Andrés Ingi genginn til liðs við Pírata

Andrés Ingi Jónsson hefur ákveðið að slást í lið með Pírötum og mun gefa kost á sér í próf­kjöri flokks­ins fyrir næstu kosn­ingar.

Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata
Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata Mynd: Bára Huld Beck

Andrés Ingi Jónsson alþing­is­maður hefur ákveðið að ganga til liðs við þing­flokk Pírata og mun hann gefa kost á sér í próf­kjöri flokks­ins fyrir næstu kosn­ingar. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem Andrés Ingi sendi frá sér á Facebook-síðu sinni í dag, en til­kynn­ingin barst einnig fjöl­miðlum frá þing­flokki Pírata.

Andrés Ingi hefur verið þing­maður utan flokka í rúmt ár eftir að hafa sagt sig úr þing­flokki Vinstri grænna í lok nóv­em­ber­mán­aðar 2019.

Í stöðu­upp­færslu sinni sagð­ist Andrés vilja vera hluti af „hóp sem er hægt að treysta til að taka djarfar ákvarð­anir“ og að hann telji að innan þing­flokks Pírata muni hug­sjónum hans vera best borgið. Hann mun gefa kost á sér í kom­andi próf­kjöri til að sjá hvort gras­rót flokks­ins treysti honum fyrir áfram­hald­andi verk­efnum eftir næstu kosn­ingar.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni frá Pírötum sam­þykkti þing­flokk­ur­inn ein­róma að bjóða Andrés vel­kom­inn í hóp­inn á þing­flokks­fundi í morgun. Flokk­ur­inn seg­ist hafa átt í góðu sam­starfi við hann, flutt saman fjölda þing­mála og unnið náið saman í nefndum þings­ins. Með tím­anum hafi komið í ljós að um sé að ræða nátt­úru­lega banda­menn með margar sam­eig­in­legar áherslur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár