Góð viðbrögð við nýrri plötu Ólafs Arnalds

Ný plata Ólafs Arnalds komst í 17. sæti vin­sælda­lista Bret­lands.

Góð viðbrögð við nýrri plötu Ólafs Arnalds

Tón­list­ar­mað­ur­inn Ólafur Arnalds gaf út fimmtu plötu sína, some kind of peace, 6. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn en hún hefur strax ratað í 17. sæti vin­sælda­lista Bret­lands. Þetta er fyrsta plata hans sem ratar þangað, en það þykir óvenju­legt fyrir nýklass­íska plötu að ná svona miklum vin­sældum á meðal almenn­ings. Ólafur vann til BAFTA-verð­launa árið 2014 fyrir frum­samda tón­list í sjón­varps­þátt­unum Broadchurch og var til­nefndur til Emmy-verð­launa í ár fyrir tit­il­lag Def­end­ing Jacob-þáttar­að­ar­innar.

Platan some kind of peace hefur fengið góða dóma víða hjá erlendum miðlum; hún fékk 9/10 hjá tón­list­ar­tíma­rit­unum Clash og The Line of Best Fit, sem og jákvæðan dóm hjá New Statesman, en hefur ekki enn fengið gagn­rýni hjá íslenskum miðlum. Í við­tali frá 2015 sagð­ist Ólafur ekki hafa fengið neina umfjöllun árum saman frá íslenskum fjöl­miðlum.

„Það vildi ekk­ert dag­blað eða íslensk hátíð tala við mig þangað til ég væri búinn að gera eitt­hvað úti,“ sagði hann. „Ég var hérna að gera mitt og komst aldrei inn á neina af þessum hátíðum heima fyrr en ég var búinn að taka nokkra túra úti. Þegar það var allt í einu búið að skrifa heil­síðu um mig í Guardian þá var loks­ins hringt í mig frá Mogganum. Mér finnst þetta stundum svo­lítið skrítið, það er eins og Íslend­ingum finn­ist ekk­ert vera merki­legt fyrr en útlend­ingar eru búnir að við­ur­kenna og sam­þykkja það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár