Talið að um íkveikju hafi verið að ræða

Flest bendir til að um íkveikju hafi verið að ræða þegar kviknaði í þriggja hæða húsi á Bræðra­borgar­stíg í gær. Þrír eru látnir og tveir á gjörgæslu. Einn er í haldi lögreglu vegna málsins.

Þrír eru látnir eftir brunann á horni Bræðra­borgar­stígs og Vestur­götu í gær. Tveir eru eru á gjörgæslu­deild Land­spítalans og samkvæmt heimildum Stundarinnar er að minnsta kosti annar þeirra mjög alvarlega slasaður og í bráðri lífshættu. Ennfremur herma heimildir Stundarinnar að flest bendi til að um íkveikju hafi verið að ræða.

Samkvæmt tilkynningu frá Lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu eru þrír látnir eftir brunann sem kom upp í húsinu um miðjan dag í gær. Eftir því sem Stundin kemst næst mun einn þeirra þriggja vera manneskja sem hoppaði út um glugga á þriðju hæð hússins í tilraun til að bjarga sér frá eldinum. Hinir tveir sem létust munu annars vegar hafa verið staddir á annarri hæð hússins og hins vegar á þriðju hæð. Slökkviliðs­menn þurftu frá að hverfa í leit að mönnunum vegna aðstæðna í húsinu en slökkviliðs­menn voru í hættu vegna hruns af efri hæðum og af þaki en einnig sökum hættu á að gólf kynni að hrynja undan þeim.  

Flest bendir til þess að um íkveikju hafi verið að ræða og líklega mun eldurinn hafa komið upp á annarri hæð hússins. Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðs­stjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarssvæðisins, sagði í Morgun­útvarpi Rásar 2 í morgun að það hefði komið mönnum hans á óvart hversu mikill eldurinn var orðinn og hversu hratt hann breiddist út, þegar þeir komu á staðinn.

Tvennt eru á gjörgæslu eftir brunann og mun annað þeirra vera í bráðri lífshættu. Einn hefur verið útskrifaður af sjúkra­húsi. Tveir voru hand­teknir á vettvangi fyrir að hlýða ekki fyrir­mælum lögreglu en sleppt eftir skýrslu­tökur. Einn er í haldi lögreglu í þágu rann­sóknar á elds­voðanum. Ákvörðun um hvort krafist verði gæslu­varðhalds yfir manninum verður tekin síðar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Bræðraborgarstígur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár