Stjórnarflokkarnir með yfir helmings fylgi

Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokkur mæl­ast með 51,3 pró­senta fylgi í nýrri könnun. Eilítið fleiri segj­ast styðja rík­is­stjórn­ina. Flokkur fólks­ins næði ekki inn á þing miðað við nið­ur­stöð­urnar.

Stjórnarflokkarnir með yfir helmings fylgi
Stjórnin héldi velli Rík­is­stjórnin myndi halda velli ef kosn­inga­úr­slit yrðu eins og nið­ur­stöður nýrrar MMR könn­unar. Mynd: Skjáskot af RÚV

Óveru­legar breyt­ingar eru á fylgi stjórn­mála­flokka milli kann­anna MMR og flestar eru breyt­ing­arnar innan vik­marka. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með mest fylgi flokka á land­inu en dalar þó lít­il­lega milli kann­ana. Vinstri græn standa því sem næst í stað en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir lít­il­lega við sig.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 25,6 pró­senta fylgi, 3,1 pró­sentu­stigi lægra en í síð­ustu könnun MMR sem birt var 28. apríl síð­ast­lið­inn. Breyt­ingin á fylgi flokks­ins dansar á lín­unni með að vera mark­tæk en efri vik­mörk könn­un­ar­innar með 95 pró­senta örygg­is­bili eru 28,6 pró­sent.

Stjórn­ar­flokk­arnir þrír njóta mests fylgis kjós­enda því Vinstri græn mæl­ast með 13,1 pró­senta fylgi, 0,2 pró­sentu­stigum hærra en síð­ast, og Fram­sókn­ar­flokk­inn styðja 12,6 pró­sent aðspurðra en síð­ast mæld­ist flokk­ur­inn með stuðn­ing 10,5 pró­sent stuðn­ing. Samtals styðja því yfir helm­ingur aðspurðra, 51,3 pró­sent, rík­is­stjórn­ar­flokk­ana þrjá. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist eilítið meiri, 55,1 pró­sent og dalar um 1,1 pró­sentu­stig frá fyrri könnun.

Píratar mæl­ast með mest fylgi stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna, 11,3 pró­sent, og bæta við sig 1,7 pró­sentu­stigum frá síðu­atu mæl­ingu. Sam­fylk­ingin dalar örlítið, mælist nú með stuðn­ing 10,9 pró­senta aðspurðra sem er 0,4 pró­sentu­stigum lægra en síð­ast. Viðreisn bætir við sig fylgi usem nemur 1,8 pró­sentu­stigi og mælist nú með 10,6 pró­senta stuðn­ing.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn og Mið­flokk­ur­inn mæl­ast með nákvæm­lega sama fylgi, 5,7 pró­senta stuðn­ing, en þau tíð­indi urðu í síð­ustu könnun MMR að Sós­í­alistar mæld­ust þá með meiri stuðn­ing en Mið­flokkur, 6 pró­senta stuðn­ing borið saman við 5,8 pró­senta stuðn­ing við Mið­flokk­inn. Flokkur fólks­ins dalar, mælist með 3,3 pró­senta stuðn­ing en mæld­ist síð­ast með 4,8 pró­senta stuðn­ing. Er sú fyligs­breyt­ing mark­tæk. Yrðu þetta nið­ur­stöður kosn­inga myndi flokk­ur­inn falla út af þingi.

Stuðn­ingur við aðra mæld­ist 1,2 pró­sent sam­an­lagt. Óákveðnir voru 6,5 pró­sent, 6,3 pró­sent kváð­ust myndu skila auðu, 2,9 pró­sent hyggj­ast ekki mæta á kjör­stað og 2,4 pró­sent vildu ekki gefa upp afstöðu. Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 7.-12. maí og svör­uðu 953 henni.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár