384. spurningaþraut: Hér reynir verulega á þekkingu fólks á utanríkisráðherrum!

384. spurningaþraut: Hér reynir verulega á þekkingu fólks á utanríkisráðherrum!

Gær frá þrautin í.

***

Fyrri auka­spurn­ing.

Á mynd­inni að ofan má sjá eina fræga film­stjörnu fyrri tíma. Hvað hét hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Fjár­hættu­spilið póker hefur stundum verið rakið langt aftur í tím­ann, en raunin mun þó vera sú að það hafi í raun­inni þró­ast í nútíma­mynd sinni í einu til­teknu ríki á 19. öld. Hvaða ríki er það?

2.  Hvað heitir utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna?

3.  En hvað heitir utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands?

4.  Kona ein sem heitir Maria Ubach i Font er ein af fáum konum sem gegna emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra í Evr­ópu­ríki. Hún er 47 ára og var áður sendi­herra lands síns í fjöl­mörgum Evr­ópu­ríkjum, enda er utan­rík­is­þjón­usta lands­ins hennar alls ekki fjöl­menn. Árið 2017 var hún skipuð utan­rík­is­ráð­herra og nýr for­sæt­is­ráð­herra, Espot að nafni, fram­lengdi skipan hennar í emb­ætti 2019. Í hvaða landi er Maria Ubach i Font utan­rík­is­ráð­herra?

5.  Olta Xhaçka er önnur kona sem er utan­rík­is­ráð­herra í Evr­ópu­ríki. Hún hefur gegnt emb­ætt­inu frá 2020 en var áður varn­ar­mála­ráð­herra. Þyki mönnum nafn hennar fram­and­legt er þess að geta að bók­staf­ur­inn X er óvenju algengur í manna­nöfnum í landi hennar, sam­an­ber leið­tog­ann Hoxha sem lengi var þar við völd. Í hvaða ríki er Olta Xhaçka utan­rík­is­ráð­herra?

6.  Og þá er nátt­úr­lega grá­upp­lagt að spyrja: Hvað heitir höf­uð­borgin í því landi?

7.  Og svo er löngu tíma­bært að spyrja: Hve margir for­setar Banda­ríkj­anna hafa verið myrtir í emb­ætti?

8.  Hvernig hljómar SOS á hinu ævaforna Morse-staf­rófi?

9.   Hverjir voru fórn­ar­lömbin í senni­lega mesta fjöldamorði Íslands­sög­unnar og átti sér stað árið 1615?

10.  Hvað hét sá valda­maður sem fór fyrir morð­ingj­unum?

***

Seinni auka­spurn­ing.

Þessi óvenju­lega orr­ustu­þota var fram­leidd í ákveðnu landi frá því rétt fyrir 1970 og til 1990. Hún var þá stolt her­gagna­iðn­að­ar­ins í við­kom­andi landi en hann er umfangs­mik­ill, þótt ekki jafn­ist hann á við sams­konar iðnað hinna allra stærstu í þeim bransa. Þotan var í notkun nokkuð fram á þessa öld. Í hvaða landi var hún fram­leidd?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Banda­ríkj­unum.

2.  Blinken.

3.  Lavrov.

4.  Andorra.

5.  Albanía.

6.  Tirana.

7.  Fjórir.

8.  Þrjár stuttar, þrjár langar, þrjár stuttar.

9.  Spán­verjar. Raunar voru hval­veiði­menn þessir Baskar en þar sem yfir­leitt er talað um „Spán­verja­vígin“ í heim­ildum, þá dugar að segja Spán­verjar.

10.  Ari í Ögri.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Film­stjarnan hét Bette Davis.

Þotan á neðri mynd­inni er Saab Viggen, fram­leidd í Svíþjóð.

***

Þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár