Endurráðningar starfsfólks í flugþjónustu hafnar

Þrettán flug­fé­lög bjóða nú ferðir til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli og fer fjölg­andi. Um mán­aða­mótin hefur Vueling flug milli Kefla­víkur og Barcelona. Hluti fólks sem starf­aði við flug­þjón­ustu á vegum Airport Associates verður end­ur­ráðið.

Það er heldur rýmra um fólk í Leifsstöð þessa dagana enda umferð um flugvöllinn töluvert minni en áður. Nokkur flugfélög bætast við á næstunni og önnur hafa verið að bæta við ferðum.
Það er heldur rýmra um fólk í Leifs­stöð þessa dag­ana enda umferð um flug­völl­inn tölu­vert minni en áður. Nokkur flug­fé­lög bæt­ast við á næst­unni og önnur hafa verið að bæta við ferðum. Mynd: Bára Huld Beck

Það fer án efa ágæt­lega um flug­far­þega sem leggja leið sína um Kefla­vík­ur­flug­völl þessa dag­ana, enda nóg pláss nú þegar unnið er á vel innan við tíu pró­sentum af afkasta­getu vall­ar­ins. Und­an­farnar vikur hafa um 16-20 flug­vélar lent á hverjum sól­ar­hring, eða um það bil sá fjöldi sem vana­lega gæti verið að lenda á einni klukku­stund.

Völl­ur­inn getur reyndar tekið við 26 vélum að hámarki á klukku­stund, en fjöldi flug­véla nær því ekki einu sinni á einum degi eins og staðan er nú. Ferðum fjölgar þó dag frá degi og nú er í und­ir­bún­ingi að ráða aftur hluta starfs­fólks hjá Airport Associates sem sagt var upp vegna Covid 19.

Sífellt bæt­ist í hóp þeirra flug­fé­laga sem fljúga til og frá Keflavík. Nú fljúga þrettán flug­fé­lög um Kefla­vík­ur­flug­völl. Icelandair er með lang­mest af ferðum, um helm­ing allra ferða um völl­inn til alls 21 áfanga­staðar, þar af 20 í Evrópu. Ung­verska lággjalda­flug­fé­lagið Wizz Air er þó ekki síður með mikil umsvif en félagið hefur verið að bæta við sig og flýgur nú frá Keflavík til alls tíu áfanga­staða í Evrópu. Önnur flug­fé­lög fljúga aðeins til eins eða tveggja áfanga­staða.

Spánarflug á næsta leiti

Á næst­unni bæt­ast enn fleiri flug­fé­lög við sem fljúga um Keflavík. Í leit­ar­vél spænska lággjalda­flug­fé­lags­ins Vueling má til að mynda finna flug milli Kefla­víkur og Barcelona frá næstu mán­aða­mótum en eins og staðan er nú eru engin skipu­lögð áætl­un­ar­flug til og frá Spáni, aðeins leiguflug.

Auk þess sem ný flug­fé­lög munu bæt­ast við á næst­unni hafa þau sem nú eru að fljúga verið að bæta við ferðum eins og til dæmis Wizz Air og Air Baltic auk Icelandair. 

„Þetta er hæg­fara í rétta átt, þetta er allt að koma. En bara það að það vanti allt flug til Ameríku gerir það að verkum að þetta sumar eða haust verður aldrei svipur hjá sjón. En Evrópa er jákvæð og núna seinni­part­inn í júlí og ágúst eru fleiri félög að bæt­ast við, til dæmis Vueling, Iberia Express og rúss­neska flug­fé­lagið S7,” segir Sigurþór Kristinn Skúlason, for­stjóri Airport Associates, sem sinnir þjón­ustu við mörg flug­fé­lög í Keflavík.

Í kjöl­far tekju­falls vegna Covid-far­ald­urs­ins sögðu Airport Associates upp um 130 starfs­mönnum en nú er unnið að því að meta í hve mörgum til­vikum er hægt að aft­ur­kalla upp­sagnir og að sögn Sig­ur­þórs verður mörgum boðin staða að nýju fyrir mán­aða­mótin næstu. Flestir sem fengu upp­sagn­ar­bréf eru enn að störfum hjá fyr­ir­tæk­inu.

„Það verður tals­vert um end­ur­ráðn­ingar og suma höfum við ráðið aftur nú þegar. Ágúst­mán­uður stefnir í að verða um 50 pró­sent af því sem hefði átt að vera. Flug­fé­lögin eru búin að bóka [stæði] á flug­vell­inum fram í tím­ann, þannig að við sjáum hvað félögin ætla sér og metum þörf­ina út frá því.”

Nýtingin á uppleið

Sigurþór telur nýt­ingu véla hjá þeim flug­fé­lögum sem eru að fljúga gegnum Keflavík vera á upp­leið. „Þegar opn­aði þá voru kannski 30-40 manns í hverri vél en nú eru flestar vélar að koma með yfir 100 far­þega þannig að nýt­ingin gæti verið komin vel yfir 50 pró­sent."

Þjónusta við far­þega á flug­vell­inum sjálfum er tals­vert minni en í venju­legu árferði. Til dæmis er aðeins hægt að kaupa sér að borða á tveimur stöðum í Leifs­stöð. Mathús og annar staður Joe and the Juice eru opnir en aðrir veit­inga­staðir eru lok­aðir. Flug­vall­ar­útibú veit­inga­stað­ar­ins Hjá Höllu verður til að mynda lokað að minnsta kosti út sept­em­ber en þá á að taka stöð­una og meta hvort borgi sig að opna.

Frí­höfnin er eina versl­unin sem hefur verið opin allan tím­ann, óháð Covid 19, en nú hafa aðrar versl­anir á flug­vell­inum flestar verið opn­aðar þótt við­skiptin séu ekki í neinni lík­ingu við það sem var áður en brast á með heims­far­aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár