Áslaug Arna flutt með þyrlu Land­helgis­gæslunnar úr fríi og til baka

Land­helg­is­gæslan sótti Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra úr hesta­ferð á Suð­ur­landi á fund í Reykja­vík og flutti hana svo aftur til baka. Sjald­gæft er að flogið sé með ráð­herra. Daginn eftir var til­kynnt um hópsmitið á Hótel Rangá og ráð­herra fór í smit­gát. Flug­stjór­inn reynd­ist í innri hring sama hópsmits og er nú í sótt­kví.

Áslaug Arna flutt með þyrlu Land­helgis­gæslunnar úr fríi og til baka
Áslaug Arna og faðir hennar í hesta­ferð Land­helg­is­gæslan flaug með ráð­herra úr fríi og aftur í það. Mynd: Instagram

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar sótti Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra á fimmtu­dags­morgun í hesta­ferð sem hún var í með föður sínum á Suð­ur­landi. Flogið var með hana til baka í fríið þegar fund­ur­inn var hálfn­aður.

Ásgeir Erlends­son, upp­lýs­inga­full­trúi Land­helg­is­gæsl­unnar, stað­festir þetta. Flug­stjóri þyrl­unnar er nú í sótt­kví þar sem hann reynd­ist í innri hring COVID-19 hópsmits á Hótel Rangá sem til­kynnt var um dag­inn eftir flugið. Hafði hann snætt þar helg­ina áður. Áslaug Arna var í ytri hring smits­ins eftir kvöld­verð ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar þar á þriðju­dags­kvöld.

Sjald­gæft er að Land­helg­is­gæslan fljúgi með ráð­herra og þegar það ger­ist teng­ist það oft­ast störfum stofn­un­ar­innar eða utan­rík­is­málum, svo sem heim­sóknum erlendra ráða­manna eða varnaræf­ingum. Var Áslaug Arna til dæmis við­stödd sjó­björg­unaræf­ingu í júní. Ásgeir segir að áhöfn hafi verið til staðar á fimmtu­dag vegna flugs með sér­fræð­inga Veð­ur­stof­unnar sem var á dag­skrá síðar um dag­inn. Frum­kvæðið um að bjóða ráð­herra hafi komið frá Land­helg­is­gæsl­unni, en Áslaug Arna er æðsti yfir­maður stofn­un­ar­innar í krafti emb­ættis síns.

„Við erum í góðu sam­starfi við dóms­mála­ráð­herra,“ segir Ásgeir. „Þar sem við vorum á flugi um Suð­ur­landið buðum við dóms­mála­ráð­herra að slást með í för. Það er algengt að flug með ráða­menn séu sett innan svona verk­efna eða æfingar, það er í þau fáu skiptin sem er flogið með ráða­menn.“

„Við erum í góðu sam­starfi við dóms­mála­ráð­herra“

Fund­ur­inn sem Áslaug Arna sótti í Reykja­vík var sam­ráðs­fundur Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra vegna COVID-19 far­ald­urs­ins til lengri tíma litið sem bar tit­il­inn „Að lifa með veirunni“. Fund­ur­inn var unn­inn í sam­starfi við for­sætis- og dóms­mála­ráðu­neytið, en Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra var ekki við­stödd.

Áslaug Arna var ekki meðal ræðu­manna á fund­inum. Samvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hlýddi hún á ræður, en yfir­gaf fund­inn um það leyti sem starf vinnu­hópa fór af stað. Fundinum var streymt á net­inu og fjöldi fund­ar­manna tak­mark­aður vegna sótt­varn­ar­regla.

Reyndust bæði tengd hópsmitinu á Hótel Rangá

Ásgeir stað­festir að flug­stjóri þyrl­unnar sem flutti Áslaugu Örnu sé nú í sótt­kví eftir að hafa borðað morg­un­mat ásamt eig­in­konu sinni á Hótel Rangá sunnu­dag­inn 16. ágúst. „Hann er búinn að fara í eitt próf og það kom vel út,“ segir hann.

Ásgeir segir flug­stjór­ann hafa verið í hinum svo­kall­aða „innri hóp“ sem þurfti að fara í fjórtán daga sótt­kví vegna hópsmits­ins. Ekki var talin ástæða til að prófa aðra með­limi áhafn­ar­innar eftir sam­ráð við sótt­varn­ar­yf­ir­völd, að sögn Ásgeirs. „Allir sem að koma um borð í þyrlurnar okkar þurfa að vera með grímur og hanska,“ segir Ásgeir. „Það var í þessu til­felli eins og í öðrum flugum að slíkar var­úð­ar­ráð­staf­anir voru við­hafðar. Því það skiptir miklu máli.“

Ráð­herrar úr rík­is­stjórn­inni voru hins vegar í „ytri hóp“ hópsmits­ins eftir kvöld­verð þeirra á Hótel Rangá á þriðju­dag. Tilkynnt var um hópsmitið á föstu­dag­inn og hafa ráð­herrar við­haft smit­gát síðan.

Ásgeir segir sótt­kví flug­stjór­ans því ekki tengj­ast því að hann hafi flogið með ráð­herra eftir að hún snæddi á Hótel Rangá. „Annars væri öll áhöfnin í sótt­kví,“ segir hann.

Í hestaferð fyrir og eftir Reykjavíkurflugið

Þyrlan fór í loftið frá Reykja­vík klukkan 7:00 á fimmtu­dags­morgun og sótti ráð­herra í Reyn­is­fjöru sam­kvæmt flug­skýrslu. Komið var aftur til Reykja­víkur klukkan 8:40, en fund­ur­inn á Hótel Hilton Nordica hófst klukkan 9:00. Farið var aftur í loftið klukkan 11:06, en sam­kvæmt dag­skrá var starf vinnu­hópa á fund­inum þá nýhafið. Fundinum lauk klukkan 13:00 og dvaldi því Áslaug Arna ekki nema hálfan fund­ar­tím­ann í mesta lagi. Að þessu loknu fór þyrlan og sótti sér­fræð­inga Veð­ur­stof­unnar í Húsafell í Borg­ar­firði.

Ráðherra var á Suð­ur­landi ásamt föður sínum, Sig­ur­birni Magn­ús­syni, lög­manni og stjórn­ar­for­manni útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, eins og sjá má á síðu hennar á sam­fé­lags­miðl­inum Instagram. Fóru þau meðal ann­ars að Dyr­hólaey, Hjör­leifs­höfða og Hafursey. Þurfti Áslaug Arna að hverfa snemma úr ferð­inni á föstu­dag eftir að upp­lýst var um hópsmitið á Hótel Rangá sem hún tengd­ist eftir kvöld­verð rík­is­stjórn­ar­innar á þriðju­dags­kvöld. „Það var dýr­mætt að ná smá sól og hest­baki með pabba þó það hafi orðið stutt í báða enda,“ skrif­aði hún á Instagram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár