Uppljóstrarinn í Samherjamálinu: „Það er bara verið að ræna Namibíu“

Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu, sem gerð­ist upp­ljóstr­ari, segir að Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hafi verið lyk­il­maður í því að skipu­leggja og ákveða mútu­greiðsl­urnar í Namibíu. Hann segir að verið sé að fara illa með namibísku þjóð­ina og að arð­rán á auð­lindum hennar eigi sér stað.

Múturnar jukust
Múturnar juk­ust Mútu­greiðslur Samherja til stjórn­mála- og emb­ætt­is­manna í Namibíu juk­ust eftir að Jóhannes Stef­áns­son lét af störfum hjá fyr­ir­tæk­inu. Hann segir að sam­viskan hafi knuíð hann til að stíga fram. Mynd: Davíð Þór

Jóhannes Stef­áns­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu, tók ákvörðun um að ger­ast upp­ljóstr­ari um spillta og mögu­lega ólög­lega starfs­hætti Samherja í land­inu af því hann vill opin­bera spill­ing­una þar í landi. Þess vegna stígur hann fram og segir sögu sína í sam­starfi við Stundina, Wikileaks, Kveik og Al Jaazeera.

Í við­tali við Stundina rekur Jóhannes hvernig vinnu­brögð Samherja í Namibíu og sam­vinna útgerð­ar­innar við spillta stjórn­mála- og emb­ætt­is­menn hamlar fram­þróun í land­inu. 

„Smátt og smátt áttar maður sig á því að það er bara verið að ræna Namibíu að innan og utan; það er bara verið að fara illa með land og þjóð,“ segir Jóhannes. Hann starf­aði sem fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu á árunum 2012 til 2016, en ákvað síðar að ger­ast upp­ljóstr­ari og aðstoðar eft­ir­lits­stofn­anir í Namibíu við rann­sókn­ina á mál­inu. Samherji hefur veitt um 500 þús­und tonn af hesta­makríl í Namibíu síð­ast­liðin sjö ár og hefur útgerðin greitt mútur upp á margar millj­ónir Banda­ríkja­dala til stjórn­mála- og emb­ætt­is­manna í land­inu til að kom­ast yfir veiði­heim­ild­irnar að sögn Jóhann­esar. Um er að ræða eitt stærsta spill­ing­ar­mál sem komið hefur upp í Namibíu. 

„Smátt og smátt áttar maður sig á því að það er bara verið að ræna Namibíu að innan og utan.“

Jóhannes seg­ist hafa verið „mið­punkt­ur­inn“ í rekstri Samherja í Namibíu á þeim tíma sem hann starf­aði hjá fyr­ir­tæk­inu og dregur hann ekk­ert undan þegar hann lýsir ábyrgð sinni á því að hafa tekið þátt í því að arð­ræna Namibíu með íslenska útgerð­ar­fé­lag­inu. Það var Jóhannes sem sá meðal ann­ars um það að greiða mút­urnar sem færðu Samherja afla­heim­ild­irnar í Namibíu þannig að hann hefur beina reynslu og beina vit­neskju um mútu­greiðsl­urnar.

Segir Þorstein Má hafa skipulagt  múturnar

Jóhannes segir hins vegar að Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og stærsti hlut­hafi Samherja, og Aðal­steinn Helgason, fram­kvæmda­stjóri Kötlu Seafood, hafi verið þeir sem lögðu lín­urnar um að greiða mút­urnar og að hann hafi ekki greitt neinar mútur án þess að fá grænt ljós frá þeim fyrst. Jóhannes lýsir sér sem „verk­færi“ í mál­inu.

„Ég greiddi engar mútur án þess að fá grænt ljós frá Þor­steini. Ég bara fékk upp­lýs­ing­arnar og ég hafði sam­band við Þorstein og sagði: Þeir hafa óskað eftir að ...“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár