Eldgos er hafið við Fagradalsfjall

Eftir margra mán­aða óróa á Reykja­nesskaga er eld­gos hafið við Fagra­dals­fjall.

Fyrsta mynd sem ljósmyndari Kjarnans hefur náð af gosinu.
Fyrsta mynd sem ljós­mynd­ari Kjarnans hefur náð af gos­inu. Mynd: Golli

Eldgos er hafið við Fagra­dals­fjall. Gos var stað­fest í gegnum vef­mynda­vélar og gervi­tungla­myndir. Lítill órói sást á mælum í aðdrag­anda þess en fyrsta til­kynn­ing barst Veð­ur­stof­unni klukkan 21.40.

Þetta kemur fram á vef Veð­ur­stofu Íslands. Samkvæmt til­kynn­ingu frá henni er flug­lita­kóði rauður. Flug Land­helg­is­gæsl­unnar fer í loftið innan skamms til að kanna aðstæður. Samkvæmt því sem Víðir Reyn­is­son, deild­ar­stjóri almanna­varn­ar­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, sagði við frétta­stofu RÚV, er gosið fjarri almanna­leið.

Kortið hér að neðan sýnir lík­lega stað­setn­ingu goss­ins miðað við nýj­ustu upp­lýs­ingar. Upptökin eru rétt austan Fagra­dals­fjalls sam­kvæmt mati Veð­ur­stof­unnar, lík­lega í Geld­inga­dal.

Hægt er að horfa á streymi af svæð­inu hér.

Hér er hægt að lesa umfjöllun um Fagra­dals­fjall og svæðið þar í kring.

Margir jarð­skjálftar, sumir stórir, hafa orðið í námunda við fjallið und­an­farið. Þar hefur óró­apúls­inn mælst og þar hefur kvika verið að safn­ast fyrir rétt undir jarð­skorp­unni.

[adspot]Upphaf þeirrar miklu virkni sem nú mælist á Reykja­nesskaga má rekja til þess þegar skjálfta­hrina og land­ris mæld­ist við Þorbjörn í lok jan­úar 2020. Á vef Veð­ur­stofu Íslands segir að strax hafi verið ljóst að atburða­rásin var óvenju­leg fyrir svæðið ef horft var til virkni síð­ustu ára­tuga á svæð­inu. „Mat vís­inda­ráðs almanna­varna eftir fyrstu hrin­urnar var það að atburða­rás eins og var að hefj­ast á Reykja­nesskaga gæti orðið mjög löng og kafla­skipt, þar sem dregur úr virkni tíma­bundið án þess að henni sé að fullu lokið. Sú hefur orðið raunin. Á síð­ustu öld mæld­ist veru­leg virkni víða á Reykja­nesskag­anum á árunum 1927-1955 og 1967-1977. En virknin nú er sú mesta sem mælst hefur á Reykja­nesskag­anum frá upp­hafi.“

Slíkar jarð­hrær­ingar ættu þó ekki að koma okkur Íslend­ingum algjör­lega í opna skjöldu. Reykja­nesið allt er eld­brunnið, eins og sagt er, og ásýnd þess ein­kenn­ist af hraunum, gígum, mis­gengjum og jarð­hita. Um það liggja mót Evrasíu- og Norður-Amer­íkuflek­anna og gliðnun er að eiga sér stað með til­heyr­andi jarð­skjálftum oft og reglu­lega síð­ustu ár og ára­tugi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár