700 milljónir myndi kosta að bólusetja fimmtung þjóðarinnar

Talið er að skammtur af bólu­efni við COVID-19 komi til með að kosta um fimm þús­und krónur. Gera má ráð fyrir að kostn­aður við að bólu­setja 20 pró­sent þjóð­ar­innar verði um 700 millj­ónir, en að sögn Þórólfs Guðna­sonar er von á bólu­efni í lok árs 2021.

Fyrsti fundur Almannavarna vegna Covid-19 var haldinn 27. febrúar. Síðasti fundur í bili var í dag, 23. júlí.
Fyrsti fundur Almanna­varna vegna Covid-19 var hald­inn 27. febr­úar. Síðasti fundur í bili var í dag, 23. júlí. Mynd: Lögreglan

„Það er nán­ast ekk­ert inn­an­lands­smit í gangi og það er mjög ánægju­legt," sagði Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir á upp­lýs­inga­fundi Almanna­varna í dag. Fund­irnir hafa verið haldnir reglu­lega frá því í lok febr­úar en eftir fund­inn í dag verður gert hlé.

Að vanda fór Þórólfur yfir helstu tölur síð­asta sól­ar­hring­inn. Sýni voru tekin úr 2.100 manns á landa­mærum í gær en um 2.300 manns komu til lands­ins. Eitt virkt smit greind­ist á landa­mær­unum, eng­inn var með gam­alt smit og eng­inn er að bíða eftir nið­ur­stöðum, eftir því sem fram kom í máli Þórólfs á fund­inum.

Frá 15. júní síð­ast­liðnum hafa rúm­lega 70 þús­und far­þegar komið til lands­ins og um 50 þús­und sýni hafa verið tekin. Tuttugu manns hafa greinst með virkt smit á þessu tíma­bili og rúm­lega 90 með gömul smit. Ellefu ein­stak­lingar hafa greinst með inn­an­lands­smit en síð­asta smit inn­an­lands greind­ist 2. júlí.

Ekki von á bóluefni fyrr en í lok næsta árs

Þórólfur kom sér­stak­lega inn á alþjóð­legt sam­starf um þróun bólu­efnis sem farið er í gang. Ísland verður aðili að sam­starfs­verk­efn­inu COVAX sem Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin (WHO) og fleiri stofn­anir og fjöl­mörg lönd eru aðilar að.

Kostn­aður við bólu­efni er áætl­aður að verði um 35 doll­arar á hvern skammt eða um 5.000 krónur. Hver ein­stak­lingur þarf tvo skammta til að bólu­setn­ing verði að fullu virk. Kostn­aður við að bólu­setja um fimmt­ung þjóð­ar­innar gæti því orðið um 700 millj­ónir króna. 

Níu bólu­efna­fram­leið­endur hafa verið valdir til sam­starfs­ins, þar af eru sex með bólu­efni í klínískum rann­sóknum nú þegar. Þórólfur sagði á fund­inum að vantað hefði sam­hæf­ingu í þessa vinnu og því hafi WHO stofnað þennan vett­vang fyrir sam­vinnu. Með þessu á að tryggja rétt­láta dreif­ingu á bólu­efni milli landa og með því að taka þátt tryggir Ísland sér sann­gjarnan aðgang að bólu­efni þegar þar að kemur.

Að sögn Þórólfs má gera ráð fyrir að bólu­efni verði komið á markað í lok næsta árs, í það minnsta verði ekki mikið fram­boð af bólu­efni fyrr en þá. „Það tekur langan tíma að þróa, rann­saka, mark­aðs­setja og dreifa bólu­efni um allan heim," sagði Þórólfur á fund­inum og benti á að ólík­legt væri að unnt yrði að hraða þessu ferli mikið meira.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár