Þrautin frá í gær. Varstú búin/n að prófa hana?
***
Fyrri aukaspurning:
Hverjir prýða myndina hér að ofan?
***
Aðalspurningar:
1. Reginald Kenneth Dwight, hvað kallar hann sig aftur?
2. Ár hvaða dýrs er nú í gangi samkvæmt kínverskri stjörnuspeki?
3. Hvað hét grínflokkurinn sem bauð fram í alþingiskosningunum 1971?
4. Jordan Peterson heitir umdeildur sálfræðingur sem hefur, að sögn, lagt sig fram um að telja kjark í karlmenn. Hverrar þjóðar er Peterson þessi?
5. Hvað heitir þéttbýlisstaðurinn við mynni Berufjarðar syðst á Austfjörðum?
6. Sagt er að einu sinni hafi drottning að nafni Guinevere setið á hásæti Englands. Hvað hét maðurinn hennar, kóngurinn?
7. Þrálátar sögusagnir herma að Guinevere hafi haldið framhjá kónginum með hraustasta manni hans. Hvað hét hann?
8. Fyrir hvað er bærinn Kiruna í Svíþjóð kunnastur gegnum tíðina?
9. Tæpur kílómetri er milli tveggja fótboltavalla á Englandi. Þar hafa tvö mjög fræg lið aðsetur hvort sínum megin við lystigarðinn Stanley Park. Hvað heita þau lið? Nefna þarf bæði.
10. Hver er meginmenntun Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur?
***
Seinni aukaspurning:
Hvað heitir sjónvarpsstjarnan sem sjá má á myndinni hér að neðan?
***
Svör við aðalspurningum:
1. Elton John.
2. Uxans.
3. Framboðsflokkurinn.
4. Kanadískur.
5. Djúpivogur.
6. Artúr.
7. Lanselot.
8. Járnvinnslu.
9. Liverpool og Everton.
10. Sagnfræði.
***
Svör við aukaspurningum:
Á efri myndinni eru bavíanar.
Á neðri myndinni er Edie Falco sem kunn varð fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Sopranos.
***
Athugasemdir