28 virkum dögum seinna

Vaxandi hópur Banda­ríkja­manna tekur þátt í mót­mælum gegn sam­komu­banni og öðrum fyr­ir­byggj­andi aðgerðum vegna kór­óna­veirunnar. Þeir virð­ast njóta stuðn­ings Donalds Trump for­seta og er hann sak­aður um að hvetja til upp­reisnar í ríkjum þar sem Demókratar eru við völd. Trump er mikið í mun að koma hag­kerf­inu aftur í gang fyrir kom­andi kosn­inga­bar­áttu, þrátt fyrir gríð­ar­legt og hratt vax­andi mann­fall af völdum veirunnar vest­an­hafs.

Mótmælendur
Mót­mæl­endur Flestir mót­mæl­endur gegn sam­komu­bann­inu eru gall­harðir stuðn­ings­menn for­set­ans og vitna í orð hans um að með­alið ætti aldrei að vera verra en sjúk­dóm­ur­inn. Mynd: afp

Ekkert land hefur orðið jafn illa fyrir barð­inu á COVID-19 og Banda­ríkin. Þegar þetta er skrifað eru stað­fest til­felli komin vel yfir 800 þús­und (marg­falt fleiri en í nokkru öðru landi) og dauðs­föll minnst 45 þús­und, sem einnig er mun hærri tala en við sjáum í öðrum löndum. Þrátt fyrir það hafa þús­undir Banda­ríkja­manna í minnst tólf ríkjum tekið þátt í mót­mælum gegn fyr­ir­mælum sótt­varna­yf­ir­valda um sam­göngu­bann og aðrar tak­mark­anir til að hefta útbreiðslu sjúk­dóms­ins. 

Í Michigan, Texas, Ohio og mörgum öðrum ríkjum hafa hópar skipu­lagt mót­mæla­að­gerðir til að krefj­ast þess að versl­anir, kirkjur og aðrir fjöl­farnir staðir verði opn­aðir á ný. Auk þess að koma saman fyrir utan opin­berar bygg­ingar hafa aðrir notað öku­tæki sín til að reyna að stöðva umferð og jafn­vel eru dæmi um að þeir hafi heft för sjúkra­bíla og ann­arrar neyð­ar­þjón­ustu til að koma skila­boðum sínum á fram­færi. Þegar for­seti Banda­ríkj­anna var spurður hvort …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár