Stór heildverslun setur 27 starfsmenn á hlutabætur: Eigandinn fékk tæpan hálfan milljarð í arð árin 2017 og 2018

Ein stærsta heild­verslun landsins, Innnes, ákvað að nýta hluta­bótaleiðina til að forðast uppsagnir. Forstjórinn undir­strikar að fyrir­tækið hafi eingöngu nýtt sér tilmæli stjórn­valda. Innnes og eigandi þess, Dalsnes ehf., eru mjög sterk fjárhags­lega.

Segir fyrirtækið komið inn á að beini
Segir fyr­ir­tækið komið inn á að beini Magnús Óli Ólafsson, for­stjóri Innnes, segir að fyr­ir­tækið sé næstum komið inn að beiðni þrátt fyrir notk­un­ina á hluta­bóta­leið­inni.

Ein stærsta heild­verslun landsins, Innnes ehf, nýtir hluta­bótaleiðina fyrir hluta starfs­fólks síns. Samtímis hafa laun æðstu stjórn­enda félagsins ekki verið lækkuð. Tæplega 200 manns vinna hjá heild­versluninni.

Innnes er umboðs­aðili fyrir fjölda þekktra vöru­merkja á matvæla- og sælgætis­sviðinu, meðal annars Heinz, Daim, Hunt's. Anton Berg, Fazer og Blue Dragon.

Félagið var með tæplega 9,3 milljarða króna tekjur árið 2018 og skilaði 330 milljóna króna hagnaði það ár en tæplega 200 milljóna hagnaði árið á undan. Eiginfjár­staða félagsins - eignir mínus skuldir - var þá tæplega 1.800 milljónir króna. Árið 2017 greiddi Innes út 200 milljóna króna arð til eigandans, Dalsnes ehf., en engan arð 2018. Á þessum sömu tveimur árum greiddi Dalsnes út nærri hálfan milljarð króna í arð til hluthafa síns, Ólafs Björns­sonar athafna­manns.

Forstjórinn: Tilmæli stjórnvalda

Heild­verslunin Innnes var stofnuð árið 1987 af meðal annars forstjóranum Magnúsi Óla Ólafssyni sem hefur lýst uppgangi …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár