Kúnstpása í beinu streymi á Stundinni

Ís­lenska óper­an mun í sam­starfi við Stund­ina streyma beint frá tón­leik­um sín­um fram að jólum. Í dag munu stór­söngv­ar­inn Kristinn Sig­munds­son og píanó­leik­ar­inn Anna Guðný Guð­munds­dóttir flytja verk eftir Beethoven, Schubert, Strauss og Jón Ásgeirs­son.

Anna Guðný og Kristinn Á efnisskránni eru verk eftir Beethoven, Schubert, Strauss og Jón Ásgeirsson.

Íslenska óperan í sam­starfi við Stundina mun fram að jólum streyma beint frá tón­leikum Óper­unnar, ýmist í hádeg­inu á þriðju­dögum eða á laug­ar­dags­eft­ir­mið­dögum. Íslenska óperan hefur um ára­bil haldið úti tón­leika­röð­inni Kúnstpásu þar sem leiddir eru fram mátt­ar­stólpar í íslensku tón­list­ar­lífi í bland við unga upp­renn­andi lista­menn.

Í dag munu stór­söngv­ar­inn Kristinn Sig­munds­son og píanó­leik­ar­inn Anna Guðný Guð­munds­dóttir hefja Kúnstpás­una en um þar­síð­ustu helgi var Söng­skemmtun þeirra Elmars Gil­berts­sonar óperu­söngv­ara og Bjarna Frímanns Bjarna­sonar píanista einnig streymt.

Streymin verða aðgengi­leg á vef Stund­ar­innar og einnig á Facebook-síðum Stund­ar­innar og Íslensku óper­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Söngskemmtun Íslensku óperunnar

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár