Þau fá listamannalaun 2021

2.150 mán­uðum af lista­manna­launum var úthlutað til sam­tals 453 lista­manna í dag.

Þau fá listamannalaun 2021

Lista­manna­launum hefur nú verið úthlutað fyrir árið 2021. Alls sóttu 1.305 um lista­manna­laun, auk 135 sviðs­lista­hópa með um 940 lista­mönnum. Jákvætt svar barst 308 lista­mönnum og 26 sviðs­lista­hópum sem sam­an­standa af um 145 sviðs­lista­mönnum. Samtals fá því um 453 lista­menn laun frá rík­inu, í alls 2.150 mán­uði. Fjöldi úthlut­un­ar­mán­aða var auk­inn úr 1.600 vegna heims­far­ald­urs­ins. 

Samtals er úthlutað úr sex sjóðum, launa­sjóði hönn­uða, tón­skálda, tón­list­ar­flytj­enda, sviðs­lista­fólks, mynd­list­ar­manna og loks rit­höf­unda. 

Launa­sjóður rit­höf­unda er fyr­ir­ferð­ar­mestur þess­ara sjóða og úthlut­aði 646 mán­uðum, en alls sóttu 295 rit­höf­undar um laun í sam­tals 3.097 mán­uði. Starfs­laun fá 94 rit­höf­undar, þar af 45 konur og 49 karlar. 

Fjórtán fá laun í tólf mánuði

Alls fengu fjórtán úthlut­uðum tólf mán­aða rit­launum. Andri Snær Magnason, Auður Jóns­dóttir, Berg­sveinn Birg­is­son, Eiríkur Örn Norðdahl, Gerður Kristný, Guðrún Eva Mín­evru­dóttir og Hall­grímur Helgason fengu tólf mán­uðum úthlutað í fyrra og aftur í ár. 

Á meðal þeirra sem fá núna tólf mán­aða rit­laun en fengu áður níu mán­uði eru: Einar Már Guð­munds­son, Gyrðir Elíasson, Hildur Knúts­dóttir, Jón Kalmann Stef­áns­son og Þórdís Gísla­dóttir.

Sigrún Páls­dóttir og Elísabet Jök­uls­dóttir fá einnig tólf mán­aða rit­laun að þessu sinni en fengu sex mán­aða rit­laun á síð­asta ári. „Ég er barma­full af undrun, gleði og þakk­læti. Þakka traustið,“ segir Elísabet á Facebook. 

Þá fær Sölvi Björn Sig­urðs­son tíu mán­aða rit­laun, en aðrir fá níu, sex eða þriggja mán­uða laun.

Tilnefnd til verðlauna og fá tólf mánaða úthlutun

Bók Elísa­betar, Apr­ílsól­ar­kuldi, var til­nefnd til Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna árið 2020 í flokki skáld­verka. Jónas Reynir Gunn­ars­son fékk einnig til­nefn­ingu til verð­laun­anna í sama flokki fyrir bók­ina Dauði skógar og fékk níu mán­aða úthlutun úr launa­sjóði rit­höf­unda. Hildur Knúts­dóttir fékk einnig til­nefn­ingu til Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna í flokki barna- og ung­menna­bóka fyrir bók­ina Skóg­ur­inn, sem er loka­hnykk­ur­inn á þrí­leik hennar. Sem fyrr segir fengu þær Elísabet og Hildur tólf mán­aða rit­laun. 

Aðrir til­nefndir höf­undar eru ekki á lista úthlutund­ar­nefnd­ar­innar, en óvíst er hvort þeir séu með nýtt verk í smíðum og hafi sótt um starfs­laun vegna þess. Starfs­launin eru verk­efna­miðuð og með umsókn þarf að fylgja ítar­leg lýs­ing á því verki sem verið er að vinna. 

Þeir höf­undar sem hafa hlotið náð fyrir augum nefnd­ar­innar hafa fyrst og fremst sinnt skáld­skap, en aðrir sem sinna að rit­störfum í flokki fræði­bóka eða almennra rita hafa ekki átt erindi sem erf­iði. 

Gleði eða vonbrigði 

Einn þeirra sem fékk umsókn sína sam­þykkta var Þórarinn Leifsson rit­höf­undur sem sagði ein­fald­lega: „Fékk lista­manna­laun rétt í þessu – aðal­lega af því að ég á það f****g skilið. Gleði­legt ár.“ Hann fékk þriggja mán­aða rit­laun en eftir hann liggja bæði skáld­verk og barna­bækur. Ein bókin, Maðurinn sem hataði börn, var til­nefnd til Íslensku bók­mennta­verð­laun­anna og til Barna- og ung­linga­bók­mennta­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs árið 2015. 

Sverrir Norland segir: „Ritlaun. Sex mán­uðir. Fram til sig­urs.“ Hann sagði nýlega starfi sínu lausu til þess að ein­beita sér að eigin verk­efnum. „Ætla að eyða næstu mán­uðum í sjálf­stæð og skap­andi verk­efni áður en ég festi mig kannski ein­hvers staðar aftur,“ sagði hann í Facebook-færslu í gær, en hann rekur meðal ann­ars AM for­lag ásamt Cerise Fontaine.

Aðrir geta ekki leynt von­brigðum sínum. Júlía Margrét Ein­ars­dóttir við­ur­kennir að hún  hafi orðið svo­lítið spæld þegar hún fékk nei­kvætt svar við umsókn­inni: „Ég ætl­aði að fá mér salat og vítamín í hádeg­is­mat og taka til en svo fékk ég meil um að ég fengi engin lista­manna­laun. Þá ákvað ég í stað­inn að verða smá spæld. Haf­steinn bauð mér upp á ís til að gera allt betra og það virk­aði. Svo bara heldur maður áfram að vinna, klárar bók­ina og það verður gaman!“ 

Heimilt að fella niður greiðslur

Starfs­laun nema 409.580 krónum á mán­uði sam­kvæmt fjár­lögum 2021. Um verk­taka­laun er að ræða. Þeir sem njóta starfs­launa í sex mán­uði eða lengur skulu ekki gegna fullu starfi á meðan starfs­launa­tím­anum stendur og stjórn lista­manna­launa má fella niður starfs­laun sem veitt eru til lengri tíma en sex mán­aða ef lista­mað­ur­inn sinnir ekki list sinni að mati stjórn­ar­innar. Eigi síðar en ári eftir að tíma­bil­inu líkur er lista­mönnum gert að skila inn skýrslu þar sem þeir gera grein fyrir störfum sínum. 

Launasjóður rithöfunda

646 mánuðir

  • Launa­sjóður rit­höf­unda: 646 mán­uðir voru til úthlut­unar, sótt var um 3097 mán­uði.

    • Alls bár­ust 295 umsóknir í launa­sjóð rit­höf­unda.
    • Starfs­laun fá 94 rit­höf­undar, 45 konur og 49 karlar.

12 mánuðir

  • Andri Snær Magnason
  • Auður Jóns­dóttir
  • Berg­sveinn Birg­is­son
  • Einar Már Guð­munds­son
  • Eiríkur Örn Norðdahl
  • Elísabet K. Jök­uls­dóttir
  • Gerður Kristný Guð­jóns­dóttir
  • Guðrún Eva Mínervu­dóttir
  • Gyrðir Elíasson
  • Hall­grímur Helgason
  • Hildur Knúts­dóttir
  • Jón Kalman Stef­áns­son
  • Sigrún Páls­dóttir
  • Þórdís Gísla­dóttir

10 mánuðir

  • Sölvi Björn Sig­urðs­son

9 mánuðir

  • Bergrún Íris Sæv­ars­dóttir
  • Bergþóra Snæ­björns­dóttir
  • Bjarni M. Bjarna­son
  • Bragi Ólafsson
  • Einar Kárason
  • Fríða Ísberg
  • Gunnar Theodór Egg­erts­son
  • Haukur Már Helgason
  • Hermann Stef­áns­son
  • Hjör­leifur Hjart­ar­son
  • Jónas Reynir Gunn­ars­son
  • Kristín Eiríks­dóttir
  • Kristín Ómars­dóttir
  • Linda Vil­hjálms­dóttir
  • Oddný Eir Ævars­dóttir
  • Ófeigur Sig­urðs­son
  • Pedro Gunn­laugur Garcia
  • Ragn­heiður Sig­urð­ar­dóttir
  • Sig­ur­björg Þrast­ar­dóttir
  • Steinar Bragi Guð­munds­son
  • Tyrf­ingur Tyrf­ings­son
  • Vilborg Dav­íðs­dóttir
  • Þórunn Elín Valdi­mars­dóttir

6 mánuðir

  • Alex­ander Dan Vil­hjálms­son
  • Anton Helgi Jónsson
  • Benný Sif Ísleifs­dóttir
  • Bjarni Jónsson
  • Bragi Páll Sig­urð­ar­son
  • Dagur Hjart­ar­son
  • Eiríkur Ómar Guð­munds­son
  • Emil Hjörvar Petersen
  • Friðgeir Ein­ars­son
  • Guð­mundur Jóhann Ósk­ars­son
  • Guð­mundur Stein­gríms­son
  • Guð­mundur Svein­björn Brynj­ólfs­son
  • Gunnar Helgason
  • Halldór Armand Ásgeirs­son
  • Halldór Laxness Hall­dórs­son
  • Haukur Ingv­ars­son
  • Heiðrún Ólafs­dóttir
  • Ísak Hörður Harð­ar­son
  • Kamilla Ein­ars­dóttir
  • Kristín Helga Gunn­ars­dóttir
  • Magnús Sig­urðs­son
  • Ragnar Helgi Ólafsson
  • Ragn­heiður Eyj­ólfs­dóttir
  • Sigríður Hagalín Björns­dóttir
  • Sigrún Eldjárn
  • Sigurlín Bjarney Gísla­dóttir
  • Stefán Máni Sig­þórs­son
  • Steinunn Guðríður Helga­dóttir
  • Sverrir Norland
  • Þórdís Helga­dóttir
  • Yrsa Þöll Gylfa­dóttir

3 mánuðir

  • Áslaug Jóns­dóttir
  • Birta Ósmann Þór­halls­dóttir
  • Brynja Hjálms­dóttir
  • Brynjólfur Þor­steins­son
  • Eva Rún Snorra­dóttir
  • Harpa Rún Krist­jáns­dóttir
  • Helgi Ing­ólfs­son
  • Jónína Leós­dóttir
  • Kári Tulinius
  • Karl Ágúst Úlfsson
  • Kristín Ragna Gunn­ars­dóttir
  • Kristín Steins­dóttir
  • Lani Yamamoto
  • María Elísabet Braga­dóttir 

  • Ólafur Gunn­ars­son
  • Ólína Kjerúlf Þor­varð­ar­dóttir
  • Pétur Gunn­ars­son
  • Ragn­heiður Harpa Leifs­dóttir
  • Soffía Bjarna­dóttir
  • Steinunn Sig­urð­ar­dóttir
  • Sunna Dís Más­dóttir
  • Þóra Karítas Árna­dóttir
  • Þórarinn Eldjárn
  • Þórarinn Leifsson
  • Ævar Þór Bene­dikts­son

Launasjóður hönnuða

75 mánuðir

Launa­sjóður hönn­uða: 75 mán­uðir voru til úthlut­unar, sótt var um 793 mán­uði.

  • Alls bár­ust 106 umsóknir í launa­sjóð hönn­uða.
  • Starfs­laun fá 10 hönn­uðir, 6 konur og 4 karlar.

12 mánuðir

  • Arnar Már Jónsson
  • Guðrún Ragna Sig­ur­jóns­dóttir

9 mánuðir

  • Guðfinna Mjöll Magn­ús­dóttir

8 mánuðir

  • Hanna Dís Whitehead
  • Rán Flygenring

7 mánuðir

  • Björn Steinar Blu­men­stein

6 mánuðir

  • Elín-Margot Ármanns­dóttir
  • Thomas Pausz

4 mánuðir

  • Anna Kathar­ina Blocher

3 mánuðir

  • Baldur Helgi Snorra­son

Launasjóður myndlistamanna

526 mánuðir

Launa­sjóður mynd­list­ar­manna: 526 mán­uðir voru til úthlut­unar, sótt var um 4065 mán­uði.

  • Alls bár­ust 373 umsóknir í launa­sjóð mynd­list­ar­manna.
  • Starfs­laun fá 83 mynd­list­ar­menn, 50 konur og 33 karlar.

12 mánuðir

  • Anna Júlía Frið­björns­dóttir
  • Anna Rún Tryggva­dóttir
  • Elín Hans­dóttir
  • Finnbogi Pét­urs­son
  • Guðný Rósa Ingi­mars­dóttir
  • Hrafn­kell Sig­urðs­son
  • Ingunn Fjóla Ing­þórs­dóttir
  • Sindri Leifsson
  • Þórdís Aðal­steins­dóttir
  • Örn Alex­ander Ámund­ar­son

10 mánuðir

  • Gunn­hildur Hauks­dóttir

9 mánuðir

  • Anna Guðrún Líndal
  • Carl Théodore Marcus Boutard
  • Margrét H. Blöndal
  • Páll Haukur Björns­son
  • Sirra Sigrún Sig­urð­ar­dóttir

6 mánuðir

  • Andreas Martin Brunner
  • Anna Helen Katarina Hallin
  • Arnar Ásgeirs­son
  • Arn­finnur Jóhann R. Amazeen
  • Ásta Fanney Sig­urð­ar­dóttir
  • Auður Lóa Guðna­dóttir
  • Birgir Snæbjörn Birg­is­son
  • Bjargey Ólafs­dóttir
  • Claire Jacqueline Margu­erite Paugam
  • Dodda Maggý / Þórunn Maggý Krist­jáns­dóttir
  • Eirún Sig­urð­ar­dóttir
  • Elísabet Bryn­hild­ar­dóttir
  • Erling T.V. Klin­gen­berg
  • Eygló Harð­ar­dóttir
  • Guðlaug Mía Eyþórs­dóttir
  • Hall­gerður G. Hall­gríms­dóttir
  • Helga Páley Frið­þjófs­dóttir
  • Helgi Þórsson
  • Hildigunnur Birg­is­dóttir
  • Hildur Bjarna­dóttir
  • Hrafn­hildur Arn­ar­dóttir
  • Hulda Margrét Hákon­ar­dóttir
  • Hulda Rós Guðna­dóttir
  • Ingólfur Örn Arn­ars­son
  • Ívar Val­garðs­son
  • Jóhanna K. Sig­urð­ar­dóttir
  • Karlotta Jóhann­es­dóttir Blöndal
  • Katrín Bára Elvars­dóttir
  • Katrín Sig­urð­ar­dóttir
  • Kolbeinn Hugi Hösk­ulds­son
  • Magnús Óskar Helgason
  • Magnús Sig­urð­ar­son
  • Magnús Tumi Magn­ús­son
  • Ólafur Sveinn Gíslason
  • Olga Soffía Bergmann
  • Ólöf Jónína Jóns­dóttir
  • Ólöf Nordal
  • Pétur Magn­ús­son
  • Ráð­hildur Sigrún Inga­dóttir
  • Ragnar Axelsson
  • Ragnar Helgi Ólafsson
  • Rúrí (Þuríður Rúrí Fannberg)
  • Selma Hregg­viðs­dóttir
  • Sigríður Björg Sig­urð­ar­dóttir
  • Sig­tryggur Berg Sig­mars­son
  • Sigurður Þórir Ámunda­son
  • Stein­grímur Eyfjörð
  • Steinunn M. Önnu­dóttir
  • Styrmir Örn Guð­munds­son
  • Wioleta Anna Ujazdowska


3 mánuðir

  • Agnieszka Eva Sosnowska
  • Ásgerður Birna Björns­dóttir
  • Ásmundur Ásmunds­son
  • Baldvin Ein­ars­son
  • Björk Guðna­dóttir
  • Björn Loki Björns­son
  • Bryndís Björns­dóttir
  • Claudia Hausfeld
  • Einar Falur Ing­ólfs­son
  • Elsa Jóns­dóttir
  • Eva Ísleifs­dóttir
  • Heimir Björg­úlfs­son
  • Hildur Ása Henrýs­dóttir
  • Stark­aður Sig­urð­ar­son
  • Una Margrét Árna­dóttir
  • Þórdís Erla Zoega
  • Þor­steinn Eyfjörð Þór­ar­ins­son

Launasjóður sviðslistafólks

307 mánuðir

Launa­sjóður sviðs­lista­fólks: 307 mán­uðir voru til úthlut­unar, sótt var um 1841 mán­uði.

  • Alls bár­ust umsóknir frá 940 frá lista­mönnum sem til­heyrðu 135 sviðs­lista­hópum og 68 ein­stak­lingum
  • Starfs­laun í sviðs­lista­hópum fá 145 sviðs­lista­menn, 79 konur og 66 karl
  • Starfs­laun ein­stak­linga fá 15 sviðs­lista­menn 59 mán­uði, 10 konur og 5 karlar.

EINSTAKLINGAR

10 mánuðir

  • Finnur Arnar Arnarson

5 mánuðir

  • Sólveig Guð­munds­dóttir

4 mánuðir

  • Hjör­leifur Hjart­ar­son
  • Kolbrún Hall­dórs­dóttir
  • Kolfinna Niku­lás­dóttir
  • Magnús Jónsson
  • Páll Baldvin Bald­vins­son
  • Þóra Karítas Árna­dóttir

3 mánuðir

  • Ásgerður Jún­í­us­dóttir
  • María Heba Þor­kels­dóttir
  • Rebekka A. Ingi­mund­ar­dóttir
  • Unnur Elísabet Gunn­ars­dóttir
  • Vignir Rafn Valt­hórs­son
  • Þórey Sig­þórs­dóttir

2 mánuðir

  • Tinna Grét­ars­dóttir


SVIÐSLISTAHÓPAR 

  • Heiti svið­lista­hóps - heiti verks: nöfn leik­ara

24 mánuðir

  • Animato - Mærþöll ópera: Bjarni Thor Krist­ins­son, Björk Níels­dóttir, Erla Dóra Vogler, Eva Björg Harð­ar­dóttir, Eva Þyri Hilm­ars­dóttir, Eyjólfur Eyj­ólfs­son, Gunn­laugur Bjarna­son, Hildigunnur Hall­dórs­dóttir, Lilja Guð­munds­dóttir, Þór­gunnur Anna Örn­ólfs­dóttir, Þórunn Guð­munds­dóttir 

20 mánuðir

  • Gafl­ara­leik­húsið - tengt sam­starfs­samn­ingum Gafl­ara­leik­húss við Hafn­ar­fjarð­arbæ og Sviðs­lista­sjóð.

19 mánuðir

  • Menn­ing­ar­fé­lagið Tær - Alda: Katrín Gunn­ars­dóttir, Eva Signý Berger, Halla Þórð­ar­dóttir, Aðal­heiður Hall­dórs­dóttir, Anais Florence Lea Barthe, Heba Eir Jón­as­dóttir Kjeld, Snædís Lilja Inga­dóttir, Sólbjört Sig­urð­ar­dóttir, Védís Kjart­ans­dóttir

16 mánuðir

  • Sviðs­lista­hóp­ur­inn dB - Eyja: Ástbjörg Rut Jóns­dóttir, Uldis Ozols, Kjartan Darri Krist­jáns­son, Þór Tulinius, Sigríður Vala Jóhanns­dóttir, Sigríður Sunna Reyn­is­dóttir, Jóhann Bjarni Pálmason, Krist­jana Stef­áns­dóttir

15 mánuðir

  • Fimb­ul­vetur - Blóðuga Kanínan: Guð­mundur Ingi Þor­valds­son, Þórunn María Jóns­dóttir, Borgar Þór Magnason, Frið­þjófur Þor­steins­son, Matthías Tryggvi Har­alds­son, Gunnar Hansson, Hannes Óli Ágústs­son, Íris Tanja Ívars Flygenring, Aðal­björg Þóra Árna­dóttir, Þóra Karítas Árna­dóttir

14 mánuðir

  • Pokahorn - Kossafar á ilinni: Margrét Kristín Sig­urð­ar­dóttir, Sara Marti Guð­munds­dóttir, Unnur Birna Björns­dóttir, Sigríður Sunna Reyn­is­dóttir, Kjartan Darri Krist­jáns­son, Guð­mundur Elías Knudsen, Birkir Rafn Gíslason, Jökull Jörg­en­sen, Scott Ashley Mc Lemore, Una Lorenzen

13 mánuðir

  • EP, félaga­sam­tök - Venus Í feldi: Edda Björg Eyj­ólfs­dóttir, Hilmir Snær Guðnason, Filippía Ingi­björg Elís­dóttir, Harpa Arn­ar­dóttir, Stefán Már Magn­ús­son, Björn Berg­steinn Guð­munds­son, Valgeir Sig­urðs­son

11 mánuðir

  • Frysti­klef­inn - DNA: Kári Við­ars­son, Aðal­björg Þóra Árna­dóttir, Frið­þjófur Þor­steins­son, Sigríður Sunna Reyn­is­dóttir, María Ingi­björg Reyndal, Gréta Kristín Ómars­dóttir 
  • HETJA - Heil(brigðis) grímu­leikur á heims­mæli­kvarða: Greta Ann Clough, Aldís Gyða Dav­íðs­dóttir, Stefán Benedikt Vil­helms­son, Orri Huginn Ágústs­son, Eggert Hilm­ars­son + 2 ónefndir.
  • Undur og stór­merki - Fíflið: Karl Ágúst Úlfsson, Ágústa Skúla­dóttir, Eyvindur Karlsson, Guðrún Öyahals, Ólafur Ágúst Stef­áns­son 

10 mánuðir

  • Forspil að fram­tíð: Ævar Þór Bene­dikts­son, Kjartan Ólafsson, Ingi­björg Huld Har­alds­dóttir, Kjartan Darri Krist­jáns­son, Védís Kjart­ans­dóttir 
  • Selsaugu - Þoka/Mjørka: Aðal­björg Þóra Árna­dóttir, Hannes Óli Ágústs­son, Brynja Björns­dóttir, Gunnar Karel Másson

9 mánuðir

  • Miðnætti leik­hús - Tjaldið: Agnes Þor­kels­dóttir Wild, Eva Björg Harð­ar­dóttir, Sigrún Harð­ar­dóttir, Nicholas Arthur Candy, Kristinn Brynjar Pálsson
  • Panic Production - ROF: Svein­björg Þór­halls­dóttir, Valgeir Sig­urðs­son, Eva Signý Berger, Halla Þórð­ar­dóttir 

7 mánuðir

  • Leik­fé­lagið Annað svið - Það sem er: María Ell­ing­sen, Ólafur Egill Egilsson, Björn Berg­steinn Guð­munds­son, Ólafur Björn Ólafsson

6 mánuðir

  • Hellaðir - Heilinn í Hellinum: Albert Hall­dórs­son, Gígja Sara Helgu­dóttir Björns­son , Kjartan Darri Krist­jáns­son, Pálmi Freyr Hauksson
  • Leik­fé­lagið PóliS - Tu jest za drogo /Úff hvað allt er dýrt hérna: Ólafur Ásgeirs­son, Aleksandra Skolozynska, Jakub Ziemann, Salvör Gullbrá Þór­ar­ins­dóttir, Unn­steinn Manuel Stef­áns­son, Wioleta Anna Ujazdowska
  • Soðið svið - Framhald í næsta bréfi: Salka Guð­munds­dóttir, Aðal­björg Þóra Árna­dóttir

5 mánuðir

  • Ferða­langar sög­unnar - Sögu­ferða­langar: Tryggvi Gunn­ars­son, Valdimar Jóhanns­son
  • Ljós-til-líf-unun - BRUM: Kara Hergils Valdi­mars­dóttir, Andrea Elín Vil­hjálms­dóttir, Harpa Arn­ar­dóttir, Gunnur Mart­ins­dóttir Schluter, Ragn­heiður Erla Björns­dóttir
  • Menn­ing­ar­fé­lagið Marm­ara­börn - Ó, veður: Katrín Gunn­ars­dóttir, Kristinn Guð­munds­son, Saga Sig­urð­ar­dóttir, Védís Kjart­ans­dóttir, Sigurður Arent Jónsson

4 mánuðir

  • Sómi þjóðar - (Ó)sómi þjóðar: Tryggvi Gunn­ars­son, Hilmir Jensson 
  • Slembi­lukka - Sjáið mig: Bryndís Ósk Þ Ingv­ars­dóttir, Laufey Har­alds­dóttir

3 mánuðir

  • Kváma - Söng­leik­ur­inn Rokk­ar­inn og rót­ar­inn: Þór Breið­fjörð Krist­ins­son, Davíð Sig­ur­geirs­son, Orri Huginn Ágústs­son
  • Sviðs­lista­hópur Helga og Árna - Þögnin - óperu­hljóð­verk: Árni Krist­jáns­son, Bjarni Thor Krist­ins­son, Elsa Waage

2 mánuðir

Aquarius - Til­raunin Hasim - Götu­strákur í Kalkútta og Reykja­vík: Jón­mundur Grét­ars­son, Silja Hauks­dóttir

Launasjóður tónlistarflytjenda

315 mánuðir

Launa­sjóður tón­list­ar­flytj­enda: 315 mán­uðir voru til úthlut­unar, sótt var um 1870 mán­uði.

  • Alls bár­ust 237 umsóknir í sjóð­inn frá tón­list­ar­flytj­endum
  • Starfs­laun fá 62 tón­list­ar­menn, 34 konur og 28 karlar.

12 mánuðir

  • Guðrún Ýr Eyfj. Jóhann­es­dóttir
  • Hallveig Rún­ars­dóttir
  • Óskar Guð­jóns­son
  • Tómas Jónsson

9 mánuðir

  • Magnús Jóhann Ragn­ars­son
  • Þor­grímur Jónsson

8 mánuðir

  • Svavar Knútur Krist­ins­son

7 mánuðir

  • Björk Níels­dóttir
  • Skúli Sverr­is­son

6 mánuðir

  • Alex­andra Kjeld
  • Arn­gerður María Árna­dóttir
  • Elfa Rún Krist­ins­dóttir
  • Ellen Rósalind Krist­jáns­dóttir
  • Eyjólfur Eyj­ólfs­son
  • Francisco Javier Jauregui Narvaez
  • Grímur Helgason
  • Guðbjörg Hlín Guð­munds­dóttir
  • Guð­mundur Óli Gunn­ars­son
  • Guðrún Jóhanna Ólafs­dóttir
  • Haukur Gröndal
  • Helga Þóra Björg­vins­dóttir
  • Hildigunnur Ein­ars­dóttir
  • Ingi­björg Elsa Turchi
  • Jóhann Krist­ins­son
  • Kristinn Sig­munds­son
  • Kristofer Rodriguez Svönuson
  • Lilja Dögg Gunn­ars­dóttir
  • Magnús Trygva­son Eliassen
  • Margrét Hrafns­dóttir
  • Oddur Arnþór Jónsson
  • Ómar Guð­jóns­son
  • Sigurður Bjarki Gunn­ars­son
  • Una Svein­bjarn­ar­dóttir
  • Þor­leifur Gaukur Dav­íðs­son
  • Þórunn Ósk Mar­in­ós­dóttir

5 mánuðir

  • Þóra Margrét Sveins­dóttir

3 mánuðir

  • Ásgeir Aðal­steins­son
  • Auður Haf­steins­dóttir
  • Birnir Sig­urð­ar­son
  • Guðbjörg Sandholt Gísla­dóttir
  • Hafdís Vig­fús­dóttir
  • Herdís Anna Jón­as­dóttir
  • Kjartan Sveins­son
  • Lilja María Ásmunds­dóttir
  • María Huld Markan Sig­fús­dóttir
  • Marína Ósk Þór­ólfs­dóttir
  • Mikael Máni Ásmunds­son
  • Ólöf Helga Arnalds
  • Sigrún Harð­ar­dóttir
  • Steinunn Arnbjörg Stef­áns­dóttir
  • Úlfur Hansson
  • Una Stef­áns­dóttir
  • Valdimar Guð­munds­son
  • Þórdís Gerður Jóns­dóttir

2 mánuðir

  • Gísli Jóhann Grét­ars­son
  • Jane Ade Sutarjo
  • Steinar Logi Helgason
  • Svanur Vil­bergs­son

1 mánuður

  • Gróa Margrét Valdi­mars­dóttir
  • Guðrún Hrund Harð­ar­dóttir
  • Gunn­hildur Daða­dóttir
  • Hrafn­hildur M. Guð­munds­dóttir

Launasjóður tónskálda

281 mánuður

Launa­sjóður tón­skálda: 281 mán­uður voru til úthlut­unar, sótt var um 2012 mánuð.

  • Alls bár­ust 226 umsóknir í sjóð­inn frá tón­skáldum.
  • Starfs­laun fá 44 tón­skáld, 21 kona og 23 karlar.

12 mánuðir

  • Bára Gísla­dóttir
  • Bára Gríms­dóttir
  • Halldór Smárason
  • Hildur Kristín Stef­áns­dóttir
  • Teitur Magn­ús­son
  • Úlfur Eldjárn
  • Þuríður Jóns­dóttir

9 mánuðir

  • Andri Ólafsson
  • Veronique Jacques

6 mánuðir

  • Agnar Már Magn­ús­son
  • Andrés Þór Gunn­laugs­son
  • Ásbjörg Jóns­dóttir
  • Ásgeir Aðal­steins­son
  • Bergrún Snæ­björns­dóttir
  • Finnur Karlsson
  • Guð­mundur Steinn Gunn­ars­son
  • Gunnar Gunn­steins­son
  • Gyða Val­týs­dóttir
  • Hafdís Bjarna­dóttir
  • Halldór Eldjárn
  • Ingi­björg Elsa Turchi
  • Ingi­björg Ýr Skarp­héð­ins­dóttir
  • Katrín Helga Andr­és­dóttir
  • Kjartan Sveins­son
  • Mikael Máni Ásmunds­son
  • Ómar Guð­jóns­son
  • Pall Ragnar Pálsson
  • Rík­harður H Frið­riks­son
  • Snorri Sigfús Birg­is­son
  • Sóley Stef­áns­dóttir
  • Una Stef­áns­dóttir
  • Valdimar Guð­munds­son
  • Þórunn Gréta Sig­urð­ar­dóttir

5 mánuðir

  • Þóranna Dögg Björns­dóttir

3 mánuðir

  • Bjarki Rúnar Sig­urð­ar­son
  • Jóhann G. Jóhanns­son
  • Kristín Björk Krist­jáns­dóttir
  • Ólafur Björn Ólafsson
  • Pétur Egg­erts­son
  • Ragna Kjart­ans­dóttir
  • Ragnar Árni Ólafsson
  • Ragn­heiður Erla Björns­dóttir
  • Rakel Mjöll Leifs­dóttir
  • Salka Vals­dóttir

Úthlutunarnefndir 2021 voru skipaðar sem hér segir: 

  • Launa­sjóður hönn­uða: Ástþór Helgason, for­maður, Halldóra Víf­ils­dóttir, Þórunn Hann­es­dóttir
  • Launa­sjóður mynd­list­ar­manna: Aldís Arn­ar­dóttir, for­maður, Unnar Örn Jónasson, Sigurður Árni Sig­urðs­son
  • Launa­sjóður rit­höf­unda: Ingi­björg Sig­urð­ar­dóttir, for­maður, Þorgeir Tryggva­son, Þórður Helgason.
  • Launa­sjóður sviðs­lista­fólks: Agnar Jón Egilsson, for­maður, Hrefna Hall­gríms­dóttir, Vigdís Más­dóttir.
  • Launa­sjóður tón­list­ar­flytj­enda: Helgi Jónsson, for­maður, Jóhanna Ósk Vals­dóttir, Sólveig Moravek Jóhanns­dóttir.
  • Launa­sjóður tón­skálda: Gunnar Karel Másson for­maður, Elísabet Indra Ragn­ars­dóttir, Máni Svav­ars­son.

Stjórn listamannalauna 2018-2021 

  • Bryndís Lofts­dóttir, for­maður
  • Hlynur Helgason
  • Markús Þór Andr­és­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Listamannalaun

MenningListamannalaun

Alls hljóta 251 ein­stak­lingar lista­manna­laun á næsta ári

Listi yfir þá sem fá úthlutað lista­manna­launum fyrir árið 2025 hefur verið birtur. Í heild er um að ræða 251 ein­stak­ling og verða launin 560.000 krónur á mán­uði. Alls sóttu 1.339 um launin, þar af 1.223 ein­stak­lingar og 116 sviðs­lista­hópar. Samkvæmt vef Stjórn­ar­ráðs­ins voru 1.720 mán­að­ar­laun úr átta launa­sjóðum til úthlut­unar. Þeir sjóðir voru: Hönnuða, mynd­list­ar­manna, rit­höf­unda, sviðs­lista­fólks, tón­list­ar­flytj­enda, tón­skálda,...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár