Meistaramót Íslands í frjálsum haldið um helgina þrátt fyrir smit á móti um síðustu helgi

Meist­ara­mót Íslands í frjálsum íþróttum verður haldið á Akureyri um helg­ina, Covid-19 smitið á Meist­ara­móti ung­linga í Kaplakrika um síð­ustu helgi breytir þeim áformum ekki en hvatt er til auk­innar aðgæslu.

Frjálsíþróttafólk reimar á sig skóna á Akureyri um helgina þar sem Meistaramót Íslands fer fram.
Frjáls­í­þrótta­fólk reimar á sig skóna á Akureyri um helg­ina þar sem Meist­ara­mót Íslands fer fram. Mynd: Pexels

Annar ein­stak­ling­anna sem greind­ist með Covid-19 smit um síð­ustu helgi var kepp­andi á Meist­ara­móti Íslands í frjálsum íþróttum í ald­urs­flokknum 15-22 ára sem fram fór í Kaplakrika.

Um 30 manns hafa verið sendir í sótt­kví vegna smits­ins og er að minnsta kosti hluti af þeim kepp­endur á mót­inu, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Frjáls­í­þrótta­sam­bandi Íslands. Smitrakn­ing er á loka­metr­unum.

Meist­ara­mót Íslands í flokki full­orð­inna hefst á morgun á Akureyri og stendur yfir um helg­ina. Engin áform eru um að hætta við að halda mótið þrátt fyrir smitið um síð­ustu helgi en Frjáls­í­þrótta­sam­bandið er í góðu sam­starfi við við Almanna­varnir og emb­ætti land­læknis vegna þessa.

Unnið hefur verið að því með móts­hald­ara fyrir norðan að auka aðgæslu varð­andi smit­varnir, svo sem sótt­hreinsun áhalda, fjar­lægð milli kepp­enda og fleira til að gæta fyllstu var­úðar á mót­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár