Endurskipun ríkissaksóknarans í Namibíu talin jákvæð fyrir rannsóknina á Samherjamálinu

Martha Iwalwa, rík­is­sak­sókn­ari í Namibíu, sem sak­sækir namibíska sak­born­inga í Sam­herj­a­mál­inu hefur verið skipuð í emb­ættið á ný til fimm ára. Stjórn­mála­skýrendur í Namibíu telja þetta jákvætt þar sem hún þekkir Sam­herj­a­málið en efast hefur verið um heil­indi Iwalwa við rann­sókn spill­ing­ar­mála í gegnum tíð­ina.

Endurskipun ríkissaksóknarans í Namibíu talin jákvæð fyrir rannsóknina á Samherjamálinu
Jákvæð end­ur­skipun Stjórn­mála­skýrendur í Namibíu telja almennt séð jákvætt að Martha Iwalwa hafi veirð end­ur­skipuð sem sak­sókn­ari þar í landi vegna þess að hún þekkir Sam­herj­a­málið orðið svo vel.

End­ur­skipun Mörtu Iwalwa í emb­ætti rík­is­sak­sókn­ar­ans í Namibíu er talin vera jákvæð fyrir rann­sókn og sak­sókn Sam­herj­a­máls­ins þar í landi. Iwalwa hefur gegnt emb­ætt­inu frá árinu 2004 og Hage Geingob, for­seti Namibíu, hefur nú end­ur­skipað hana í emb­ættið til fimm ára. Greint er frá end­ur­skipun Iwalwa í emb­ættið í namibískum fjöl­miðlum í dag. 

Þetta ger­ist viku eftir að Iwalwa greindi frá því fyrir dómi að hún muni sækja að minnsta kosti sjö sak­born­inga í Sam­herj­a­mál­inu til saka fyrir meðal ann­ars mútu­þægni, spill­ingu og pen­inga­þvætti. Menn­irnir sjö, sem allir eru Namib­íu­menn og sem gengið hafa undir við­ur­nefn­inu „hákarl­arnir“ í umræð­unni um Sam­herj­a­málið á Íslandi, eru grun­aðir um að hafa með refsi­verðum hætti þegið mútu­greiðslur frá Samherja í skiptum fyrir aðgang að hesta­makríl­skvóta á árunum 2011 til 2019. 

Tveir menn til við­bótar voru svo hand­teknir í gær. 

„Ótrúlega flókið mál“

Í dag­blað­inu The Namibian Sun er haft eftir frétta­skýrand­anum, Graham Hopwood, að vegna þess hversu flókið Sam­herj­a­málið, sem gengur undir nafn­inu Fishrot á ensku, sé þá sé jákvætt að sami emb­ætt­is­maður haldi áfram að leiða emb­ættið þar sem rann­sóknin sé í fullum gangi. „Þetta er ótrú­lega flókið mál sem snýst um mörg félög og banka­reikn­inga í ólíkum löndum, og þar sem hún hefur nú þegar ákveðið að sak­sækja í mál­inu, þá er klókt að ein­hver sem veit hversu flókið málið er verði áfram við stjórn­völ­inn,“ segir Hopwood. 

„Þetta er ótrú­lega flókið mál sem snýst um mörg félög og banka­reikn­inga í ólíkum löndum“

Annar namibískur stjórn­mála­skýr­andi, Ndumba Kamwanyah, tekur í sama streng og Hopwood og segir að vegna þess að Sam­herj­a­málið sé svo stórt þá þurfi Iwalwa að fá tæki­færi til að halda áfram. „Embætti hennar er miðju stóru spill­ing­ar­máli og það þarf ein­hver að vera þarna við stjórn­ina sem þekkir til þess máls í stað þess að skipa nýjan rík­is­sak­sókn­ara sem fyrst þyrfti að setja sig inn í starfið þar sem þetta gæti haft slæmt áhrif á rekstur máls­ins,“ segir  Kamwanyah.

Efa­semd­arraddirEfa­semd­arraddir hafa heyrst um rík­is­sak­sóknar­ann þar í landi í gegnum tíð­ina. Hún greindi frá því að hún hygg­ist sak­sækja þrjá menn, sem sjást hér með Þor­steini Má Bald­vins­syni, fyrir að þiggja mútur frá Samherja.

Gagnrýni á Iwalwa

Martha Iwalwa hefur verið gagn­rýnd í gegnum tíð­ina fyrir hæga­gang í störfum sínum og fyrir að gefa ekki út ákærur í stórum spill­ing­ar­málum. Vegna þessa hafa heyrst gagn­rýn­is­raddir í Namibíu sem segja að kannski sé kom­inn tími til að skipta henni út í ljósi þess að Sam­herj­a­málið er stærsta málið sinnar teg­undar sem komið hefur upp í land­inu. 

Iwalwa hefu í þess­ari umræðu sjálf verið sökuð um að vera spillt. Rannsókn Sam­herj­a­máls­ins snýr á end­anum að sjálfum valda­flokknum í land­inu, SWAPO, sem hefur verið með meiri­hluta í kosn­ingum í land­inu frá því að það fékk sjálf­stæði frá Suður-Afríku fyrir 30 árum. 

Sak­born­ing­arnir í Sam­herj­a­mál­inu eru, eða voru áhrifa­menn í SWAPO-flokknum, og var dóms­mála­ráð­herr­ann fyrr­ver­andi, Sacky Shangala, til dæmis hand­geng­inn Hage Geingob for­seta. 

Á blaða­manna­fundi í fyrra neit­aði Iwalwa því að hún væri spillt  og sagði: „Ef ég er spillt af hverju hef ég þá ekki verið sótt til saka.“  Hún neit­aði því einnig á þessum sama fundi að hún hefði varið hátt­setta stjórn­mála­menn fyrir sak­sóknum í gegnum tíð­ina. 

Hvernig sak­sókn Sam­herj­a­máls­ins endar hjá Iwalwa á eftir að koma í ljós og eins á alveg eftir að koma í ljóst hvort ákæru­valdið í Namibíu hyggst reyna að sækja stjórn­endur Samherja til saka í land­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár