Níu greindust með COVID-19 innanlands – enginn í sóttkví

Á síð­ustu sex dögum hafa 45 greinst með COVID-19 inn­an­lands. Eftir dag­inn í gær voru 111 í ein­angrun og 379 í sótt­kví. Fólki í sótt­kví mun fjölga þegar líða tekur á dag­inn en rakn­ing stendur enn yfir.

Í gær greindust níu ein­stak­lingar með COVID-19 inn­an­lands og var eng­inn þeirra í sótt­kví. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá almanna­vörnum. Það þýðir að á síð­ustu sex dögum hafa 45 verið greind smituð af COVID-19 hér inn­an­lands. Á landa­mær­unum greindust sjö með COVID-19.

Fram kemur í til­kynn­ing­unni að ekki sé vitað hversu hátt hlut­fall þeirra sem greindust í gær hafi verið bólu­settur. Nokkur fjöldi þeirra sem smit­ast hafa á síð­ustu dögum hefur verið bólu­settur enda hlut­fall bólu­settra mjög hátt, um 90 pró­sent.

Eftir dag­inn í gær eru 379 í sótt­kví og 111 í ein­angrun, að því er fram kemur í til­kynn­ingu Almanna­varna. Fleiri munu fara í sótt­kví eftir dag­inn í dag þar sem rakn­ing stendur enn yfir vegna smita gær­kvölds­ins.

Álagið eykst á COVID-göngudeild

Fjallað var um aukið álag á COVID-göngu­deild Land­spít­al­ans í kvöld­fréttum RÚV í gær. Að sögn Runólfs Páls­sonar, yfir­manns deild­ar­innar hefur álagið auk­ist mikið síð­ustu daga eftir að inn­an­lands­smitum fór að fjölga.

Í við­tali við RÚV sagði Runólfur að flestir væru full­bólu­settir og eng­inn alvar­lega veikur. „Lang­flestir eru með mjög væg eða engin ein­kenni en það eru nokkrir sem eru með umtals­verð ein­kenni en ekki alvar­leg þó. Og við höfum þurft að kalla nokkra inn til skoð­unar hérna á Covid-göngu­deild­inni,“ sagði Runólfur Pálsson yfir­maður COVID-göngu­deildar Land­spít­ala í sam­tali við RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár