Samherjamenn lýsa sér sem verkfærum í höndum uppljóstrarans

„Það hefði ein­fald­lega ekki verið nægur tími, tæki­færi né orka fyrir mig að vera á kafi í fjar­lægri, lít­illi og frekar ómerki­legri starf­semi hinu megin á hnett­inum,“ segir Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, í yfir­lýs­ingu til namibískra dóm­stóla. Hann og aðrir lyk­il­starfs­menn útgerð­ar­innar vísa allri ábyrgð á Jóhannes Stef­áns­son upp­ljóstr­ara - líka á greiðslum sem gerðar voru eftir að hann hætti störfum.

Samherjamenn lýsa sér sem verkfærum í höndum uppljóstrarans
Ótengdur Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, seg­ist ótengdur namibískum armi útgerð­ar­innar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þor­steinn Már Bald­vins­son og aðrir lyk­il­starfs­menn Samherja segja að Jóhannes Stef­áns­son einn beri alla ábyrgð á nokkru því sem gæti reynst ólög­legt í starf­semi útgerð­ar­innar í Namibíu.

Í yfir­lýs­ingu sem hann og aðrir starfs­menn hafa lagt fyrir dóm í Namibíu koma fram ítrek­aðar ásak­anir um að Jóhannes, sem er upp­ljóstr­ar­inn í Namib­íu­mál­inu svo­kall­aða, hafi verið háður fíkni­efnum og hafi einn og óstuddur leitt rekst­ur­inn þar syðra. Meðal ann­ars vegna anna ann­arra við að verj­ast Seðla­banka Íslands. 

Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri Samherja á Kýpur og sá sem milli­færði hund­ruð millj­óna á leyni­reikn­ing hákarl­anna í Dúbaí seg­ist aðeins hafa gert það sem Jóhannes sagði honum. Greiðsl­urnar héldu áfram löngu eftir að Jóhannes lét af störfum hjá félag­inu og fóru af reikn­ingum félaga sem hann hafði enga stjórn yfir. 

Bera við algjöru myrkri

Í yfir­lýs­ingum Þor­steins, Örnu McClure, inn­an­hús­lög­fræð­ings Samherja, Jóns Óttars Ólafs­sonar, rann­sak­anda á snærum útgerð­ar­innar, og fleiri er flestum orðum varið í að verj­ast ásök­unum um að stjórn­endur útgerð­ar­innar á Íslandi hafi haft nokkra vit­neskju um hvað átti að fá í skiptum fyrir þá samn­inga og pen­inga sem namibískum áhrifa­mönnum fengu greidda. 

Á fundiBernhard Esau, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu, og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, fund­uðu á heim­ili tengda­sonar ráð­herr­ans.

Greiðslur til þeirra virð­ast ekki dregnar í efa. Enda liggja fyrir marg­vís­leg banka­gögn sem sýna greiðslur til handa þeim aðilum sem kall­aðir hafa verið „hákarlar“. Þor­steinn Már vísar hins vegar ábyrgð á þeim á fjár­mála­stjóra útgerð­ar­innar á Kýpur, Ingvars Júl­í­us­sonar. Sá seg­ist aðeins hafa verið að fram­fylgja skip­unum Jóhann­esar, sem hafi verið alráður í starf­semi Namib­íu­fé­lag­anna. 

Meira að segja þegar kom að greiðslum út úr félag­inu Sögu Seafood í Namibíu, sem aldrei laut stjórn Jóhann­esar. Þetta voru greiðslur sem voru inntar af hendi á árunum eftir að Jóhannes lét af störfum hjá Samherja. 

Þessir hákarlar sæta nú allir gæslu­varð­haldi vegna ákæru á hendur þeim fyrir að hafa útvegað Samherja kvóta í hesta­makríl með spilltum hætti. Það eru þeir Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­ú­vegs­ráð­herra, Sacky Shang­hala, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, Tamson Hatuikulipi, tengda­sonur sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans, og James Hatuikulipi, frændi Tamson og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður rík­is­út­gerð­ar­innar Fishcor.

Þorsteinn segist ótengdur Namibíufélögum

Þor­steinn Már heldur því fram að hann hafi í raun enga aðkomu haft að þessum namibísku félögum; hann sé ekki og hafi aldrei verið beinn eig­andi félag­anna þar. Áður hefur þó verið fjallað um eign­ar­hald Samherja, þar sem Þor­steinn var allt þar til nýlega einn aðal­eig­anda, á namibískum útgerð­ar­fé­lögum í gegnum flókið fyr­ir­tækja­net í Kýpur og Máritíus. 

„Það hefði ein­fald­lega ekki verið nægur tími, tæki­færi né orka fyrir mig að vera á kafi í fjar­lægri, lít­illi og frekar ómerki­legri starf­semi hinu megin á hnett­inum.“
Þor­steinn Már Bald­vins­son
for­stjóri Samherja

Málsvörn Sam­herj­a­fólks virð­ist einnig ganga að ein­hverju leyti út á sam­særi Helga Seljan gegn fyr­ir­tæk­inu. Þannig verja lyk­il­stjórn­endur stórum hluta yfir­lýs­inga sinna í að ræða Seðla­banka­málið. Að hluta virð­ist vörn Þor­steins Más svo snú­ast um hversu mik­ill tími og orka hafi farið í að verj­ast bank­anum; það sé meðal ann­ars þess vegna sem Jóhannes hafi haft jafn mikið frjáls­ræði í Namibíu og full­yrt er að hann hafi gert. 

„Það hefði ein­fald­lega ekki verið nægur tími, tæki­færi né orka fyrir mig að vera á kafi í fjar­lægri, lít­illi og frekar ómerki­legri starf­semi hinu megin á hnett­inum,“ segir hann. 

Í yfir­lýs­ingu Jóns Óttar Ólafs­sonar, sem starfað hefur um ára­bil fyrir Samherja, kemur fram að Helgi Seljan hafi átt upp­tökin að Seðla­banka­mál­inu og að nú vinni hann í sam­starfi við Jóhannes við að koma höggi á fyr­ir­tækið. Lýsir hann furðu sinni á því að Helga hafi verið leyft að fjalla á ný um Samherja sökum þessa. 

Hittu öll hákarla

Jafnvel þó að Jóhannes sé sagður einn bera ábyrgð á við­skiptum við hákarl­ana og öllum samn­ingum við þá, kann­ast flestir lyk­il­starfs­menn Samherja sem sent hafa vitn­is­burð til dóms­ins að hafa hitt þá. 

Arna seg­ist hafa verið göbbuð af Jóhann­esi til að koma með þeim út að borða í Reykja­vík árið 2013. Hún hafi síðan setið með þeim borðs á árs­há­tíð Samherja árið 2016 en fund­ist nær­vera Sacky Shang­hala dóms­mála­ráð­herra óþægi­leg. Jón Óttar seg­ist hafa kynnst þeim þegar hann fór til Namibíu að rann­saka Jóhannes og hvernig hann stýrði félög­unum þar. Ingvar seg­ist hafa kynnst þeim strax 2011 og 2012 í Namibíu en hann hafi átt lítil sam­skipti við þá. 

Teng­ing­arnar við þá virt­ust hins vegar lifa af skyndi­legt brott­hvarf Jóhann­esar frá Samherja árið 2016. Bæði héldu greiðslur áfram að ber­ast, jafn­vel frá félögum sem Jóhannes hafði aldrei stýrt, svo sem Sögu Seafood Namibia. 

James bað Jón Óttar að eiga við gögn

Samkvæmt vitn­is­burði Jóns Óttars hringdi hann að beiðni Aðal­steins Helga­sonar, starfs­manns Samherja, í stjórn­ar­for­mann namibísku rík­is­út­gerð­ar­innar, James Hatuikulipi, í maí árið 2019. Þremur árum eftir að Jóhannes lét af störfum hjá útgerð­inni og hálfu ári áður en Kveikur og Stundin ljóstr­uðu upp um Sam­herj­a­skjölin í sam­starfi við Wikileaks. 

„Okei, þetta er skýrt. [...] Er ein­hver hætta á því að upp­hæð sem var greidd „úti“ verði upp­götvuð? Við viljum ekki búa til papp­írs­slóð þar sem talað er um afhend­ingu fisks og síðan finna þau pen­inga­slóð­ina.“
Jón Óttar Ólafsson
í tölvu­pósti til James Hatuikulipi

„Ég hringdi í herra Hatuikulipi sem bað mig að búa til ein­hver skjöl til að „loka ein­hverjum gati“,“ segir hann í yfir­lýs­ing­unni. Þetta væri eitt­hvað sem hefði að gera með Namgomar-díl­inn svo­kall­aða og greiðslur til dúbaíska aflands­fé­lags­ins Tunda­vala. 

Í vitn­is­burði sínum segir Jón Óttar aldrei hafa skilið hvað Hatuikulipi var að tala um. Það hafi Aðal­steinn ekki heldur gert. Í tölvu­pósti Jóns sem hann sendi Hatuikulipi segir hann hins­vegar: „Okei, þetta er skýrt...“ áður en hann bætir við: „Er ein­hver hætta á því að upp­hæð sem var greidd „úti“ verði upp­götvuð? Við viljum ekki búa til papp­írs­slóð þar sem talað er um afhend­ingu fisks og síðan finna þau pen­inga­slóð­ina.“

Kveikur hefur áður fjallað um þessi sam­skipti en Jón Óttar heldur því fram að hluti  tölvu­póst­sam­skipt­anna hafi verið snúið á hvolf af namibískum sak­sókn­ara. Það hafi borist  svar frá Hatuikulipi um að hafa ekki áhyggjur, stjórn­völd hafi ekki burði til að fara á eftir flóknum aflands­við­skiptum. 

Á höfn­inniÞor­steinn Már ásamt þeim Sacky Shang­hala, James Hatuikulipi, Tamson Hatuikulipi og ráð­gjafa sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Angóla auk sonar angólska ráð­herr­ans.

Samningurinn hafi verið Jóhannesar

Þor­steinn, Ingvar og Jón Óttar bera því við að Jóhannes hafi einn gert þennan Namgomar-díl. Samn­ingur sem lagður var upp í stjórn­ar­her­bergi Samherja í Höfða­torgs­turn­inum, að sögn Hatuikulipi.

Hug­myndin að milli­ríkja­samn­ingi Namibíu og Angóla, sem gera átti í því skyni að útvega kvóta fyrir Samherja til að veiða, var kynntur á fundi sem Jóhannes hefur full­yrt að Þor­steinn hafi setið. Þor­steinn seg­ist í sinni yfir­lýs­ingu ekki muna eftir slíkum fundi.

Í kjöl­far upp­ljóstrana Sam­herj­a­skjal­anna greindi Stundin hins vegar frá því að Kristján Þór hefði hitt hákarl­ana umrædda helgi á skrif­stofum Samherja. Þar sagð­ist hann hafa verið í per­sónu­legum erinda­gjörðum en vina­sam­band hans við Þorstein Má er vel þekkt. Myndir frá ferð hákarl­anna til Íslands sýna þá í slag­togi með Þor­steini við Hafn­ar­fjarð­ar­höfn. 

Ingvar lýsir því að sam­komu­lagið um kvót­ann frá Namgomar hafi haft ásýnd þess að vera lög­legur. Þess vegna hafi hann skrifað undir samn­ing­inn fyrir hönd Esju Holding í Namibíu, félags sem hann stýrði en ekki Jóhannes. 

Eins og áður hefur verið greint frá greiddu Sam­herj­a­fé­lög á Kýpur, sem lutu stjórn Ingvars, millj­ónir doll­ara til félags­ins Tunda­vala Invest­ments Ltd. sem skráð var í Dúbaí. Félagið var í eigu James Hatuikulipi, stjórn­ar­for­manns rík­is­út­gerð­ar­innar Fishcor. Sú útgerð átti hins vegar enga aðkomu að þessu sam­komu­lagi. Þetta þótti Ingvari ekki vekja upp neinar spurn­ingar, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu hans. 

Hann seg­ist aldrei hafa gert athuga­semdir við að 75 pró­sent af greiðslum fyrir þennan kvóta yrðu greiddar fyrir utan Namibíu. Það væri heldur varla vanda­mál Samherja eða sýn ef namibískir sam­starfs­að­ilar í Namgomar ætl­uðu sér að svíkja undan skatti. 

Staðfestir hótelfund með tengdasyninum

Fleira sem vakið hefur athygli í frétta­flutn­ingi af starf­semi Samherja vakti ekki mikla eft­ir­tekt Ingvars. Hann stað­festir til að mynda lýs­ingu Jóhann­esar af fundi þeirra með Tamson á Hilton hót­el­inu í Windhoek, þar sem tengda­sonur sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans sýndi þeim brúð­kaups­mynd­irnar sínar til að stað­festa fjöl­skyldu­tengslin. Það kveikti ekki á við­vör­un­ar­bjöllum. 

„Mér skilst að við­skipta­sam­fé­lagið í Namibíu hafi verið - og sé enn - lítið svo, líkt og víða ann­ars staðar, er oft mik­il­vægt til að ná árangri að vera vel tengdur per­sónu­lega,“ útskýrir Ingvar í yfir­lýs­ing­unni. „Þess vegna fannst mér teng­ing Tamson Hatuikulipi við ráð­herr­ann ekki vera vanda­mál.“

Ingvar lýsir sam­skiptum sínum við frænd­urnar Tamson og James Hatuikulipi og ráð­herr­ann fyrr­ver­andi Sacky Shang­hala sem hverjum öðrum sam­skiptum við ráð­gjafa. Þeir hafi fengið greitt í sam­ræmi við þá þjón­ustu sem þeir veittu. Aftur á móti lýsir hann því líka að eng­inn nema Jóhannes hafi gert við þá samn­inga og sam­skiptin við þá hafi verið alfarið á hans for­ræði, því sé ekki hægt að gera neinn annan en hann ábyrgan fyrir mögu­legum spilltum samn­ingum og mútu­greiðslum. 

Segir Namibíustarfsemi smámál

Bæði Þor­steinn og Ingvar gera lítið úr starf­sem­inni í Namibíu og segja hana hafa verið smá­mál í rekstri Samherja. „Ég full­yrði með virð­ingu að það mun ein­fald­lega aldrei hafa verið áhætt­unnar virði fyrir neitt fyr­ir­tæki að taka þátt í spilltum aðgerðum fyrir svo lít­inn ágóða,“ segir Ingvar á sama tíma og hann hafnar því að mútur hafi verið greiddar. Engu að síður segir hann ítrekað í yfir­lýs­ing­unni að Jóhannes hafi gerst sekur um lög­brot og eigi yfir höfði sér dóm mæti hann til Namibíu. 

Ingvar segir að ef Jóhannes komi til Namibíu til að bera vitni í mál­inu þá verði hann því rétti­lega dæmdur, einn, fyrir glæp­ina í Sam­herj­a­mál­inu og verði lengi í fang­elsi. Glæp­irnir? Þeir sömu og hann dregur stór­lega í efa að hafi verið framdir, í það minnsta ekki með vit­und og vilja ann­arra Samherja - jafn­vel ekki þeirra sem fram­kvæmdu greiðslur til hákarl­anna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár