna lýsir því svo í yfir­lýs­ingu sinni að Sam­herj­a­fólk hafi munað eftir þessum reikn­ingi eftir upp­ljóstrun Namib­íu­máls­ins. 

„Í jan­úar 2020 mundum við eftir Dropbox reikn­ingi sem hafði verið lok­aður síðan 21. júlí 2016 og end­ur­ræstum það. Fram að því hafði Drop­boxið verið lokað og gleymt. Enginn hafði aðgang að því síðan því var lokað í júlí 2016,“ segir Arna í sinni yfir­lýs­ingu. 

„Eftir ásak­anir herra Stef­áns­sonar og fjöl­miðlateym­is­ins í slag­togi með honum birt­ust fór ég í gegnum tölvu­pósta herra Stef­áns­sonar sem og drop­boxið hans frá 2016 sem hafði verið opnað að nýju,“ lýsir hún. 

Telja sig sjá kókaínpoka

Bæði Arna og Jón Óttar full­yrða að myndir í þessu geymslu­skýi sanni að Jóhannes hafi neytt vímu­efna og átt sam­skipti við vænd­is­konur. Ekki er þó að sjá í yfir­lýs­ingum þeirra hvernig þau kom­ast að þess­ari nið­ur­stöðu. 

Á tveimur mynd­böndum segj­ast þau ein­fald­lega hafa borið kennsl á hvítt efni á hót­el­her­bergi Jóhann­esar sem lík­ist poka af kóka­íni. Í yfir­lýs­ingum sínum telja þau þessar myndir sína fram á að Jóhannes hafi verið óreglu­maður og að yfir­lýs­ingar Samherja þess efnis hafi átt rétt á sér. 

Að öðru leyti virð­ist ekki vísað í þau gögn sem hafi fund­ist á Dropbox reikn­ingnum.

Ásakanir um eit­ur­lyfja­neyslu virð­ast þó ekki tengj­ast efn­is­at­riðum Namib­íu­máls­ins, sem snýst um að Samherji hafi greitt áhrifa­mönnum þar í landi fyrir aðgang að verð­mætum hesta­makríl­skvóta.

Sex ein­stak­lingar sæta nú ákæru vegna þessa í Namibíu og eru þau mála­ferli til­efni yfir­lýs­inga Sam­herj­a­fólks­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár