Helgi Hrafn verður þingflokksformaður og Jón Þór nýr formaður Pírata

Helgi Hrafn Gunn­ars­son hefur verið kjör­inn nýr þing­flokks­for­maður Pírata og kastað hefur verið upp á að Jón Þór Ólafsson verði nýr for­maður flokks­ins, en því emb­ætti fylgja engar form­legar skyldur eða vald.

Píratar eru með svokallaðan flatan strúktúr í flokksstarfi sínu. Kastað var upp á að Jón Þór Ólafsson tæki við embætti flokksformanns.
Píratar eru með svo­kall­aðan flatan strúktúr í flokks­starfi sínu. Kastað var upp á að Jón Þór Ólafsson tæki við emb­ætti flokks­for­manns. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Helgi Hrafn Gunn­ars­son er orð­inn þing­flokks­for­maður Pírata, en hann var kjör­inn á þing­flokks­fundi á dög­unum og tekur við emb­ætt­inu af Halldóru Mogensen. Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir var við sama til­efni kjörin vara­þing­flokks­for­maður og Smári McCarthy verður næsti rit­ari þing­flokks­ins. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá þing­flokki Pírata.

Á þessum sama þing­flokks­fundi var einnig skipt um for­mann flokks­ins. Það var gert með hlut­kesti, eins og Píratar hafa gert við upp­haf vers lög­gjaf­ar­þings. Í þetta sinn varð Jón Þór Ólafsson fyrir val­inu og er hann því nýr for­maður Pírata, en því emb­ætti fylgja engar form­legar skyldur eða vald­heim­ildir.

„Jón Þór mun þannig, rétt eins og fyrri for­menn Pírata, hafna 50 pró­senta for­mannsá­l­agi á þing­far­ar­kaup. Þing­flokkur Pírata stendur fyrir for­mannsval­inu til að upp­fylla form­kröfur Alþingis og þannig tryggja aðgang að sömu aðstoð og aðrir þing­flokkar njóta,“ segir í til­kynn­ingu frá þing­flokknum.

Formenn stjórn­mála­flokka, sem jafn­framt eru ekki ráð­herrar, hafa rétt til þess að ráða sér aðstoð­ar­menn í fullt starf og ef að eng­inn væri for­mað­ur­inn væri engin heim­ild fyrir Pírata til þess að ráða inn þennan ein­stak­ling til starfa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár