Mótmæla „skipan afturhaldsseggja með kvenfjandsamlegan boðskap“

Tæplega þús­und manns hafa skrifað undir áskorun til Katrínar Jak­obs­dóttur um að víkja Jóni Gunn­ars­syni sem dóms­mála­ráð­herra. Bar­áttu­hópur gegn ofbeld­is­menn­ingu segir engar fram­farir verða í mál­efnum þolenda ofbeldis með Jón sem ráð­herra dóms­mála.

Undirskriftalista hefur verið hrundið af stað af baráttuhópi gegn ofbeldismenningu til að hvetja til þess að Jón Gunnarsson hverfi burt úr dómsmálaráðuneytinu.
Und­ir­skrifta­lista hefur verið hrundið af stað af bar­áttu­hópi gegn ofbeld­is­menn­ingu til að hvetja til þess að Jón Gunn­ars­son hverfi burt úr dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Bar­áttu­hópur gegn ofbeld­is­menn­ingu hóf í gær und­ir­skrifta­söfnun þar sem þess er kraf­ist að Jón Gunn­ars­son víki úr emb­ætti dóms­mála­ráð­herra. Alls hafa tæp­lega 1.000 manns skrifað undir þegar um sól­ar­hringur er lið­inn frá því að und­ir­skrifta­söfn­unin hófst.

Í yfir­lýs­ingu frá hópnum, sem stofn­aður var fyrr í haust á Facebook í því skyni m.a. að berj­ast gegn ger­enda­með­virkni og þöggun, segir að lítil von sé á úrbótum í mál­efnum þolenda ofbeldis með Jón sem dóms­mála­ráð­herra.

„Til að bæta afar gráu ofan á svart þá velur Jón Gunn­ars­son sér Brynjar Níelsson til aðstoðar. Brynjar sem hleypur til í hvert skipti sem ein­hver ýtir við eða bara rétt kitlar feðra­veldið.

Þó við reynum að hugga okkur við að þetta verði bara 18 mán­uðir og vonum að ekki náist að gera óbæt­an­legan skaða á þeim tíma þá vitum við að nú þegar eru þolendur að berj­ast við kerfið og hafa engan tíma til að bíða eftir úrbótum, líf þeirra, heilsa og öryggi er nú þegar í hættu.“

Bar­áttu­hópur um ofbeld­is­menn­ingu er opinn hópur á Facebook og fylgj­endur eru yfir fjögur þús­und.

Yfir­lýs­ing­una sem birt er með und­ir­skrift­ar­list­anum má lesa í heild sinni hér:

Eftir að hafa séð tekin skref sl. ár í dóms­mála­ráðu­neyt­inu til að bæta kerfið fyrir þolendur ofbeldis er sorg­legt að sjá nýja rík­is­stjórn skipa mann eins og Jón Gunn­ars­son í sæti dóms­mála­ráð­herra. Mann sem hefur stutt s.k. tálm­unar/fang­els­is­frum­varp. Jón Gunn­ars­son hefur sýnt hug sinn til kven­frelsis og sínar forn­fá­legu hug­myndir á fleiri vegu í gegnum sína þing­mennsku m.a. þegar þung­un­ar­rofs­frum­varpið var til umræðu.

Því miður er lítil sem engin von til þess að nauð­syn­legar úrbætur verði á þessum tíma.

Bar­áttu­hópur gegn ofbeld­is­menn­ingu var stofn­aður fyrir tveimur mán­uðum að gefnu til­efni. Ofbeldi gegn konum og kyn­bundið ofbeldi er far­aldur í okkar sam­fé­lagi og aðför að öryggi og heilsu kvenna. Þolendum er sagt að kæra en lang­flest mál eru felld niður áður en þau kom­ast nokkru sinni í dóm­sal. Þolendur eiga það á hættu að gögn þeirra eru gerð opin­ber á almennum vett­vangi.

Við krefj­umst fram­fara sem nást ekki með skipan aft­ur­halds­seggja með kven­fjand­sam­legan boð­skap sem æðstu yfir­manna dóms­mála!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár