Jón Þór hættir á þingi

Þrír þing­menn Pírata af sex hafa nú sagst ekki ætla að gefa kost á sér í næstu alþing­is­kosn­ingum.

Jón Þór Ólafsson þingmaður Pírata
Jón Þór Ólafsson þing­maður Pírata Mynd: Bára Huld Beck

Jón Þór Ólafsson þing­maður Pírata hyggst ekki gefa kost á sér í næstu alþing­is­kosn­ingum, sam­kvæmt grein sem birt­ist á vef Vísis í morgun.

Í grein­inni seg­ist Jón Þór ekki lengur vera nauð­syn­legur í fram­línu Pírata. Verkefni hans innan flokks­ins fær­ist nú til gras­rót­ar­innar við að styðja fram­bjóð­endur með­fram þing­stör­f­unum fram að kosn­ingum og styðja svo nýja þing­menn sem taka sæti fyrir flokk­inn eftir kosn­ingar.

Jón Þór er þriðji þing­maður Pírata af sex sem hafa gefið út að þeir ætla ekki að bjóða sig fram í næstu kosn­ingum, en líkt og Kjarninn greindi frá síð­ast­lið­inn sept­em­ber hafa þing­menn­irnir Helgi Hrafn Gunn­ars­son og Smári McCarthy líka í hyggju að hætta á þingi.

Í til­kynn­ingum sínum sögðu þing­menn­irnir báðir að þeim hugn­að­ist ekki að ílengj­ast um of á þing­inu, auk þess sem að umbóta­málum þurfi ekki síður að sinna utan veggja Alþingis.

Hinir þrír þing­menn Pírata, Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, Halldóra Mogensen og Björn Leví Gunn­ars­son hafa hins vegar allir gefið út að þeir ætli að gefa kost á sér í kom­andi kosn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár