Samþykktu ekki fjárframlög til fræðslu um klámáhorf

Tillaga Flokks fólks­ins um aukna fjár­muni til að efla fræðslu og for­varnir til grunn­skóla­barna um skað­semi klá­m­á­horfs var vísað frá af borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­anum.

Samþykktu ekki fjárframlög til fræðslu um klámáhorf
Skilur ekki rökin Kolbrún sagð­ist ekki skilja með hvaða rökum til­lög­unni hefði verið vísað frá.

Meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn vís­aði frá til­lögu Kol­brúnar Bald­urs­dóttur um að veitt yrði auknu fjár­magni til að efla fræðslu og for­varnir til grunn­skóla­barna um skað­semi klá­m­á­horfs. Rök­semdin fyrir því að til­lagan var felld var sú að nú þegar væri unnið að slíkum for­vörnum á ýmsum stöðum innan borg­ar­kerf­is­ins.

Á fundi borg­ar­stjórnar síð­ast­lið­inn þriðju­dag lagði Kolbrún til að borg­ar­stjórn veitti auknu fjár­magni til kenn­ara, starfs­fólks frí­stunda­heim­ila og ráð­gjaf­arteymis um kyn­ferð­is­of­beldi í skóla- og frí­stunda­starfi í þessu skyni. Þá þyrfti að styðja við bakið á sam­tökum sem veiti for­eldrum og for­sjárað­ilum stuðn­ing. „Skóla- og frí­stunda­svið, skóla­stjórn­endur, starfs­fólk frí­stunda­heim­ila og hags­muna­sam­tök barna og for­eldra þurfa nú að taka höndum saman með það að mark­miði að stuðla að vit­und­ar­vakn­ingu og styrkja for­eldra til að setja börnum sínum við­eig­andi reglur og fylgj­ast grannt með net- og tölvu­notkun barna sinna.“

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni var vísað til nið­ur­staðna könn­unar um klám og klá­m­á­horf grunn­skóla­barna sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár