Engin haldbær rök fyrir að halda leikskólum opnum

Stjórnir Félags leik­skóla­kenn­ara og Félags stjórn­enda leik­skóla lýsa von­brigðum sínum með það að ekki var hlustað á raddir félag­anna um að loka leik­skólum milli jóla og nýárs til að hemja útbreiðslu Covid-19.

Hertar sam­komu­tak­mark­anir sem taka gildi á mið­nætti annað kvöld taka ekki til leik­skóla. Sótt­varna­læknir lagði ekki til lokun leik­skóla í minn­is­blaði sínu til heil­brigð­is­ráð­herra en ákvörðun um upp­haf skóla­halds í grunn-, fram­halds- og háskólum á nýju ári verður í höndum skóla­stjórn­enda, en sótt­varna­læknir lagði til að skólar á þessu náms­stigi yrðu lok­aðir 10. jan­úar.

Í ályktun sem stjórnir Félags leik­skóla­kenn­ara og Félags stjórn­enda leik­skóla sendu frá sér eftir að hertar sam­komu­tak­mark­anir voru til­kynntar benda þau á að félögin komu áhyggjum sínum skýrt til skila með góðum fyr­ir­vara en segja að mál­efna­leg rök hafi verið virt að vettugi. „Engin hald­bær sótt­varn­ar­rök eru fyrir því að loka ekki leik­skólum. Öll börn á leik­skóla­stig­inu eru óbólu­sett og ef horft er til hlut­falls fjölda barna í ein­angrun er sára­lít­ill munur á milli leik- og grunn­skóla­stigs­ins,“ segir í ályktun félag­anna.

Höfum vítin til að varast

20 manna sam­komu­bann var síð­ast í gildi í apríl. Þá lok­uðu grunn- og fram­halds­skólar dag­ana fyrir dymbil­viku en leik­skólum var haldið opnum alla þá daga fram að lög­bundnum frí­dögum. Félögin minna á þessa ákvörðun lagð­ist mjög illa í kenn­ara og stjórn­endur sem upp­lifðu mikla van­virð­ingu gagn­vart skóla­stig­inu. „Sú ákvörðun leiddi til að í kjöl­farið kom upp eitt stærsta hópsmit í íslensku sam­fé­lagi í leik­skól­anum Jörfa. Við höfum því vítin til að var­ast,“ segir í álykt­un­inni.

Félögin benda á að sam­gangur stór­fjöl­skyldna er eðli­legur fylgi­fiskur jóla­halds­ins og getur það leitt til þess að smitin muni dreifa sér í leik­skólum lands­ins milli jóla og nýárs. Félögin hvetja ein­dregið til þess að for­eldrar haldi börnum sínum heima milli jóla og nýárs. Eins hvetja félögin öll sveit­ar­fé­lög til að loka sínum leik­skólum á milli hátíða.

„Það er ástæða til að hafa veru­legar áhyggjur af afleið­ingum þess­arar ákvörð­unar. Bæði til skamms tíma og lengri. Sú sótt­varn­ar­lega áhætta sem verið er að taka er óum­deild,“ segir í ákykt­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár