KPMG: „Það var ákvörðun Samherja að skipta um endurskoðunarfyrirtæki“

KPMG segir trúnað ríkja um við­skipta­vini félags­ins en að Samherji hafi ákveðið að skipta um end­ur­skoð­anda. Fyr­ir­tækið sem Samherji skiptir nú við, BDO ehf., er með stutta við­skipta­sögu á Íslandi. Spænska BDO hefur verið sektað og end­ur­skoð­andi þess dæmdur í fang­elsi á Spáni fyrir að falsa bók­hald útgerð­ar­innar Pescanova sem meðal ann­ars veiðir í Namibíu.

KPMG: „Það var ákvörðun Samherja  að skipta um endurskoðunarfyrirtæki“
Fara frá risa til lít­ils end­ur­skoð­anda­fyr­ir­tækis Samherji fer nú með hluta af end­ur­skoðun starf­semi sinnar til félags­ins BDO ehf. frá KPMG. Þor­steinn Már Bald­vins­son sést hér með nokkrum starfs­mönnum Samherja og lög­manni félags­ins, Garðari Gísla­syni, við Seðla­banka Íslands. Mynd: Haraldur Jónasson/Hari

Fram­kvæmda­stjóri end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins KPMG segir að það hafi verið ákvörðun Samherja að skipta um end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tæki eftir að útgerð­ar­fé­lagið hafði átt í ára­löngum við­skiptum við KPMG.

Breyting Samherja á end­ur­skoð­anda­fyr­ir­tæki ber upp í kjöl­far þess að útgerð­ar­fé­lagið er nú til rann­sóknar á Íslandi vegna mútu­greiðslna í Namibíu á árunum 2012 til 2019 en KPMG var end­ur­skoð­andi félags­ins á þessu tíma­bili. Rann­sóknir á mál­inu, eða öngum þess, standa einnig yfir í Namibíu og Noregi. 

Trúnaður um við­skipta­viniJón S. Helgason segir að trún­aður ríki um við­skipta­vini KPMG.

Í svari til Stund­ar­innar segir fram­kvæmda­stjóri KPMG, Jón S. Helgason, að ákvörð­unin um að hætta við­skiptum við end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækið hafi verið Samherja: „Það var ákvörðun Samherja að skipta um end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki, að öðru leyti er KPMG bundið trún­aði um við­skipta­vini sína.“

Ekki liggur fyrir af hverju Samherji tók þessa ákvörðun og ekki liggur fyrir hvort hún hafi verið vegna spurn­inga og eða þrýst­ings frá KPMG vegna rann­sókn­ar­innar á Samherja vegna Namib­íu­máls­ins. Eins og kemur fram í svari seg­ist félagið vera bundið trún­aði gagn­vart við­skipta­vinum sínum.

Samherji hefur ekki svarað ítrek­uðu erindi Stund­ar­innar um af hverju félagið skiptir um end­ur­skoð­anda eftir ára­langa tryggð við KPMG. 

Ef fyr­ir­tæki sætir rann­sóknum vegna lög­brota getur falist áhætta í því fyrir end­ur­skoð­anda fyr­ir­tæk­is­ins að hafa það sem við­skipta­vin. Þá getur end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækið eftir atvikum dreg­ist inn í rann­sókn­ina á fyr­ir­tæk­inu og jafn­vel orðið hluti hennar. Slíkar teng­ingar geta verið sér­stak­lega erf­iðar fyrir stærri end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tæki eins og til dæmis KPMG sem eru með alþjóð­legt orð­spor að verja. 

KPMG kom náið að útgerð Samherja í Namibíu og skrif­aði meðal ann­ars minn­is­blað um ætl­aða starfs­manna­leigu sem Samherji hugð­ist stofna til að halda utan um manna­hald á skipum sínum þar í landi sem og ann­ars staðar. Starfs­maður KPMG á Akureyri sem end­ur­skoð­aði árs­reikn­inga Samherji fór meðal ann­ars einu sinni þangað suð­ur­eftir í heim­sókn vegna vinnu sinnar og svo fram­vegis. 

Ólíkar sviðs­myndirKPMG á Íslandi vann meðal ann­ars skýrslu, eða minn­is­blað, um ætlun Samherja að stofna starfs­manna­leigu út af rekstri sínum í Afríku. Þar voru ólíkar sviðs­myndir teikn­aðar upp. Myndin sýnir skýr­ingu úr skýrsl­unni.

Skiluðu síðustu þremur ársreikningum í gær

Eins og Stundin greindi frá á þriðju­dag­inn þá er lítt þekkt end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tæki á Íslandi, BDO ehf., tekið við end­ur­skoðun hluta félaga Samherja, meðal ann­ars félag­inu sem heldur utan um Namib­íu­starf­semi útgerð­ar­innar sem og eign­ar­halds­fé­lög á Kýpur.

Á heima­síðu BDO ehf. í byrjun vik­unnar voru starfs­menn félags­ins sagðir vera þrír, þar af einn lög­giltur end­ur­skoð­andi, en nú hefur verið heima­síðan verið upp­færð og starfs­menn eru sagðir vera 22, þar af fimm lög­giltir end­ur­skoð­endur.  Til sam­an­burðar vinna 266 starfs­menn hjá KPMG á Íslandi. 

Þar til í gær hafði BDO ehf. ekki skilað árs­reikn­ingum þriggja síð­ustu rekstr­ar­ára, allt frá 2016, líkt og lög gera ráð fyrir að fyr­ir­tæki geri. Árs­reikn­ingum áranna 2017, 2018 og 2019 var hins vegar öllum skilað til emb­ættis rík­is­skatt­stjóra þann 28. októ­ber 2020, í gær, eftir að fjallað hafði verið um fyr­ir­tækið í fjöl­miðlum. Félög sem ekki skila árs­reikn­ingum á réttum tíma til rík­is­skatt­stjóra þurfa að greiða sektir vegna þessa. Ekki er algengt að end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækjum láist að skila árs­reikn­ingum um starf­semi sína. 

„Við erum ungt endurskoðunarfyrirtæki á Íslandi“

Samkvæmt upp­lýs­ingum hjá rík­is­skatt­stjóra hefur BDO ehf. sinnt ýmis konar verk­efnum öðrum en reikn­ings­haldi og bók­haldi í gegnum árin. Meðal ann­ars leigu á öðrum ótöldum vélum og bún­aði, hug­bún­að­ar­gerð, öðrum vöru­flutn­ingum á vegum, smá­sölu póst­versl­ana um netið og ljós­mynda­þjón­ustu auk þess sem dótt­ur­fé­lag þess hefur verið í fjár­hættu- og veð­mála­starf­semi og sinnt lagn­ingu gólf- og veggefna sam­kvæmt virð­is­auka­skatts­núm­erum sem fyr­ir­tækin hafa fengið í gegnum árin. 

Alþjóðlegur risi en lítið félag á Íslandi

Í tölvu­pósti frá almanna­tengli til Stund­ar­innar, sem sendur er fyrir hönd BDO ehf., kemur fram að fyr­ir­tækið á Íslandi sé hluti af BDO International, fimmtu stærstu end­ur­skoð­enda­keðju í heimi á eftir Ernst og Young, PwC, Deloitte og KPMG og að fyr­ir­tækið starfi í 167 löndum. Saga fyr­ir­tæk­is­ins á Íslandi er hins vegar stutt eins og segir á heima­síðu þess: „Við erum ungt end­ur­skoð­un­ar­fyr­ir­tæki á Íslandi sem veitir alhliða þjón­ustu á sviði end­ur­skoð­unar og ráð­gjafar.“ 

Félagið var með rúm­lega 200 millj­óna króna tekjur í fyrra og ríf­lega 8 millj­óna króna tap.  Til sam­an­burðar var KPMG með ríf­lega 5 millj­arða króna tekjur og rúm­lega 300 millj­óna króna hagnað. Því má segja að það sé væg­ast sagt ólíku saman að jafna þegar umsvif þess­ara tveggja end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækja eru borin saman og enn sem komið er telst óljóst af hverju Samherji velur að skipta um end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tæki með þessum hætti. 

Stundin náði ekki tali af Þorláki Björns­syni, fram­kvæmda­stjóra BDO ehf., á Íslandi við vinnslu frétt­ar­innar. 

Hefur dregist inn í sakamál útgerða

Athygli vekur að erlend félög BDO hafa dreg­ist inn í rann­sóknir erlendis á bók­haldi útgerð­ar­fé­laga.

Í byrjun októ­ber sagði breska blaðið The Guardian frá því að spænska BDO hafi verið dæmt til að greiða 115 millj­óna pund sekt til spænska rík­is­ins fyrir að hafa falsað bók­hald spænska útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Pescanova á árunum 2010 til 2012. Pescanova, sem er frá hér­að­inu Galisíu, hefur meðal ann­ars stundað fisk­veiðar í Namibíu líkt og Samherji, eins og Stundin hefur fjallað um.

Dóm­stóll­inn á Spáni komst að því að BDO hefði falsað bók­hald Pescanova til að fela skuldir félags­ins og hefði því meðal ann­ars brotið gegn fjár­festum Pescanova með því að fegra stöðu félags­ins. Þá var end­ur­skoð­andi BDO dæmdur í þriggja og hálfs árs fang­elsi vegna máls­ins. 

BDO á Spáni hefur sagt að félagið muni áfrýja nið­ur­stöð­unni og að fyr­ir­tækið hafi verið leiksoppur Pescanova sem hafi mis­notað traust þess. 

Þessi saga um BDO á Spáni sýnir meðal ann­ars hvaða afleið­ingar það getur haft fyrir end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tæki eins og BDO eða KPMG að drag­ast inn í rann­sóknir á efna­hags­brotum fyr­ir­tækja og einnig mögu­lega af hverju það getur þjónað við­skipta­hags­munum end­ur­skoð­enda­fyr­ir­tækja að hætta að vinna fyrir við­kom­andi fyr­ir­tæki. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
6
Innlent

Segir skerð­ingu Loft­brúar byggða á röngum for­sendum

Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir upp­haf­legar fjár­heim­ildir að raun­virði. Ekki séu heldur traustar vís­bend­ingar um að stuðn­ing­ur­inn hafi hækkað flug­far­gjöld. Eyjólfur Ármanns­son inn­við­a­ráð­herra hyggst nú hækka fyr­ir­hug­aða nið­ur­greiðslu eftir hörð við­brögð við breyt­ing­unum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
6
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár