Meðaltekjur 573 þúsund krónur á mánuði í fyrra

Miðgildi heild­ar­tekna hækk­aði um 0,9 pró­sent á milli áranna 2018 og 2019 sem er mun minni hækkun heldur en síð­ustu ár.

Heild­ar­tekjur ein­stak­linga á Íslandi voru 573 þús­und krónur á mán­uði í fyrra eða alls um 6,9 millj­ónir króna yfir árið. Miðgildi heild­ar­tekna var lægra, 473 þús­und krónur á mán­uði eða um 5,6 millj­ónir króna yfir árið. Hækkun mið­gildis var 0,9 pró­sent á milli áranna 2018 og 2019 sem er mun minni hækkun heldur en síð­ustu ár. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hag­stof­unnar.

Heild­ar­tekjur yngsta ald­urs­hóps­ins, þeirra sem eru 16 til 24 ára, voru lægstar, alls 231 þús­und krónur á mán­uði. Heild­ar­tekjur voru hæstar innan ald­urs­hóps­ins 55 til 74 ára, 669 þús­und krónur á mán­uði. Tekjur eldri­borg­ara, þeirra sem eru 67 ára og eldri voru að með­al­tali 517 þús­und krónur á mán­uði. Helm­ingur ein­stak­linga í þeim ald­urs­hópi höfðu 410 þús­und krónur eð á lægri heild­ar­tekjur á mán­uði.

„Eins er áhuga­vert að skoða hvernig heild­ar­tekjur skipt­ast í atvinnu­tekjur, fjár­magnstekjur og aðrar tekjur eftir ald­urs­hópum. Í lang­flestum ald­urs­hópum eru atvinnu­tekjur stærsti hluti heild­ar­tekna að und­an­skildum ald­urs­hóp­unum 67 ára og eldri, þar sem aðrar tekjur vega mest. Til atvinnu­tekna telj­ast allar launa­tekjur og aðrar starfstengdar greiðslur en til ann­arra tekna meðal ann­ars atvinnu­leys­is­bætur, félags­leg aðstoð og líf­eyris- eða bóta­greiðslur,“ segir í frétt á vef Hag­stof­unnar.

Talna­efnið byggir á skatt­fram­tölum ein­stak­linga sem eru skatt­skyldir hér á landi og skilað hafa fram­tali til rík­is­skatt­stjóra. Und­an­skilin eru fram­töl þeirra sem eru með hand­reiknað fram­tal, sem eru með áætl­aðar tekjur, sem lét­ust á árinu eða eru búsettir erlendis sam­kvæmt þjóð­skrá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár