Samherji segir greiðslur til namibísku „hákarlanna“ hafa verið lögmætar

Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Samherja, segir að greiðslur Samherja til namibískra ráða­manna hafi verið „lög­mætar“. Samherji útskýrir ekki eðli þess­ara greiðslna.

Samherji segir greiðslur til namibísku „hákarlanna“ hafa verið lögmætar
Breyta útskýr­ingum Samherji hefur farið frá því að svara því ekki til hvort félagið hafi greitt mútur í Namibíu eða ekki, í að að halda því fram að um hafi verið að ræða greiðslur fyrir „ráð­gjöf“ og nú segir félagið að um hafi verið að ræða „lög­mætar“ greiðslur. Þor­steinn Már Bald­vins­son og Björgólfur Jóhanns­son eru for­stjórar Samherja. Mynd: Vísir/Sigurjón

„Við lítum svo á að um hafi verið að ræða lög­mætar greiðslur og höfnum því alfarið að greiðslur til þess­ara aðila hafi verið mútur,“ segir Björgólfur Jóhanns­son, annar for­stjóri Samherja, aðspurður um greiðslur fyr­ir­tæk­is­ins upp á vel á annan millj­arð króna til hóps namibískra ráða­manna í skiptum fyrir kvóta þar í landi á árunum 2012 til 2019. Þetta kemur fram í við­tali við Björgólf í Morg­un­blað­inu í dag. 

Sjö Namib­íu­menn hafa setið í gæslu­varð­haldi í nærri eitt ár í Namibíu vegna máls­ins. Þeir eru grun­aðir um að hafa þegið mútur frá Samherja í mál­inu auk þess sem rann­sókn fleiri brota er undir. Umræddir ein­stak­lingar hafa gengið undir við­ur­nefn­ingu „hákarl­arnir“. Í gær var beiðni þeirra um lausn gegn trygg­ingu hafnað og sagði dóm­ari í máli þeirra í sumar að Namib­íu­menn­irnir hefðu gerst sekir um „rán um hábjartan dag“. 

Sex núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­menn Samherja eru sömu­leiðis með rétt­ar­stöðu sak­born­inga vegna máls­ins á Íslandi. Þeir hafa verið yfir­heyrðir grun­aðir um aðkomu að mútu­greiðslum og pen­inga­þvætti. 

„Við lítum svo á að um hafi verið að ræða lög­mætar greiðslur “

Ef Björgólfur hefur rétt fyrir sér þegar hann segir, fyrir hönd Samherja, að Samherji „líti svo á“ að greiðsl­urnar til áhrifa­mann­anna hafi verið „lög­mætar“ er fjöl­miðlaum­fjöll­unin um málið byggð á mis­skiln­ingi á eðli greiðslna Samherja auk þess sem rann­sókn ákæru­valds­ins í Namibíu er ástæðu­laus sem og rann­sókn íslenska ákæru­valds­ins á mál­inu. Sjömenn­ing­arnir í Namibíu hafa því setið í fang­elsi í nærri eitt ár að ástæðu­lausu og starfs­menn Samherja hafa fengið rétt­ar­stöðu sak­born­inga að ósekju, ef Björgólfur fer með rétt mál. 

Björgólfur gengur lengra

Í við­tal­inu við Morg­un­blaðið gengur Björgólfur nokkuð lengra í því en Samherji hefur gert áður að halda því fram að greiðsl­urnar til namibísku ráða­mann­anna, sem Kveikur, Stundin og Al Jazeera greindu frá í fyrra í sam­starfi við Wikileaks, hafi verið eðli­legar eða „lög­mætar“ eins og hann orðar það. 

Fyrst eftir að umræddir fjöl­miðlar greindu frá mál­inu í nóv­em­ber í fyrra treysti Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, ekki að full­yrða aðspurður að Samherji hefði ekki greitt mútur. Þor­steinn Már var spurður um þetta atriði í við­tali á vísi.is. 

Síðan þá hefur Þor­steinn Már haldið því fram að um hafi verið að ræða ráð­gjafagreiðslur.

Í við­tali í Sprengisandi á Bylgj­unni í síð­asta mán­uði sagði Þor­steinn Már að Samherji hefði „greitt ein­hverjar greiðslur til ráð­gjafa“  í Namibíu en að þetta hafi ekki verið mútur.

Slíkar „ráð­gjafagreiðslur“ eru þekkt yfir­skyn fyrir eig­in­legar mútu­greiðslur í mörgum löndum heims­ins þar sem engin eig­in­leg ráð­gjöf er veitt heldur er um að ræða greiðslur sem veita aðgang að gæðum, eins og til dæmis kvóta, í krafti póli­tísks valds.  Aðil­arnir sem sitja í fang­elsi í Namibíu grun­aðir um að hafa þegið mútur frá Samherja eru meðal ann­ars tveir fyrr­ver­andi ráð­herrar. 

Ekki skil­greint sem mútu­greiðslurEnski hag­fræð­ing­ur­inn Paul Collier er einn þeirra sem hefur hefur útskýrt að mútu­greiðslur fyr­ir­tækja eru vit­an­lega aldrei skil­greindar sem slíkar.

Líkt og enski hag­fræð­ing­ur­inn Paul Collier hefur sagt þá eru mútu­greiðslur vit­an­lega aldrei skil­greindar sem mútu­greiðslur heldur eitt­hvað annað eins og til dæmis ráð­gjafagreiðslur eða stroku­greiðslur (e. facilitation feee):„Mútur eru auð­vitað aldrei kall­aðar „mútur“; þetta eru „stroku­greiðslur“ sem fyr­ir­tækið sem nýtir auð­lind­irnar greiðir til fyr­ir­tækja í við­kom­andi landi, sem eru með óskýru eða óþekktu eign­ar­haldi, fyrir óskil­greinda þjón­ustu,“ segir Collier, sem er sér­fræð­ingur í mál­efnum Afríku, í bók sinni The Plund­ered Planet. 

„Hvorki Samherji, né nokkur félög tengd Samherja, hafa nokkru sinni greitt mútur.“

Í við­tal­inu við Moggann í dag segir Björgólfur ekki einu sinni að um hafi verið að ræða greiðslur fyrir ráð­gjöf heldur aðeins „lög­mætar greiðslur“. Hann útskýrir eðli þess­ara greiðslna ekki frekar, líkt og Samherji hefur gert áður, og er ekki beð­inn um að útskýra af hverju umræddir pen­ingar runnu frá Samherja til Namib­íu­mann­anna sjálfra. 

Mútur nefndar í bókhaldsgögnum Samherja

Í við­tal­inu segir Björgólfur meðal ann­ars einnig um mútu­greiðsl­urnar sem félagið greiddi í Namibíu: „Samherji hafnar því stað­fast­lega að hafa greitt mútur. Hvorki Samherji, né nokkur félög tengd Samherja, hafa nokkru sinni greitt mútur. Varðandi kvóta­við­skipti Samherja í Namibíu þá hef ég ekki séð annað en að félög tengd Samherja hafi greitt mark­aðs­verð fyrir kvót­ann og þá fæ ég ekki séð að mútur hafi nokkurn tím­ann verið greiddar.“

Eitt af vanda­mál­unum við þessi ummæli Björg­ólfs er það að Samherji gerði ráð fyrir því í kostn­að­ar­á­ætl­unum að þurfa að greiða mútur í starf­semi sinni í Afríku.

Eins og Stundin hefur fjallað um er eitt dæmi um að mögu­legar mútur hafi verið settar inn í kostn­að­ar­á­ætl­anir Samherja í Afríku að finna í minn­is­blaði frá Samherja í Marokkó árið 2008, þar sem Samherji stund­aði fisk­veiðar áður en fyr­ir­tækið fór til Namibíu. Þar stendur, undir liðnum „annað“, í kostn­að­ar­á­ætlun fyrir land­vinnslu Samherja þar í landi, „mútur“. Ekki kemur fram hversu mikið eigi eða hafi verið greitt í mútur og ekki er ljóst hvort þetta var gert í Marokkó. En sú stað­reynd að þennan kostn­að­ar­lið var að finna í minn­is­blað­inu frá Samherja sýnir að útgerð­ar­fé­lagið gerði ráð fyrir því að þurfa mögu­lega að beita mútum í starf­semi sinni í Marokkó.

Annað gagn frá Marokkó sýnir hvernig gert var ráð fyrir mútu­greiðslum til tolls­ins í land­inu en sér­stakur bók­halds­lyk­ill var merktur „bribes to customs“.

Til ráða­mann­anna ekki rík­is­insJóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu, hefur lýst því hvernig greiðsl­urnar fyrir kvót­ann runnu til namib­íu­sku ráða­mann­anna í stað rík­is­ins.

Snýst um hvert peningarnir fóru en ekki markaðsverð

Annað sem vekur athygli við orð Björg­ólfs er full­yrð­ing hans um að Samherji hafi greitt mark­aðs­verð fyrir kvót­ann í Namibíu. Eitt af vanda­mál­unum við þessi orð hans er að Samherji greiddi „hákörlunum“ svoköll­uðu fyrir afnotin af kvót­anum að hluta en ekki namibíska rík­inu. Kvóta­gjaldið rann því að hluta til í vasa ein­stak­ling­anna sem nú sitja í gæslu­varð­haldi en ekki til rík­is­ins. Þetta er svona eins og ef veiði­gjöld íslenskra útgerð­ar­fé­laga myndu renna í vasa for­stjóra Fiski­stofu eða sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Íslands á hverjum tíma en ekki í rík­is­kass­ann. 

Um þetta sagði Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Namib­íu­mál­inu, í við­tali við Stundina í fyrra. „Það eru kannski 1,5 til 2 millj­ónir Banda­ríkja­dala sem hafa farið til rík­is­ins frá 2014 til 2019. En strák­arnir, þessi spillta grúppa, eru búnir að fá yfir 10 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Það eru yfir 10 millj­ónir doll­ara sem þeir hafa fengið, beint í þeirra vasa og ann­arra, og ríkið fær miklu, miklu minna. Svo hefur Samherji hagn­ast mikið á þessum veiðum.“ 

Í orðum Jóhann­esar felst því að þessar meira en 10 milljón dala greiðslur hafi aldrei komið til namibíska rík­is­ins heldur að þær hafi meðal ann­ars farið frá fisk­sölu­fyr­ir­tæki Samherja á Kýpur, sem meðal ann­ars selur mak­ríl­inn sem veiddur er í Namibíu, til namibísku ráða­mann­anna sem nú sitja í fang­elsi. Greiðsl­urnar fyrir afnotin af auð­lindum Namibíu fóru því frá félögum Samherja í vasa spilltra stjórn­mála- og emb­ætt­is­manna. 

Þetta er í raun kjarni Namib­íu­máls Samherja; hvert greiðsl­urnar sem Samherji greiddi fyrir afnotin af kvót­anum í Namibíu runnu í reynd að stóru leyti. Út af þessu er málið til rann­sóknar sem mútu­mál í Namibíu og einnig á Íslandi. Það er ekki til rann­sóknar hvort pen­ing­arnir sem runnu frá Samherja í skiptum fyrir kvót­ann hafi numið mark­aðs­verði á kvót­anum eða ekki heldur hvert þessir pen­ingar fóru.

Hvort ákæru­valdið í Namibíu og á Íslandi „lítur svo á“ að Björgólfur Jóhanns­son og Samherji hafi rétt fyrir sér í þessum túlk­unum á mútu­greiðsl­unum frá útgerð­inni á svo eftir að koma í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár