Samherji skiptir um endurskoðanda yfir Namibíufélaginu eftir þrettán ár hjá KPMG

Eign­ar­halds­fé­lagið Samherji Holding ehf. hefur skipt um end­ur­skoð­anda á Íslandi. Félagið heldur utan um félög sem eiga rekstur Samherja í Namibíu auk þess að vera stærsti hlut­hafi Eim­skipa­fé­lags­ins.

Samherji skiptir um endurskoðanda yfir Namibíufélaginu eftir þrettán ár hjá KPMG
Nýr end­ur­skoð­andi fyrir eig­anda Namib­íu­fé­lag­anna Nýr end­ur­skoð­andi hefur tekið við end­ur­skoðun íslenska félags­ins sem heldur utan um eign­ar­hald á félögum Samherja í Namibíu. Ástæðan er ókunn. Þor­steinn Már Bald­vins­son og Björgólfur Jóhanns­son eru for­stjórar Samherja. Mynd: Vísir/Sigurjón

Eign­ar­halds­fé­lagið Samherji Holding ehf., sem meðal ann­ars heldur utan um eign­ar­hald á útgerð Samherja í Namibíu og hlut í Eim­skipa­fé­lagi Íslands, hefur skipt um end­ur­skoð­anda eftir að hafa verið með KPMG sem end­ur­skoð­anda í fjöl­mörg ár. Breyt­ingin á end­ur­skoð­anda félags­ins kemur fram í gögnum frá rík­is­skatt­stjóra frá því í sept­em­ber síð­ast­lið­inn. 

End­ur­skoð­andi Samherja Holding ehf. er nú fyr­ir­tæki sem heitir BDO ehf.

Hjá BDO ehf. vinna tutt­ugu starfs­menn, þar af eru fjórir lög­giltir end­ur­skoð­endur. Einn af lög­giltu end­ur­skoð­end­unum skrifar undir breyt­ingu á end­ur­skoð­anda félags­ins á skjali sem sent var til rík­is­skatt­stjóra.*

Til sam­an­burðar voru 266 starfs­menn hjá sam­stæðu KPMG á Íslandi í lok árs 2018 í 13 starfs­stöðvum víða um land.

BDO ehf. er því ekki ein af helstu end­ur­skoð­enda­skrif­stofum lands­ins eins og til dæmis KPMG, PwC, Ernst og Young eða Deloitte. 

Björgólfur Jóhanns­son, annar af for­stjórum Samherja, hafði ekki svarað spurn­ingu Stund­ar­innar um af hverju Samherji skiptir um end­ur­skoð­anda yfir þessum félögum þegar fréttin var birt. Bæði Björgólfur og Þor­steinn Már Bald­vins­son, hinn for­stjóri Samherja, er með pró­kúru­um­boð fyrir Samherja Holding ehf. 

Einn lög­giltur end­ur­skoð­andiEinn lög­giltur end­ur­skoð­andi er sagður starfa hjá BDO ehf. á heima­síðu þess. Hér má sjá til­kynn­ing­una um breyt­ing­una á end­ur­skoð­anda Samherja Holding.

Félag með veltu upp á milljarða

Samherji Holding ehf. á félagið Sæból ehf. sem hefur haldið utan um eign­ar­hald á félögum Samherja á Kýpur sem aftur hafa meðal ann­ars átt félögin í Namibíu sem útgerð Samherja þar í landi hefur verið rekin í.

Sem kunn­ugt er þá er Samherji nú til rann­sóknar í Namibíu og Íslandi vegna mútu­greiðslna sem félagið greiddi til áhrifa­manna í Namibíu í skiptum fyrir hest­makríl­skvóta á árunum 2012 til 2019 eftir að Kveikur, Stundin og Al Jazeera greindu frá þessu í sam­vinnu við Wikileaks í fyrra. Þá er Samherji einnig til rann­sóknar hjá skatta­yf­ir­völdum á Íslandi út af erlendum rekstri sínu sem rekin var í gegnum Sæból og óbeint í gegnum móð­ur­fé­lagið Samherja Holding. 

Áður hélt Sæból meðal ann­ars utan um aðra útgerð sem Samherji rak í Afríku, Kötlu Seafood, sem Samherji seldi til rúss­nesks útgerð­ar­manns árið 2013 með margra millj­arða hagn­aði. Tekjur þess­arar útgerðar Samherja, sem var með starf­semi í Márit­aníu og Marokkó aðal­lega, námu um 30 til 40 pró­sentum af heild­ar­tekjum Samherja á árunum 2007 til 2013, eða um og yfir 20-30 millj­örðum á ári. Því er um að ræða félag sem hefur verið veru­lega umsvifa­mikið. 

KPMG hefur alltaf verið end­ur­skoð­andi þessa félags, frá árinu 2007, þar til nú eða í 13 ár. 

Yfirleitt tvær ástæður fyrir breytingu á endurskoðanda

Athygli vekur að hvorki Samherji Holding né Sæbol hafa skilað árs­reikn­ingum fyrir árið í fyrra þrátt fyrir að Samherji hf., sem heldur utan um rekstur Samherja á Íslandi og í Færeyjum hafi gert það nú þegar. End­ur­skoð­andi Samherja hf. er Ernst og Young. 

Einn sér­fræð­ingur sem Stundin ræddi við um málið sagði að yfir­leitt væru tvær ástæður fyrir því að fyr­ir­tæki skipta um end­ur­skoð­anda. Fyr­ir­tækið er ósátt við vinnu end­ur­skoð­and­ans, út af ein­hverri ástæðu, eða þá að end­ur­skoð­and­inn vill ekki lengur vinna fyrir fyr­ir­tækið, út af ein­hverri ástæðu eða ástæðum. 

Hvorki Samherji Holding né Sæból hafa skilað árs­reikn­ingum fyrir síð­asta ár þrátt fyrir að frestur til að skila árs­reikn­ingum fyrir 2019 sé nú lið­inn. Félögin hafa í gegnum árin verið búin að skila árs­reikn­ingum á þessum tíma árs. 

Stundin náði ekki tali af fram­kvæmda­stjóra KPMG við vinnslu frétt­ar­innar þar sem hann var á fundi. 

*Athug­semd rit­stjórnar. Í upp­haf­legri frétt um málið voru starfs­menn BDO ehf. á Íslandi sagðir vera þrír, líkt og fram kemur á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins. Eftir að frétt­inn var birt hafði almanna­teng­ill sam­band við Stundina og bað um að þessum upp­lýs­ingum þar sem 20 starfs­menn, þar af fjórir lög­giltir end­ur­skoð­endur, væru starf­andi hjá BDO ehf., þrátt fyrir að ein­ungis þrír starfs­menn kæmu fram á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins. Ástæða þessa er sögð vera sú að BDO ehf. sé ekki dug­legt við upp­færa heima­síðu sína en að þetta verði gert við fyrsta tæki­færi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár