Hrollvekjandi viðvaranir veðurfræðinga: „Stórhríð“ og „hörkufrost“

Ekkert nema norðan stormur í kort­unum. Fyrsta alvöru norða­n­á­hlaup vetr­ar­ins. Hrein­ræktað heim­skauta­loft mun steyp­ast yfir okkur. Dúða ætti leik­skóla­börn og spara heita vatnið. Við­var­anir vegna kulda­kasts­ins næstu daga eru allt annað en blíð­legar.

Hitaspá á hádegi á laugardag: Fjólublái liturinn táknar frost á bilinu 12-20 stig.
Hitaspá á hádegi á laug­ar­dag: Fjólu­blái lit­ur­inn táknar frost á bil­inu 12-20 stig. Mynd: Skjáskot Veðurstofa Íslands

Frost: 4-18 stig. 23 stig á hálend­inu.

Vindur: 13-20 m/s.

Snjókoma. Él. Stórhríð. Hörku­frost. Vind­strengir. Vind­kæl­ing. Frost og meira frost. „Ískalt heim­skauta­loft streymir yfir okkur úr norðri.“

Þegar litið er yfir veð­ur­spár næstu daga má sjá að veð­ur­fræð­ingum er mikið í mun að við áttum okkur á að þeim er alvara: „Í dag, á morgun og fram á föstu­dag er sem­sagt útlit fyrir fyrsta alvöru norða­n­á­hlaup vetr­ar­ins,“ skrifar veð­ur­fræð­ingur Veð­ur­stof­unnar í hug­leið­ingum sínum í morgun. „Ef til vill er þörf á kulda­við­vörun þar sem dúða þarf leik­skóla­börn sér­stak­lega á fimmtu­dag og föstu­dag (kalt fram á laug­ar­dag) og aðrir úti við hugi að skjól­góðu höf­uð­fati og hlýjum vetr­ar­skóm,“ skrifar Einar Svein­björns­son í pistli á vef sínum Bliku.is. Hann minnir á að ull­ar­vett­lingar komi líka í góðar þarfir.

[adspot]

Bítandi frost

Vetr­ar­kuldi er almennt í stórum dráttum af tvennum toga, skrifar Einar: Annars vegar þegar er hæg­látt og stjörnu­bjart. Yfir­borðið kólnar og frost í tveggja metra hæð mælist mikið. Ofar er oft hlýrra og því ekki endi­lega svo kalt loft á ferð­inni. Hin gerðin er þegar loftið kemur frá köldum svæðum með strekk­ingi og stundum hvassri norð­an­átt. Þá mælist kannski ekki jafn mikið frost, en það bítur í vind­inum.

„Þannig er það einmitt nú,“ skrifar Einar sem telur að um verði að ræða mesta kulda­kast í Reykja­vík frá árinu 2013. Hann segir að nú sé þörf á að „dusta rykið“ af vind­kæl­ing­art­öflum. Spáð er 7 stiga frosti á hádegi á fimmtu­dag og á sama tíma um 10 metrum á sek­úndu í vindi. „Það jafn­gildir nærri -16°C,“ bendir Einar á.

Frétta­til­kynn­ing Veitna í morgun var einnig hroll­vekj­andi. Þar á bæ hefur við­bragðs­á­ætlun verið virkjuð og fólk er hvatt til að fara spar­lega með heitt vatn. „Sé tekið mið af spálík­önum, sem nýta veð­ur­spár til að áætla notkun, er útlit fyrir að hita­veitan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fari að þol­mörkum á föstu­dag og fram yfir helgi,“ segir í til­kynn­ing­unni. Minnt er á að þeir köldu dagar sem við höfum upp­lifað að und­an­förnu hafa verið í hæg­látu veðri. „Nú er hins vegar útlit fyrir tölu­verðan vind sem veldur mik­illi kæl­ingu ofan á það frost sem er í kort­unum.“

Kerfi hita­veit­unnar er „stórt og umfangs­mikið og er í sífelldri upp­bygg­ingu“ sem miðuð er að spám um fólks­fjölgun og bygg­inga­magn, segir enn­fremur í til­kynn­ing­unni. „Það sem ekki var fyr­ir­séð í lang­tíma­spám var sú aukn­ing sem verið hefur í notkun á hvern íbúa síð­ast­liðið ár. „Til sam­an­burðar hefur sögu­leg aukn­ing i hita­veit­unni verið 1,5% - 4% milli ára en heild­ar­notk­unin í ár er 11% meiri en á síð­asta ári.“

Veitur biðja fólk að:

  • Hafa glugga lok­aða
  • Hafa úti­dyr opnar ekki lengur en þörf krefur
  • Láta ekki renna í heita potta
  • Varast að byrgja ofna
  • Minnka þrýst­ing á snjó­bræðslu­kerfum

Veð­ur­fræð­ingur Veð­ur­stofu Íslands minnir svo á: „Ekki er gert ráð fyrir að vind lægi að gagni fyrr en síð­degis á föstu­dag, þá fyrst vest­ast á land­inu. Þá styttir einnig upp fyrir norðan og austan.

Eins og oft vill verða þegar lægir og léttir til eftir kalda norð­an­átt, þá hækka frost­tölur á hita­mælum og horfur eru á hægum vindi um helg­ina með hörku­frosti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár