Í beinni: Elmar og Bjarni Frímann flytja aríur og sönglög

Stundin sýnir beint frá Söng­skemmtun Íslensku óper­unnar.

Beint streymi Fram koma þeir Elmar Gilbertsson óperusöngvari og Bjarni Frímann Bjarnason píanóleikari og tónlistarstjóri Íslensku óperunnar.

Sunnu­dag­inn 6. sept­em­ber mun Stundin sýna beint frá Söng­skemmtun Íslensku óper­unnar í Norð­ur­ljósa­sal Hörpu, þar sem Elmar Gil­berts­son óperu­söngv­ari og Bjarni Frímann Bjarna­son píanó­leik­ari munu flytja þekktar óperu­ar­íur og sönglög.

Tón­leik­arnir hefj­ast klukkan 17 og verða sýndir beint á vef Stund­ar­innar og á Facebook-síðum Íslensku óper­unnar og Stund­ar­innar. Þá verður upp­taka til­tæk á sömu stöðum í kjöl­farið.

Eft­ir­far­andi er til­kynn­ing frá Íslensku óper­unni um við­burð­inn:

Næst­kom­andi sunnu­dag, 6. sept­em­ber kl. 17.00, munu Elmar Gil­berts­son óperu­söngv­ari og Bjarni Frímann Bjarna­son píanó­leik­ari og tón­list­ar­stjóri Íslensku óper­unnar gleðja áhorf­endur með vel þekktum aríum og sönglögum í Norð­ur­ljósum í Hörpu.

Þessa lista­menn þarf ekki að kynna en Elmar er nú fast­ráð­inn við óper­una í Stutt­gart. Hann hefur komið fram í fjöl­mörgum óperu­hlut­verkum hér heima og erlendis og fengið frá­bærar við­tökur. Elmar var kjör­inn söngv­ari árs­ins árið 2016 fyrir hlut­verk sitt sem Lensky í óper­unni Évgení Onegin í upp­færslu Íslensku óper­unnar í Hörpu.

Bjarni Frímann hefur verið Tón­list­ar­stjóri Íslensku óper­unnar frá árinu 2018 og á að baki glæsi­legan tón­list­ar­feril sem hljóm­sveit­ar­stjóri og píanó­leik­ari. Hann hefur stjórnað upp­færslum Íslensku óper­unnar á und­an­förnum árum og fengið frá­bæra dóma og við­tökur áhorf­enda. Hann hlaut Íslensku tón­list­ar­verð­launin sem Tón­list­ar­flytj­andi árs­ins 2020.

Fjar­lægð­ar­tak­mörk verða virt á tón­leik­unum skv. gild­andi til­mælum.

Miðaverð er 3.000 kr. Miðasala á harpa.is.

Við hlökkum til að sjá ykkur!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Söngskemmtun Íslensku óperunnar

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár