Óvíst hvar endurgreiddar milljónir Samherjafélags enda

Óvíst er hvaða ríki á að fá millj­ón­irnar 350 sem dótt­ur­fé­lag Samherja end­ur­greiddi í skatt­yf­ir­völdum í Færeyjum. Þetta kom fram í fær­eyska sjón­varp­inu í kvöld. Áður hefur verið greint frá því að skatt­skil fyr­ir­tæk­is­ins eru komin til lög­reglu þar í landi.

Óvíst hvar endurgreiddar milljónir Samherjafélags enda

Dótt­ur­fé­lag Samherja end­ur­greiddi skatt­yf­ir­völdum í Færeyjum 350 millj­ónir. Eyðun Mørkøre, yfir­maður TAKS, fær­eysku skatt­stof­unnar, segir óljóst hvað verði um fjár­mun­ina þar sem fær­eysk yfir­völd leið­rétti ekki skatta­á­lagn­ingu lengra en þrjú ár aftur í tím­ann. Málið sé óvenju­legt.

„Við höfum ekki haft sam­band við skatt­yf­ir­völd í öðrum löndum ennþá og við vitum ekki enn hvar þessir pen­ingar eiga að enda,“ sagði Eyðun í við­tali við Kringvarpið, fær­eyska rík­is­sjón­varpið, í kvöld.

Málið snýst um skatt­skil og end­ur­greiðslu á sköttum fær­eyska félags­ins Tind­hólms, sem meðal ann­ars notað var til að greiða íslenskum starfs­mönnum Samherja í Namibíu laun. Vegna reglna í Færeyjum gat útgerðin fengið skatta sjó­mann­anna end­ur­greidda, að því gefnu að þeir væru starfs­menn um borð í flutn­inga­skipum.

„Ef önnur lönd telja sig eiga þessa pen­inga, geta þau haft sam­band við okkur“

En það var ekki raunin.

Óljóst er hvernig málið verður hanterað af skatt­yf­ir­völdum í Færeyjum. Það kemur til greina að end­ur­greiða sjó­mönn­unum skatt­ana, sem þeir svo verða að gera upp við við­eig­andi stjórn­völd. Eyðun segir í sam­tali við Kringvarpið að engin nið­ur­staða sé komin í málið.

„Það kemur til greina að við höldum eftir þessum 17 millj­ónum,“ segir hann og vísar til 17 millj­óna danskra króna, jafn­virði 350 millj­óna íslenskra króna, sem voru end­ur­greiddar í kjöl­far upp­ljóstr­unar Kringvarps­ins.

Það sé á ábyrgð stjórn­valda á Íslandi og í Namibíu að sýna fram á rétt­mæti krafna yfir fjár­munum, vilji þau fá þá til sín.

„Ef önnur lönd telja sig eiga þessa pen­inga, geta þau haft sam­band við okkur, og sýnt fram á kröfu. Þá verðum við bara að sjá hvernig við bregð­umst við,“ sagði hann. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár