Fyrirtæki í eigu framkvæmdstjóra hjá HR fékk tugmilljónasamning við uppbyggingu Háskólagarða

Fyr­ir­tækið Selós smíðar og setur upp inn­rétt­ingar í Háskóla­garða sem nú rísa við Háskól­ann í Reykja­vík. Fram­kvæmda­stjóri rekstrar hjá HR á þriðj­ungs­hlut í Selósi ásamt eig­in­manni sínum sem jafn­framt stýrir fyr­ir­tæk­inu. Taldi að það kæmi sér eða HR ekki við þar eð Selós væri und­ir­verk­taki.

Fyrirtæki í eigu framkvæmdstjóra hjá HR fékk tugmilljónasamning við uppbyggingu Háskólagarða
Tengsl við verk­taka­fyr­ir­tæki Ingunn Svala, fram­kvæmda­stjóri rekstrar hjá HR og stjórn­andi Grunn­stoðar, á þriðj­ungs­hlut ásamt manni sínum, Einari Gunnari, í Selósi sem vinnur nú að því að setja upp inn­rétt­ingar í stúd­enta­garða HR. Mynd: Freyja Gylfadóttir

Fyr­ir­tækið Selós ehf., sem er að hluta í eigu Ingunnar Svölu Leifs­dóttur, fram­kvæmda­stjóra rekstrar hjá Háskól­anum í Reykja­vík, fékk samn­ing um tug­millj­óna verk­efni við að útvega inn­rétt­ingar og setja þær upp í nýjum stúd­enta­görðum háskól­ans. Samn­ing­ur­inn sem Selós gerir er við verk­taka­fyr­ir­tækið Jáverk, sem fékk verk­efnið á grund­velli alút­boðs sem Grunn­stoð ehf., dótt­ur­fé­lags Háskól­ans í Reykja­vík, stóð fyrir árið 2017. Ingunn Svala situr ein í fram­kvæmda­stjórn Grunn­stoða og er jafn­framt pró­kúru­hafi félags­ins. „Það var tekin ákvörðun um að það kæmi okkur ekki við, eða HR ekki við, þar sem við værum ekki með beina samn­inga við Selós,“ segir Ingunn Svala.

Grunn­stoð ehf. heldur utan um bygg­ingar Háskól­ans í Reykja­vík og sér um upp­bygg­ingu þeirra, leigu og not. Útboð vegna upp­bygg­ingar Háskóla­garða HR fór fram árið 2017 og buðu fjögur verk­taka­fyr­ir­tæki í verkið, Íslenskir aðal­verk­takar, Munck, ÞG Verk og Jáverk, og var til­boði síð­ast­talda fyr­ir­tæk­is­ins tekið. Um svo­kallað alút­boð var …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár