Forsvarsmaður undirverktaka við Héðinshúsið segist ekki hafa grunað neitt

Tíu ein­stak­lingar hafa verið hand­teknir við bygg­ingu hót­els í Vesturbæ Reykja­víkur í tveimur aðgerðum lög­reglu á síð­ustu fjórum mán­uðum. Sami ein­stak­lingur bar ábyrgð á starfs­mönn­unum í báðum málum. Hann segir í gegnum lög­fræð­ing sinn að ekki hafi verið ástæða til að gruna þá um óheið­ar­leika.

Forsvarsmaður undirverktaka við Héðinshúsið segist ekki hafa grunað neitt

Í tvígang á síð­ustu fjórum mán­uðum hefur lög­regla gert rassíu í Héð­ins­hús­inu við Seljaveg í Reykja­vík og hand­tekið tíu manns sem voru þar að störfum sem voru ekki með atvinnu­leyfi hér á landi. Allir menn­irnir voru þar á ábyrgð tveggja verk­taka­fyr­ir­tækja sem er stjórnað af sama ein­stak­lingi. Hann seg­ist í gegn um lög­mann sinn ekki vilja ræða ein­stök efn­is­at­riði, en að ekki hafi verið ástæða til að gruna menn­ina um óhreint mjöl í poka­horn­inu og að fyr­ir­tækið hafi ekki komið nærri hing­að­komu þeirra til lands­ins.

CenterHotels reisa nýtt hótel í Héð­ins­hús­inu en fram­kvæmda­stjóri hót­el­keðj­unnar segir að svona mál komi víðar fyrir og að það sé til­viljun að þetta sé að ger­ast aftur hjá þeim á ábyrgð sama aðila.

Samkvæmt lög­reglu voru tveir ein­stak­lingar hand­teknir 12. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, en hvor­ugur þeirra var með atvinnu­leyfi. Hinn 21. jan­úar voru átta til við­bótar hand­teknir í aðskil­inni aðgerð, en þeir voru allir grun­aðir um að fram­vísa fölsuðum skil­ríkjum til að fá atvinnu­leyfi hér á landi. Ein­stak­lingar með rík­is­fang utan Evrópska efna­hags­svæð­is­ins þurfa sér­stakt atvinnu­leyfi til að fá kenni­tölu og atvinnu­leyfi hér á landi. Átt­menn­ing­arnir munu því hafa fram­vísað fölsuðum skil­ríkjum til að kom­ast hjá því.

Lög­reglan átti frum­kvæði að aðgerð­inni eftir að Þjóðskrá til­kynnti mögu­legt brot. Stór hópur lög­reglu­manna mætti í Héð­ins­húsið fyrir hádegi 21. jan­úar með eft­ir­lits­að­ilum á vegum Rík­is­skatt­stjóra, Vinnu­eft­ir­lits­ins og Vinnu­mála­stofn­unar. Auk þeirra átta ein­stak­linga sem hand­teknir voru, var níu öðrum vísað af vinnu­svæð­inu þar sem þeir báru ekki við­eig­andi skil­ríki á sér, en þeir fengu allir á end­anum að snúa aftur til vinnu.

Sami ábyrgðarmaður í báðum handtökum

CenterHotels vinnur að bygg­ingu nýs hót­els við Héð­in­húsið, en bygg­ingin hefur áður hýst vél­smiðju, leik­hús og íþrótta­sal. Eft­ir­lits­full­trúar stétt­ar­fé­lag­anna hafa ítrekað átt erindi þangað og hefur blaða­maður fylgt full­trú­unum í tvær slíkar eft­ir­lits­heim­sóknir. Í þeirri fyrri sá blaða­maður meðal ann­ars að örygg­is­reglur voru ekki virtar, og í þeirri seinni sagði starfs­maður að hann fengi hvorki launa­seðla fyrir vinnu sína né borgað frí eða yfir­vinnu.

„Þegar ég bað yfir­mann minn um launa­seðil þá sagði hann mér að sætta mig við stöð­una eða að fara aftur heim,“ sagði hann blaða­manni og við­stöddum eft­ir­lits­full­trúum. „Ég er að vinna hér, en ég skil ekki fyrir hvern eða hver er að borga launin mín.“ Starfs­kraft­ur­inn sagð­ist heldur ekki hafa fengið borgað frí eða yfir­vinnu.

„Ég er að vinna hér, en ég skil ekki fyrir hvern eða hver er að borga launin mín“

Heimsókn lög­reglu 12. sept­em­ber síð­ast­lið­inn varð að umfjöll­un­ar­efni Stund­ar­innar en þar var rakin margra liða keðja verk­taka að HBS Bygg­ing­ar­fé­lagi ehf., sem hafði ráðið und­ir­verk­taka sem var með tvo ein­stak­linga án vinnu­rétt­inda í vinnu. Sá und­ir­verk­taki ját­aði brotið í sam­tali við Stundina og sagð­ist hafa ætlað að borga hlut í far­gjaldi þeirra heim í skiptum fyrir nokkrar vinnu­stundir. Átt­menn­ing­arnir sem voru hand­teknir 21. jan­úar unnu fyrir Járnhest ehf., und­ir­verk­taka á svæð­inu, en Hjálmtýr er eig­andi þess félags og HBS.

Í fyrri frétt Stund­ar­innar frá því í nóv­em­ber sagði Hjálmtýr að hann hafi verið sjálfur fórn­ar­lamb svika. „HBS var bara milli­liður fyrir þessa starfs­menn og ég hef lítið um málið að segja. Ég hélt að und­ir­verk­tak­inn hefði verið með allt á hreinu, en hann var það greini­lega ekki. Ég gerði þau mis­tök að hafa ekki betra eft­ir­lit.“

„Ég gerði þau mis­tök að hafa ekki betra eft­ir­lit“
Segist ekki hafa komið nærri mál­inuJárn­hestur var með átta menn í vinnu sem voru hand­teknir grun­aðir um skjala­fals. Stjórn­ar­maður Járn­hests segir í gegn um lög­mann sinn að félagið hafi ekki komið nærri „hing­að­komu þess­ara manna“ hér á landi.

Þegar Stundin fal­að­ist eftir svörum frá Hjálmtý barst svar frá lög­manni hans, Stein­bergi Finn­boga­syni. Hann sagði að skjól­stæð­ingur sinn kysi að tjá sig ekki um ein­staka þætti en vildi þó koma því á fram­færi: „að um er að ræða rann­sókn lög­reglu á til­teknum útlenskum starfs­mönnum Járn­hests sem bæði hafa íslenska kenni­tölu og banka­reikn­inga hér á landi.“

Rekur Stein­bergur þá sögu að þeir sem hand­teknir voru hafi hugs­an­lega fengið þetta tvennt með fölsuðum skil­ríkjum. „Járn­hestur kom hvergi nærri hing­að­komu þess­ara manna heldur ræður þá til starfa á grund­velli íslenskra kennitalna þeirra og fyrri starfa hér á landi. Útilokað er fyrir Járnhest að grund­valla ráðn­ingar starfs­fólks á öðru en við­ur­kenn­ingu stjórn­valda á veru þeirra í land­inu. Engar grun­semdir hafa vaknað um óhreint mjöl í poka­horni þess­ara starfs­manna en lög­reglu­rann­sókn mun vænt­an­lega leiða í ljós hvort svo sé eða ekki.“

„Engar grun­semdir hafa vaknað um óhreint mjöl í poka­horni þess­ara starfs­manna“

Kennir Þjóðskrá um

Krist­ó­fer Oli­vers­son, fram­kvæmda­stjóri CenterHotels, sagði í við­tali við Stundina í nóv­em­ber að hann hefði gert ráð fyrir því að „und­ir­verk­tak­inn hafi verið of fljótur á sér og hleypt fólki í vinnu sem var ekki komið með kenni­tölu“.

Beið eftir frétt um að allt væri í lagiKrist­ó­fer Oli­vers­son, fram­kvæmd­ar­stjóri CenterHotels keðj­unnar, seg­ist hafa verið sár yfir því að Stundin hafi ekki flutt frétt um að allt hafi verið í himna­lagi eftir heim­sókn blaða­manns með eft­ir­lits­full­trúum verka­lýðs­fé­lag­anna. Raunin er sú að blaða­maður varð vitni af van­virtum örygg­is­reglum og að starfs­maður und­ir­verk­taka sagð­ist ekki fá launa­seðla afhenda eða yfir­vinnu eða frí greidd.

Þegar Stundin hafði aftur sam­band við Krist­ó­fer út af hand­tök­unni 21. jan­úar ásak­aði hann blaða­mann um að bera fyr­ir­tæki sínu illan hug með frétta­flutn­ingi og nafn­grein­ingu hót­el­keðju sinnar. Hann sagð­ist meðal ann­ars hafa beðið ólmur eftir fréttum af því að allt hafi verið með felldu. „Ég las Stundina nokkra daga eftir það og var að bíða eftir frétt um að ekk­ert væri að hjá okkur, en hún kom ekki,“ sagði Krist­ó­fer. Eins og kemur fram hér að ofan fund­ust vankanntar í báðum heim­sókn­unum.

Krist­ó­fer þvertók fyrir að CenterHotels eða verk­takar þess hefðu gert neitt af sér, og að þeir fylgd­ust vel með því hverjir væru á vinnu­staðnum á hverri stundu. Sökina leggur hann að fullu á herðar Þjóð­skrár sem sam­þykkti fölsuð skil­ríki þeirra. „Ég bíð spenntur eftir því að heyra hvað Þjóðskrá seg­ist ætla að gera í þessu.“ Krist­ó­fer taldi að Þjóðskrá þyrfti fleiri túlka  „svo hægt sé að yfir­heyra menn um stað­hætti og annað slíkt svo fyr­ir­byggja megi að maður geti komið utan Evr­ópu­sam­bands­ins og falsað sig inn.“

„Ég bíð spenntur eftir því að heyra hvað Þjóðskrá seg­ist ætla að gera“

Átt­menn­ing­arnir voru leystir úr haldi eftir yfir­heyrslu lög­reglu. Málið er enn í rann­sókn og er komið á borð Útlend­inga­stofn­unar. Enn sem komið er hafa engir aðrir en þessir átt­menn­ingar stöðu grun­aðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár