386. spurningaþraut: Vinsæll sjónvarpsmaður, smalahove, Robbie Rotten

386. spurningaþraut: Vinsæll sjónvarpsmaður, smalahove, Robbie Rotten

Síðasta þraut, hér er hún.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er mað­ur­inn á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Árið 1999 gerði DV óform­lega skoð­ana­könnun á því hverjir væru bestu sjón­varps­menn lands­ins. Í sætum 2-10 urðu Logi Bergmann frétta­maður, Elín Hirst frétta­maður, Jón Ársæll Þórð­ar­son dag­skrár­gerð­ar­maður, Sig­mundur Ernir Rún­ars­son frétta­maður, Bogi Ágústs­son frétta­maður, Ólöf Rún Skúla­dóttir frétta­maður, Þor­steinn J. Vil­hjálms­son dag­skrár­gerð­ar­maður og Ragn­heiður Elín Clausen þula. En hver skyldi hafa orðið í efsta sæti árið 1999? — ekki síst vegna vin­sælda sinna úti á lands­byggð­inni?

2.  Hver skrif­aði barna­bók­ina um Matt­hildi?

3.  En barna­bók­ina um Pál Vil­hjálms­son?

4.  Við hvers konar fyr­ir­tæki störf­uðu flestar per­sónur sjón­varps­þátt­anna Mad Men?

5.  Hvaða réttur er það sem í Noregi er kall­aður smala­hove?

6.  Hvaða ár hófst Surts­eyj­ar­gosið?

7.  Hvaða leik­ari var frægur fyrir að leika ill­fyglið Robbie Rotten í ótal mörgum sjón­varps­þáttum, sem reyndar voru teknir upp hér á landi?

8.  Hvaða komm­ún­ista­leið­togi í Sov­ét­ríkj­unum var hrak­inn úr landi 1929?

9.  12. jan­úar 1830. Hvað lét Björn Blöndal sýslu­maður í Húna­vatns­sýslu gera þá?

10.  Nærri hvaða fjalla­vegi eru Hvera­vellir?

*** 

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir fisk­ur­inn hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ómar Ragn­ars­son.

2.  Roald Dahl.

3.  Guðrún Helga­dóttir.

4.  Aug­lýs­inga­fyr­ir­tæki.

5.  Svið.

6.  1963.

7.  Stefán Karl Stef­áns­son. Á íslensku heitir per­sónan Glanni Glæpur.

8.  Trotskí.

9.  Fram­kvæma síð­ustu aftöku á Íslandi.

10.  Kili, Kjalvegi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er James Dean.

Á neðri mynd­inni er mar­hnútur.

***

Síðasta þraut, hér er hún enn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár