Annar dagur án nýrra smita

Upp er runn­inn þriðji dag­ur­inn án nýrra smita hér á landi frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Enginn liggur á gjör­gæslu vegna COVID-19.

Ekkert nýtt smit af kór­ónu­veirunni greind­ist á Íslandi í gær og eru stað­fest smit því enn 1.797. Tölu­verður fjöldi sýna var tek­inn í gær, 142 á sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­al­ans og tæp­lega 700 hjá Íslenskri erfða­grein­ingu.

Í dag eru 659 manns í sótt­kví en gær var fjöld­inn 715.

Enginn liggur á gjör­gæslu vegna COVID-19 en sex manns eru á sjúkra­húsi vegna sjúk­dóms­ins, allir á Land­spít­al­anum. 1.670 manns hafa náð bata.

Af þeim sem greinst hafa með COVID-19 á Íslandi eru tíu látin.

Hlut­falls­lega flestir hafa smit­ast af kór­óna­veirunni á Íslandi í ald­urs­flokknum 40-49 ára að því er fram kemur í til­rauna­töl­fræði Hag­stof­unnar. Yngstu ald­urs­flokk­arnir eru með hlut­falls­lega fæst smit miðað við mann­fjölda. Sama gildir um elstu ald­urs­flokk­ana að und­an­skildum þeim allra elstu en þar vegur hvert smit þungt. Hins­vegar eru ald­urs­flokk­arnir þar á milli með hlut­falls­lega fleiri smit ef miðað er við mann­fjöld­ann, sér­stak­lega ald­urs­flokk­arnir 40-49 ára og 50-59 ára.

Á mánu­dag­inn, 4. maí, hefst aflétt­ing sam­komu­tak­mark­ana á Íslandi í skrefum. Þá verður allt að 50 manns heim­ilt að koma saman og starf­semi leik- og grunn­skóla að kom­ast í samt horf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár