Vinstri græn yfir Samfylkingu í nýrri könnun

Vinstri græn bæta við sig fylgi í nýrri könnun og stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina eykst. Sam­fylk­ingin fellur í fylgi eftir kynn­ingu á fram­boðs­listum í Reykja­vík.

Vinstri græn yfir Samfylkingu í nýrri könnun
Katrín Jak­obs­dóttir Flokkur for­sæt­is­ráð­herra hefur aukið fylgi sitt á milli kann­ana. Mynd: Heiða Helgadóttir

VG eru aftur orð­inn næst­stærsti flokkur lands­ins og kom­inn yfir Sam­fylk­ing­una á ný, sam­kvæmt nýrri könnun MMR.

Í síð­ustu könnun MMR í jan­úar mæld­ist Sam­fylk­ingin með 15,6% en Vinstri grænir 10,9%, en nú er fylgi VG 13,5% og Sam­fylk­ing­ar­innar 13,1%. 

Á sama tíma hefur stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina auk­ist og mælist 54,5%. Það er tölu­vert meira en stuðn­ingur við síð­ustu fjórar rík­is­stjórnir á undan.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist enn stærstur, með stuðn­ing 22,2%, en var með 24,4% fylgi í síð­ustu könnun 11. jan­úar og 25,2% í kosn­ing­unum 2017. 

Alþing­is­kosn­ingar fara fram næsta haust, 25. sept­em­ber.

Könnunin var fram­kvæmd 12. til 18. febr­úar, en val upp­still­ing­ar­nefndar Sam­fylk­ing­ar­innar á fram­boðs­listum í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum var hins kynnt 13. febr­úar. 

Könnun Gallups, sem var gerð dag­ana 6. til 31. jan­úar, sýndi Sam­fylk­ing­una með 16,6% fylgi en Vinstri græn 12,8% fylgi. Aðrar fylgis­tölur voru hins vegar keim­líkar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár