Högnuðust um 3 milljarða og kaupa eigin bréf

Hagar greiða ekki arð vegna Covid-19 en heim­ila eigin kaup á allt að 10 pró­sent af hlutfé félag­ins næstu miss­eri. Félagið hefur keypt eigin bréf fyrir hund­ruð millj­óna á meðan neyð­ar­stig almanna­varna hefur verið í gildi. Starfs­lok tveggja stjórn­enda kosta 314,5 millj­ónir króna.

Högnuðust um 3 milljarða og kaupa eigin bréf
Finnur Árnason Frá­far­andi for­stjóri hefur verið með í kringum 7 millj­ónir í heild­ar­laun á mán­uði.

Hagar munu ekki greiða hlut­höfum sínum arð vegna síð­asta rekst­ar­árs í ljósi aðstæðna í þjóð­fé­lag­inu, en munu kaupa eigin bréf næstu miss­eri fyrir allt að 10 pró­sent af heild­ar­hlutafé félags­ins. Slík end­ur­kaup koma oft í stað arð­greiðslna sem aðferð til að skila hagn­aði til hlut­hafa fyr­ir­tækj­anna. Hagar er eitt þeirra fyr­ir­tækja sem hafa keypt eigin bréf frá því að neyð­ar­stigi almanna­varna var lýst yfir, eða fyrir tæpar 300 millj­ónir króna á tíma­bil­inu 6. mars til 6. maí. Á sama tíma nýtti félagið hluta­bóta­leið stjórn­valda, en nú hefur verið ákveðið að end­ur­greiða þann stuðn­ing.

Hagar lögðu fram árs­reikn­ing sinn í gær ásamt fleiri gögnum í aðdrag­anda aðal­fundar félags­ins sem fer fram 9. júní næst­kom­andi. Upp­gjörsár Haga er með öðrum hætti en margra félaga, en því lýkur í febr­úar í stað des­em­ber. Hagnaður félags­ins á rekst­ar­ár­inu nam 3 millj­örðum króna og hækk­aði úr 2,3 millj­örðum á síð­asta rekst­ar­ári. Síðan þá hefur félagið keypt tvö önnur félög og sam­an­burður milli ára því erf­iður. Samkvæmt arð­greiðslu­stefnu félags­ins á að greiða minnst helm­ing hagn­aðar hvers árs í arð, sem hefði nú numið 1,5 millj­örðum króna  ef arð­greiðsla hefði verið sam­þykkt.

Hagar reka meðal ann­ars Bónus, Hagkaup, Olís, Útilíf, Zöru og fjölda vöru- og dreif­ing­ar­fyr­ir­tækja, svo fátt eitt sé nefnt. Félagið eign­að­ist í fyrra allt hlutafé í fast­eigna­fé­lag­inu DGV ehf. og Olíuverzlun Íslands hf., sem rekur bens­ín­stöðvar Olís. Stærstu hlut­hafar Haga eru líf­eyr­is­sjóð­irnir, en útgerð­ar­fé­lagið Samherji eign­að­ist 9,26 pró­senta hlut í félag­inu á árinu.

Eins og áður segir höfðu Hagar keypt eigin bréf fyrir tæpar 300 millj­ónir króna frá 6. mars til 6. maí. End­ur­kaupa­á­ætlun félags­ins var hrint í fram­kvæmd 28. febr­úar, sex dögum áður en neyð­ar­stigi var lýst yfir. Hefur félagið keypt eigin bréf fyrir megnið af þeirri upp­hæð sem áætl­unin segir til um, sem er alls hálfur millj­arðar króna.

Í árs­reikn­ingnum kemur fram að laun Finns Árna­sonar, frá­far­andi for­stjóra, hafi lítið breyst frá síð­asta rekst­ar­ári. Námu þau um 6,9 millj­ónum króna á mán­uði með hlunn­indum og mót­fram­lagi í líf­eyr­is­sjóð. Nemur það um 21-földum lág­marks­launum sam­kvæmt lífs­kjara­samn­ingnum.

Tilkynnt var um það nýlega að Finnur mundi láta af störfum og nýr for­stjóri yrði Finnur Oddsson, sem und­an­farin ár hefur stýrt Origo. Einnig lætur af störfum Guð­mundur Mart­eins­son, fram­kvæmda­stjóri Bónus. „Fjár­hags­leg áhrif starfs­lokanna munu koma fram á fyrsta árs­fjórð­ungi rekstr­ar­árs­ins 2020/21 og eru þau áætluð í heild, með launa­tengdum gjöldum, um 314,5 millj. kr.“ segir í árs­reikn­ingnum.

„Ekki er gert ráð fyrir að nýta þurfi önnur úrræði sem í boði eru“

Fjallað er sér­stak­lega um áhrif Covid-19 far­ald­urs­ins í árs­reikn­ingnum, en þau höfðu ekki komið fram á síð­asta rekst­ar­ári. Búist er við miklum áhrifum á fyrsta árs­fjórð­ung hins nýja, frá mars til maí, sem nú er að ljúka. „Þá var úrræði rík­is­stjórn­ar­innar hvað varðar hluta­bóta­leið nýtt að mjög litlu leyti en tekin var ákvörðun þann 8. maí að end­ur­greiða allan þann kostnað aftur til Vinnu­mála­stofn­unar, eða 36 millj. kr.“ segir í árs­reikn­ingnum. „Ekki er gert ráð fyrir að nýta þurfi önnur úrræði sem í boði eru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár