Vill meira en tíst vegna Ísraels

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segi íslensk stjórn­völd verða að stíga fastar til jarðar og for­dæma hern­að­ar­að­gerðir Ísra­els­hers gegn Palest­ínu­mönnum.

Vill meira en tíst vegna Ísraels
Flytja særða á brott Plast­ínskir sjúkra­liðar flytja særða á brott eftir átök ísra­el­skra örygg­is­sveita við palest­ínska mót­mæl­endur. Mynd: Ahmad GHARABLI / AFP

Þögn íslenskra stjórn­valda vegna loft­árása Ísra­els­hers á Gaza-svæð­inu og átak­anna í Jer­úsalem er ekki við­und­andi að mati Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar. Einu við­brögðin sem borist hafa frá íslenskum stjórn­völdum eru tíst Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra þar sem hann lýsir miklum áhyggjum af ástand­inu.

Mikil ókyrrð hefur verið í Austur-Jer­úsalem síð­ustu daga, en föstu­mán­uð­ur­inn Ramadan er nú að renna sitt skeið. Af því til­efni komu tugir þús­unda Palest­ínu­manna saman síð­ast­lið­inn föstu­dag í Al-Aqsa mosk­unni. Eftir athöfn hófust mót­mæli til stuðn­ings Palist­ínu­mönnum á land­töku­svæðum. Í átökum milli ísra­el­skrar lög­reglu og Palest­ínu­manna særð­ust hátt í 200 Palest­ínu­menn. Átök héldu áfram og á fjórða hund­rað manns særð­ust í átökum við mosk­una í gær.

Palest­ínu­menn hafa skotið tugum flug­skeyta frá Gaza-strönd­inni yfir til Ísraels frá því í gær. Ísra­els­her hefur brugð­ist við með loft­árásum á Gaza sem hafa að sögn yfir­valda þar kostað tutt­ugu manns lífið, þar af níu börn. Þá eru tugir særðir eftir loft­árás­irnar. Ástandið á svæð­inu þykir afar alvar­legt og hafi ekki verið verra frá árinu 2017.

Minnir á sérstakt samband Íslands við Palestínu

Rósa Björk minnir í færslu á Facebook á að í júní á síð­asta ári hafi þing­menn stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu í utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis lýst áhyggjum sínum af fyr­ir­ætl­unum nýrrar rík­is­stjórnar Ísraels um inn­limun á svæðum Palest­ínu­manna og áhrifum þess á átök milli Palest­ínu­manna og Ísraela. Sú áætlun bryti í bága við alþjóða­lög. Ásamt Rósu Björk skrif­uðu þau Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Smári McCarthy, þing­maður Pírata undir áskorun þar sem unta­rík­is­ráð­herra og rík­is­stjórn Íslands voru hvött til að beita sér með ákveðnum og skýrum hætti „fyrir frið­sam­legri lausn á deilu Ísraela og Palest­ínu­manna og að koma því skýrt á fram­færi við ísra­elsk stjórn­völd að áform þeirra gagn­vart Palest­ínu séu óvið­un­andi.  Ísland hefur alltaf stutt tveggja ríkja lausn­ina og ber ávallt að tala fyrir því að alþjóða­lög séu virt og að diplómat­ískum og frið­sam­legum leiðum sé beitt í deilum Ísraela og Palest­ínu­manna. Það er sögu­leg nauð­syn nú sem aldrei fyrr.“

„Þögn íslenskra stjórn­valda er ekki við­un­andi“
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir

Í færslu Rósu Bjarkar nú bendir hún á að staðan hafi versnað mjög til hins verra frá því þing­menn­irnir fjórir sendu frá sér áskor­un­ina í fyrra. „Ég sakna þess mjög að sjá ekki afdrátt­ar­laus­ari og skýr­ari skila­boð um afstöðu rík­is­stjórnar Íslands um að for­dæma hern­að­ar­að­gerðir Ísra­els­hers gagn­vart sak­lausum borg­urum Palest­ínu,“ skrifar Rósa Björk.

Rósa Björk und­ir­strikar einnig hið sér­staka sam­band sem Ísland eigi við Palest­ínu, ver­andi fyrsta vest­ræna ríkið sem við­ur­kenndi sjálf­stæði og full­veldi Palest­ínu árið 2011. „Íslandi ber ávallt að tala fyrir því að alþjóða­lög séu virt og að diplómat­ískum og frið­sam­legum leiðum sé beitt í deilum Ísraela og Palest­ínu­manna. Atburðir síð­ustu daga hafa sýnt að nú er nauð­syn sem aldrei fyrr. Þögn íslenskra stjórn­valda er ekki við­un­andi og ein færsla á Twitter nægir ekki sem við­brögð við svo grafal­var­legri stöðu.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár