22 létust á einum degi í Svíþjóð: Sænsk stjórnvöld vænd um fórna mannslífum með stefnu sinni

62 ein­stak­lingar eru nú látnir í Svíþjóð út af kór­óna­veirunni. Sænsk stjórn­völd hafa verið gagn­rýnd fyrir stefnu sína gegn kór­óna­veirunni sem meðal ann­ars gengur út á að byggja upp hjarð­ó­næmi hjá sænsku þjóð­inni. Sænskir vís­inda­menn hafa kallað stefn­una „kalkúler­aða“ og „kald­lynda“ á meðan sótt­varn­ar­læknir rík­is­ins segir að það geti vel farið saman að vernda gamla og veika fyrir veirunni að reyna að ná hjarð­ó­næmi sam­tímis.

22 létust á einum degi í Svíþjóð: Sænsk stjórnvöld vænd um fórna mannslífum með stefnu sinni
Hjarð­ó­næm­is­hug­myndin er góð Anders Tegnell, smt­sjúk­dóma­læknir sænska rík­is­ins, segir að hug­myndiin um hjarð­ó­næmi sé góð og að það sé ekki mót­sögn að vinna með þá hug­mynd sam­tímis og hug­mynd­ina um að tak­marka smit­hættu meðal aldr­aðra og sjúka.

Alls lét­ust 22 ein­stak­lingar vegna kór­óna­veirunnar í Svíþjóð í gær og aldrei hafa eins margir fallið frá á einum degi frá því að útbreiðsla kór­ónu­veirunnar hófst í land­inu. Fyrsta dauðs­fallið í Svíþjóð út af kór­óna­veirunni átti sér stað þann 11. mars og hafa dag­leg and­lát vegna veirunnar verið undir 10 allt þar til í fyrra­dag þegar 13 lét­ust. Þessi tala snar­hækk­aði svo frá þriðju­degi til mið­viku­dags og fór upp í 22 and­lát á einum degi. 62 ein­stak­lingar hafa nú lát­ist í Svíþjóð vegna kór­óna­veirunnar.  Með­al­aldur þeirra sem lát­ist hafa er svip­aður og í öðrum löndum, eins og Ítalíu til dæmis, rúm­lega 80 ár. 

Á sama tíma og tíðni dauðs­falla hefur auk­ist aukast stað­fest smit veru­lega á milli daga í Svíþjóð. Staðfest smit í Stokk­hólmi juk­ust til að mynda um 11 pró­sent á milli þriðju­dags og mið­viku­dags, eða um meira en 100, og stað­fest smit í land­inu juk­ust um 227. Tekið skal fram að um er ræða stað­fest smit, þar sem stjórn­völd í Svíþjóð hafa ekki þá stefnu að prófa sem flesta heldur ein­göngu þá sem eru það sjúkir að þeir þurfa að leita sér lækn­is­að­stoðar. Staðfest smit í Svíþjóð eru enn sem komið er 2.562, þar af 1.070 í Stokk­hólmi.

Til sam­an­burðar eru stað­fest kór­óna­veirusmit á Íslandi 737 en íbúa­fjöld­inn á Íslandi er um það bil 1/30 af íbúa­fjölda Sví­þjóðar. Þar af leið­andi má nán­ast full­yrða að stað­fest smit í Svíþjóð séu veru­lega van­metin. 

22 lét­ust í gærGrafið sýnir útbreiðslu stað­festra til­fella af Covid í Svíþjóð og fjöldi lát­inna dag frá degi.

„En þetta er ansi kald­lynd stefna þar sem fórn­ar­kostn­að­ur­inn felur í sér að mörg hund­ruð, ef ekki þús­und, ein­stak­lingar munu láta lífið“

Gagnrýni á stefnu stjórnvalda

Gagn­rýnin umræða fer nú fram í Svíþjóð um stefnu stjórn­valda gegn kór­óna­ver­iunni. Sá sem verður helst fyrir þeirri gagn­rýni er Anders Tegnell, sótt­varn­ar­læknir sænska rík­is­ins. Tegnell hefur sagt að höf­uð­mark­mið sænskra heil­brigð­is­yf­ir­valda sé ekki að byggja upp hjarð­ó­næmi hjá Svíum með því að leyfa veirunni að dreifa sér meðal yngra fólks og eða heil­brigð­ara sem ætla megi að verði ekki mjög veikt af henni. „Meg­in­mark­mið snýst ekki um það [hjarð­ó­næmi] heldur er meg­in­taktíkin að smitin dreif­ist hægt og yfir langt tíma­bil og að álag á sjúkra­húsin verði ekki of mikið. Þessi tvö mark­mið eru í mót­sögn við hvort annað […] Sem hug­mynd er hjarð­ó­næmi mjög góð,“ sagði Tegnell við Svenska Dag­bla­det þann 15. mars þegar þrír Svíar höfðu lát­ist úr COVID-19. 

Tegnell var með orðum sínum að svara mati fyr­ir­renn­ara síns í emb­ætti sótt­varn­ar­læknis, Anniku Linde, sem sagði að stefnan byggði sann­ar­lega á hjarð­ó­næm­is­hug­mynd­inni. „Ég skil stefnu heil­brigð­is­yf­ir­valda þannig að verið sé að reyna að ná hjarð­ó­næmi, að eins margir eigi að smit­ast og mögu­legt er og þar með verða ónæmir fyrir veirunni, án þess þó að verða fár­sjúkir. Þá er mik­il­vægt að lengja það tíma­bil sem ætla má að fólk smit­ist og gæta þess að ekki of margir verði sjúkir sam­tímis til að álagið á heil­brigð­is­kerfið verði ekki of mikið,“ sagði Linde við Svenska Dag­bla­det fyrr í mars. 

Bretland, eða rík­is­stjórn Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra, var með hjarð­ó­næm­is­hug­mynd­ina sem opin­bera stefnu sína til að berj­ast gegn kór­óna­veirunni þar til skýrsla háskóla í Englandi sýndi fram á að stefnan gæti leitt 250 þús­und dauðs­falla. Þá breytti breska rík­is­stjórnin um stefnu. 

Áhrif á daglegt líf minni

Stefna stjórn­valda í Svíþjóð, sem vakið hefur eft­ir­tekt langt út fyrir land­stein­anna, virð­ist með öðrum vera að ná hjarð­ó­næmi meðal þjóð­ar­innar en þetta er talið þýða að viss hluti þjóð­ar­innar verði þar með ónæmur fyrir veirunni til fram­tíðar, geti ekki fengið hana aftur og geti þar af leið­andi ekki verið smit­berar fyrir hana. Þessi taktík stjórn­valda byggir líka á því að hugs­an­legt sé að veiran breið­ist út aftur í haust og ef hjarð­ó­næmi næst nú þá verði tjónið af þeirri útbreiðslu ekki eins mikið í fram­tíð­inni. 

Svíþjóð hefur valið að ganga ekki eins langt í aðgerðum til að sporna gegn útbreiðslu veirunnar og flest önnur lönd í Evrópu hafa gert. Útbreiðsla kór­óna­veirunnar hefur enn sem komið er haft minni áhrif á dag­legt líf í Svíþjóð en í lönd­unum í nágranna­lönd­unum Noregi og Danmörku til dæmis.  Svíar hafa í raun ekki fylgt þeim til­lögum sem Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin (WHO) hefur sett fram til að berj­ast gegn útbreiðslu kór­óna­veirunnar. 

Sam­komu­bannið í Svíþjóð mið­ast til dæmis ennþá bara við 500 manns, á meðan það mið­ast til dæmis við 2 í Þýska­landi og 20 á Íslandi; leik­skólar og skólar eru ennþá opnir þó fram­halds­skólar og háskólar hafi tekið upp fjar­kennslu en til sam­an­burðar var grunn- og leik­skólum í Finn­landi loks lokað á mið­viku­dag­inn; lík­ams­rækt­ar­stöðvar og sund­laugar eru ennþá opnar og er stærsta lík­ams­rækt­ar­stöð Norð­ur­land­anna, SATS, til dæmis að opna aftur í dag eftir að hafa verið lokuð í tæpar tvær vikur. 

Kannski best að gera ekki neittKári Stef­áns­son er gagn­rýn­inn á stefnu sænskra stjórn­valda út af Covid en vonar að hann hafi rangt fyrir sér og að kannski sýni það sig að best sé að gera ekki neitt til að verj­ast smit­hætt­unni.

Lokanir og eða hjarðónæmi?

Hópur vís­inda­manna birti í gær opið bréf til rík­is­stjórn­ar­innar í Svíþjóð þar sem skorað var á hana að taka upp harð­ari varn­ar­að­gerðir gegn útbreiðslu veirunnar. Meðal ann­ars var skorað á stjórn­ina að gera fleiri próf­anir á mögu­lega sýktum ein­stak­lingum í stað þess að ein­göngu prófa þá sem eru það sjúkir að þeir þurfa að leita sér lækn­is­að­stoðar, sem og heil­brigð­is­starfs­fólk. 

Kjarninn í gagn­rýni margra á stefnu stjórn­valda er að stefna þeirra sé í raun að byggja upp hjarð­ó­næmi fyrir kóró­an­veirunni hjá sænsku þjóð­inni sam­tímis og að áhættu­hópar eins og gam­alt og lang­veikt fólk með við­kvæm ónæm­is­kerfi eru varðir fyrir veirunni með aðgerðum. Skorað er á eldri borg­ara og fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma að halda sig heima hjá sér sem og þá sem finna fyrir minnstu flensu­ein­kennum. Gagn­rýnin byggir því á að stjórn­völd séu með tví­þætta stefna að þessu leyti og séu í reynd að stíla um of inn á hjarð­ó­næm­isnálg­un­ina án þess að það sé opin­ber­lega sagt. 

Einn af vís­inda­mönn­unum sem skrif­aði opna bréfið til sænsku stjórn­ar­innar segir til dæmis um þetta við sænska blaðið Dagens Nyheter: „Við fáum það á til­finn­ing­una að stjórn­völd vilji að smit dreifi sér til að ónæmi gegn smitum náist. En þetta er ansi kald­lynd stefna þar sem fórn­ar­kostn­að­ur­inn felur í sér að mörg hund­ruð, ef ekki þús­und, ein­stak­lingar munu láta lífið,“ segir mað­ur­inn, Olle Kampe, ónæm­is­fræð­ingur við Karol­inska Institu­tet í Stokk­hólmi. 

Annar vís­inda­maður sem hefur gagn­rýnt stefnu sænskra stjórn­valda er Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, sem hefur sagt að stefna yfir­valda þar í landi gangi út á að gera ekki neitt. Kári gagn­rýnir Svía fyrir að gera ekki fleiri próf­anir á íbúum til að athuga hvort þeir séu með sjúk­dóm­inn og að með þessu sé Svíþjóð ekki að gera nóg til að hamla útbreiðslu veirunnar.  „Vonandi mun ég þurfa að taka gagn­rýni mína á Svíþjóð til baka. Kannski er rétt að gera bara ekki neitt, það krefst líka ákveð­ins þors,“ sagði Kári við sænska rík­is­út­varpið fyrir nokkrum dögum. 

Forsíða FokusForsíða sænska tíma­rits­ins Fókus súmmerar ágæt­lega upp umræð­una um stefnu Sví­þjóðar í Coviid-bar­átt­unni. Sumir vís­inda­menn vilja meina að stfenan byggi öðrum þræði á hag­rænum áhyggjum á meðan sænski sótt­varn­ar­lækn­ir­inn seigr að stefnan byggi ein­göngu á umhyggju fyrir heild­ar­heilsu þjóð­ar­innar.

Peningana eða lífið? 

Annar vís­inda­maður, smit­sjúk­dóma­fræð­ing­ur­inn Joachim Rocklöv, sem er pró­fessor við Háskól­ann í Umeå, hefur spurt þeirrar spurn­ingar í lok­uðum umræðu­hópi sem sænskir fjöl­miðlar fengu aðgang að hvort þessi stefna stjórn­valda byggi á efna­hags­legum for­sendum; hvort mark­miðið sé frekar að vernda sænskt atvinnu­líf en að bjarga manns­lífum. „Þýðir þetta að þetta er kalkúleruð nið­ur­staða sem rík­is­stjórnin og land­lækn­is­emb­ættið hafa kom­ist að í sam­ein­ingu og þeim finnst bara í lagi? Hversu mörgum manns­lífum eru þeir til­búnir að fórna í stað þess að loka sam­fé­lag­inu alveg með til­heyr­andi áhættu fyrir efn­hags­lífið í land­inu?“

Anders Tegnell hefur vísað þeirri gagn­rýni á bug að stofn­unin sem hann stýrir taki efn­hags­leg atriði inn í mynd­ina þegar stefna gegn kór­óna­veirunni er metin. „Við höfum alla tím­ann unnið hörðum höndum að því að heilsa þjóð­ar­innar sé sem best. Að hugsa um efna­hags­lífið er hlut­verk ann­arra,“ sagði Tegnell við sænska rík­is­út­varpið fyrir nokkrum dögum.

Hann sjálfur hefur sagt þá felst ekki mót­sögn í því að vinna með báðar hug­mynd­irnar sam­tímis, að tak­marka áhrifin af veirunni á gam­alt fólk og sjúkt með vissum aðgerðum, á sama tíma og stílað er inn á að hjarð­ó­næmi náist. Tegnell hafnar því hins vegar alfarið að þessi taktík hafi eitt­hvað með efna­hags­leg sjón­ar­mið að gera og hefur heldur eng­inn sýnt fram á að heil­brigð­is­yf­ir­völd í Svíþjóð taki hag­ræna þætti með í reikn­ing­inn í aðgerðum sínum. 

„Enginn getur með full­vissu sagt hvaða leið er best.“

Svarið liggur í framtíðinni

Alveg ljóst er hins vegar að til skamms tíma þá hefur stefna stjórn­valda í Svíþjóð skárri áhrif á sænskt efna­hags­líf en að loka sam­fé­lag­inu alveg eða nær alveg eins, og gert hefur verið í mörgum Evr­ópu­löndum. En hvort þetta sé rétt taktík er erfitt að segja á þess­ari stundu. Vegna þessa hefur einn af gagn­rýndendum stefn­unnar, stærð­fræði­pró­fess­or­inn Magnus Carlsson sagt að sænsk stjórn­völd séu að spila „rúss­neska rúl­lettu“ með mannslíf vegna þess­arar stefnu sinnar. 

En hver hefur rétt fyrir sér? Á þess­ari stundu er ekki hægt að full­yrða neitt um það. Kannski mun tím­inn leiða í ljós að Anders Tegnell og Svíar eru að gera rétt með þess­ari stefnu sinni, eins og til dæmis Kári Stef­áns­son úti­lokar ekki.

Í við­tali við Svenska Dag­bla­det í dag segir þýski pró­fess­or­inn Gérard Krause, sem er sér­fræð­ingur í smit­sjúk­dómum, að ómögu­legt sé að segja til um þetta núna. „Enginn getur með full­vissu sagt hvaða leið er best. En sænska leiðin getur verið árang­urs­rík. Þá verður sam­fé­lagið hins vegar að sætta sig við að mann­eskjur muni deyja vegna smits­ins. [...] Ef sam­fé­lagið sam­þykkir þetta og sættir sig við það sam­tímis að stór hluti þjóð­ar­innar smit­ist og verði ónæmur þá getur heild­ar­stefnan vel virkað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár