„Lítur ekki vel út!“

Upp úr klukkan 13 í dag mun bresta á með vest­an­hvelli á Suð­ur­nesjum og höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur. Hann segir að einnig verði „for­áttu­hvasst“ á Suð­ur­landi.

Appelsínugul viðvörun er í gildi á mest öllu landinu.
App­el­sínugul við­vörun er í gildi á mest öllu land­inu. Mynd: Veðurstofan

Veð­ur­við­var­anir dags­ins hafa færst af gulu yfir á app­el­sínugult eftir að nýj­ustu spár, sem bár­ust í snemma í morgun, hafa versnað. „Það viðrar illa til ferða­laga og er fólk hvatt til að huga að lausa­munum,“ segja almanna­varnir í færslu á Facebook.

Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur segir lægð­ina verða bæði dýpri og krapp­ari en spáð hafði verið. „Lítur ekki vel út!“ Lægð­ar­miðjan fari yfir Reykja­nesskaga í höf­uð­borg­ar­svæðið um hádegi. „Í kjöl­far miðj­unnar skellur á okkur af fullum þunga V-strengur (e. Sting Jet) hér suð­vest­an­lands. Það versta stendur aðeins í stuttu stund, í rúma klukku­stund eða svo,“ skrifar Einar á Facebook í morgun. Hann segir að einnig verði „for­áttu­hvasst“ á Suð­ur­landi, einkum við sjó­inn og eins suð­austan- og aust­an­lands með suð­vest­an­átt­inni.

Vega­gerðin var með eft­ir­far­andi við­vörun kl. 9 í morgun:

Brestur á með vestan hvelli á Suð­ur­nesjum og höf­uð­borg­ar­svæð­inu upp úr kl. 13. Stendur stutt en vara­samt verður að vera á ferð­inni. For­áttu­hvasst verður frá Land­eyjum og austur um á Höfn frá kl. 14 til 19 með SV-átt og áber­andi byljótt þar fyrir austan s.s. við Hvalnes, allt austur á Reyð­ar­fjörð.

Hvað er appelsínugul viðvörun?

Á vef Veð­ur­stof­unar er að finna eft­ir­far­andi skil­grein­ingu á app­el­sínugula litnum í við­vör­un­ar­kerfi stofn­un­ar­innar: Miðlungs eða miklar líkur eru á veðri sem valdið getur miklum sam­fé­lags­legum áhrifum. Veðrið getur valdið miklum sam­fé­lags­legum áhrifum. Veðrið getur valdið tjóni og/eða slysum og ógnar mögu­lega lífi ef aðgát er ekki höfð. Skerðing á sam­göngum og innviðum/þjón­ustu tíma­bundin/stað­bundin. Veður sem þessi verða nokkrum sinnum á ári.

Sjá nánar við­var­anir Veð­ur­stof­unnar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár