Það áttu allir eitthvað í honum

Einar Örn Magn­ús­son, langa­fa­barn Ragga Bjarna, minn­ist hans með hlýju og þakk­læti. Yfir sex­tíu ára ald­urs­munur á þeim lang­feðg­unum kom ekki í veg fyrir að á milli þeirra varð djúp vin­átta og Einar seg­ist hafa lært mikið af langafa sínum í leik og starfi. Raggi var mik­ill fjöl­skyldu­maður og elskaði rjóma.

Það áttu allir eitthvað í honum
Í faðmi fjöl­skyld­unnar Lang­feðgarnir sungu og spil­uðu saman, bæði opin­ber­lega og við ýmis per­sónu­leg tæki­færi, einkum í reglu­legum pönnu­köku­boðum á heim­ili for­eldra Einars þar sem hann segir að langafi sinn hafi verið óspar á rjómann á pönnu­kök­urnar, enda mik­ill sæl­keri. Mynd: Aðsend

Ragnar Bjarna­son. Raggi Bjarna. Hann stóð á svið­inu í meira en sjö ára­tugi, skemmti, gladdi, söng og spil­aði. Í fari hans bjó eitt­hvað óút­skýr­an­legt sem gerði það að verkum að allri íslensku þjóð­inni fannst að hún hefði misst ein­hvern nákom­inn þegar fregnir bár­ust af and­láti hans 25. febr­úar síð­ast­lið­inn. 

Einar Örn Magn­ús­son, laga­nemi í Háskóla Íslands og barna­barna­barn Ragga, segir að hrein­skilni og ein­stök hlýja hafi ein­kennt langafa hans. „Hann var svo hrein­skil­inn. Þess vegna náði hann svona vel til fólks,“ segir Einar. Þeir lang­feðgarnir sungu og spil­uðu saman, bæði opin­ber­lega og við ýmis per­sónu­leg tæki­færi, meðal ann­ars í reglu­legum pönnu­köku­boðum á heim­ili for­eldra Einars þar sem hann segir að langafi sinn hafi notið sín vel og verið óspar á rjómann á pönnu­kök­urnar. „Hann var mik­ill sæl­keri, hann „lá í rjóm­anum“ og elskaði að vera með fjöl­skyld­unni.“ 

Einar, sem er 21 árs, segir að 64 ára ald­urs­munur hafi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár