Hlýnun jarðar geti aukið líkur á skriðuföllum á Íslandi

Út er komin ný skýrsla Milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar en þar kemur fram að hlýnun jarðar geti haft afdrifa­ríkar afleið­ingar hér á landi. „Örfáir ára­tugir eru til stefnu“ til að halda hlýnun jarðar fyrir innan tvær gráður.

Rýrnun íss hefur áhrif á hæð sjávarborðs.
Rýrnun íss hefur áhrif á hæð sjáv­ar­borðs. Mynd: Úr safni.

Aukin skriðu­hætta vegna hlýn­unar sífrera í fjöllum og hopi jökla eru á meðal þeirra afleið­inga sem breyt­ingar á ein­stökum þáttum lofts­lags­kerf­is­ins geta haft á Íslandi. Þá mun aukin rign­ing að vetr­ar­lagi í stað snjó­komu einnig geta aukið skriðu­hættu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar (IPCC) sem kom út í dag.

Aðrar afleið­ingar sem hlýnun hefur hér á landi er hækkun sjáv­ar­borðs vegna rýrn­unar íss en árlegt massatap jökla heims­ins hefur auk­ist mikið á síð­ustu 30 árum. Þar að auki geta breyt­ingar á haf­straumum Norður-Atl­ants­hafs orðið afdrifa­ríkar hér á landi.

Skýrsla IPCC fjallar um þær breyt­ingar sem hafa átt sér stað í loft­hjúpi, hafi, freð­hvolfi, á landi og í líf­ríki. Skýrslan er afrakstur vinnu­hóps sem fjallar um nátt­úru­vís­indi og vís­inda­lega þekk­ingu á breyt­ingum á veð­ur­fari og lofts­lags­kerf­inu en hún er fyrsti hluti sjöttu rit­r­aðar IPCC um lofts­lags­breyt­ingar. Fimmta rit­röð nefnd­ar­innar kom út árin 2013 og 2014.

Frá því að síð­asta rit­röð kom út hefur skiln­ingur á lofts­lags­breyt­ingum fyrri tíðar auk­ist og fram­tíð­ar­spár taldar örugg­ari. Ítar­legri gögn liggja nú fyrir sem gefa til kynna að vegna lofts­lags­breyt­inga verði ýmsir aftaka­at­burðir algeng­ari og afdrifa­rík­ari, til dæmis ákaf­ari rign­ing og meiri öfgar í hita­bylgjum og þurrkum. Í skýrsl­unni segir einnig að nú er greini­legra en áður að athafnir mann­kyns séu meg­in­or­sök marg­vís­legra breyt­inga á lofts­lagi.

„Örfáir“ áratugir til stefnu

„Mat á með­al­hita jarðar er nú betra en fyrr og hefur það ásamt mjög heitum árum síðan 2011 hækkað mat á hlýnun jarðar,“ segir um þær breyt­ingar sem orðið hafa frá því að síð­asta skýrsla kom út. Því er áætlað að meira en helm­ings líkur séu á að hlýnun nái 1,5 °C snemma á fjórða ára­tug ald­ar­innar sem er fyrr en gert hafði verið ráð fyrir í sér­stakri skýrslu um 1,5 °C hlýnun sem kom út árið 2018. Eitt af helstu mark­miðum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins var að halda hlýnun innan við tvær gráður frá með­al­hita fyrir iðn­bylt­ingu – og helst fyrir innan 1,5 gráður.

Í skýrsl­unni kemur fram að umfang hlýn­unar sé í beinu hlut­falli við upp­safn­aða losun CO2. Þar segir að örfáir ára­tugir séu til stefnu til þess að minnka los­un­ina ef hlýn­unin á ekki að verða meiri en stefnt var að í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. „Ef miða á við góðar líkur á að ekki sé farið þau má losun frá 2020 ekki vera meiri en 300 GtCO2 svo tak­marka megi hlýnun við 1.5 °C en 900 GtCO2 fyrir 2°C hámarkið. Ef við sættum okkur við helm­ings­líkur má losun frá 2020 ekki fara yfir 850 GtCO2 fyrir 1.5°C hlýnun og 1350 GtCO2 fyrir 2°C hlýnun. Árleg losun mann­kyns er nú tæp­lega 40 GtCO2 svo ein­ungis örfáir ára­tugir eru til stefnu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár