Þrír Íslendingar ákærðir í Namibíu vegna Samherjamálsins

Stjórn­endur þriggja fyr­ir­tækja sem tengj­ast Samherja í Namibíu sæta ákæru vegna mútu­máls­ins, auk þeirra Namib­íu­manna sem að mál­inu komu.

Þrír Íslendingar ákærðir í Namibíu vegna Samherjamálsins
Aðal­steinn Helgason Ingvar Júl­í­us­son, Egill Helgi Árna­son og Aðal­steinn Helga­son sæta ákæru í Namibíu vegna aðildar að mál­inu.

Þrír Íslend­ingar, stjórn­endur fyr­ir­tækja sem tengj­ast Samherja í Namibíu, sæta ákæru fyrir aðild sína að mútu­máli. Þetta kom fram í máli sak­sókn­ara við fyr­ir­töku máls­ins fyrir dóm­stól í Windhoek í morgun.

Menn­irnir þrír eru sam­kvæmt ákæru­skjali Ingvar Júl­í­us­son, Egill Helgi Árna­son og Aðal­steinn Helga­son, að því Kjarninn greinir frá.

Greint var frá mútu­greiðslum Samherja í Namibíu í sjón­varps­þætt­inum Kveik, Stund­inni, hjá Al-Jazeera og á upp­ljóstr­un­ar­síð­unni Wikileaks í nóv­em­ber 2019. Sjö Namib­íu­menn eru ákærðir í mál­inu, þeir Bernhard Esau, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, Sacky Shang­hala, James Hatuikulipi, Mike Nghip­unya, Tamson Hatuiklu­lipi, Ricardo Gustavo and Pius Mwatelulo. Hage Geingob, for­seti Namibíu, hefur einnig verið bendl­aður við málið sem hefur skekið stjórn­málin þar í landi og SWAPO-flokk­inn sem hefur verið við völd um langt skeið.

Samherji birti í morgun til­kynn­ingu á heima­síðu sinni um málið og segir fyr­ir­tækið að ekk­ert óvænt sé í mála­ferlunum. „Á þriðja tug namibískra rík­is­borg­ara eru sak­born­ingar í mál­inu en við fyr­ir­töku í morgun var greint var frá því að sak­sókn­ari hefði í hyggju að bæta við ákæru á hendur á þremur namibískum félögum sem tengj­ast Samherja og stjórn­endum þeirra,“ segir á heima­síðu Samherja. „Samkvæmt namibískum lögum leiðir ákæra á hendur þessum fyr­ir­tækjum sjálf­krafa til þess að stjórn­endur þeirra sæta ákæru vegna stöðu sinnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár