Engeyingar og fleiri að baki smávirkjunum víða um land

Franski olíu­risinn Total á fjórðungs­hlut í raforku­fyrirtæki sem lykilmenn úr GAMMA og kjörnir fulltrúar úr Sjálfstæðis­flokknum koma að. James Ratcliffe seldi fyrir­tækinu virkjunar­rétt sinn í Þverá. Vara­þingmaður segir virkjun árinnar munu rústa ósnortinni náttúru.

Benedikt Einarsson og Einar Sveinsson
Benedikt Ein­ars­son og Einar Sveins­son Benedikt er stjórn­ar­for­maður Arctic Hydro, en hann situr einnig í stjórn fjöl­skyldu­fyr­ir­tækis Eng­ey­inga, Kynn­is­ferða. fjöldi kjör­inna full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru í hlut­hafa­hópi Arctic Hydro.

Franskur olíurisi, Engeyingar, fyrr­verandi efnahags­ráðgjafi fjármála­ráðherra og fyrr­verandi stjórn­endur úr GAMMA eru á bak við félag sem stendur að smávirkjunum víða um land. Orku­stofnun hefur lagt áherslu á uppbyggingu slíkra virkjana undan­farin ár til að efla raforku­öryggi í dreifðum byggðum.

Félag þessara aðila heitir Arctic Hydro og er með fjölda virkjana í vinnslu sem flestar teljast til smávirkjana. Eitt þessara verkefna er Þverár­virkjun í Vopna­firði sem verður 6 MW að afli. Vopna­fjarðar­hreppur vinnur nú að breytingum á skipulagi vegna hennar, en niður­staða frummats­skýrslu var sú að áhrif framkvæmdarinnar á ásýnd og gróður yrðu nokkuð neikvæð, sem og stað­bundin áhrif á jarð­myndanir og áhrif á vatnalíf í Þverá. Önnur umhverfis­áhrif voru talin óveruleg.

„Í rauninni hefur maður verið með varann á frá upphafi því saga sveitar­stjórna og hrepps­nefnda á lands­byggðinni er þannig að það koma menn að sunnan sem vilja virkja eða gera eitthvað annað og þá segja allir …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár