Ríkisstjórnin samþykkir að auka atvinnuleysisbótarétt til 1. júlí

Þegar atvinnu­leys­is­bætur verða greiddar sam­hliða minnk­uðu starfs­hlut­falli vegna tíma­bund­ins sam­dráttar í starf­semi vinnu­veit­anda koma föst laun launa­manns ekki sjálf­krafa til skerð­ingar á fjár­hæð atvinnu­leys­is­bóta.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra. Mynd: Kristinn Magnússon

Rík­is­stjórn Íslands sam­þykkti í kvöld frum­varp Ásmundar Einars Daða­sonar, félags- og barna­mála­ráð­herra, sem felur í sér breyt­ingar á lögum um atvinnu­leys­is­trygg­ingar og lögum um Ábyrgð­ar­sjóð launa, vegna sér­stakra aðstæðna á vinnu­mark­aði.

Í frum­varp­inu felst að þegar atvinnu­leys­is­bætur eru greiddar sam­hliða minnk­uðu starfs­hlut­falli vegna tíma­bund­ins sam­dráttar í starf­semi vinnu­veit­anda koma föst laun launa­manns ekki sjálf­krafa til skerð­ingar á fjár­hæð atvinnu­leys­is­bóta, enda hafi starfs­hlut­fall verið lækkað hlut­falls­lega um 20 pró­sent hið minnsta og 50 pró­sent hið mesta. í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu segir að greiðslur atvinnu­leys­is­bóta á móti launum frá vinnu­veit­anda muni „greið­ast í hlut­falli af heild­ar­greiðslum tekju­tengdra atvinnu­leys­is­bóta. Vinnu­mála­stofnun hlýtur með breyt­ing­unni einnig sér­staka heim­ild til að óska eftir upp­lýs­ingum og gögnum frá vinnu­veit­endum þegar stofn­unin telur ástæðu vera til í þessu sam­hengi.“

Heild­ar­greiðslur til launa­fólks munu ekki geta numið hærri fjár­hæð en 80 pró­sent af með­al­tali heild­ar­launa laun­þega á síð­ustu þremur mán­uðum fyrir minnkað starfs­hlut­fall, og eigi meira en 650 þús­und krónum í heild­ina.

[adspot]Breyt­ingar á lögum um Ábyrgð­ar­sjóð launa fel­ast í því að þurfi launa­maður vegna gjald­þrots launa­greið­anda hans að sækja launa­greiðslur sínar á grund­velli laga um Ábyrgð­ar­sjóð launa mun þátt­taka hans í þessu úrræði ekki skerða mögu­leika hans að gera á kröfu í Ábyrgð­ar­sjóð launa miðað við fullt starfs­hlut­fall.

Breyt­ing­unum er ætlað að koma til móts við vinnu­veit­endur og launa­fólk í ljósi for­dæma­lausra aðstæðna hér á landi vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 veirunni. Breyt­ing­arnar munu gilda frá 15. mars til 1. júlí næst­kom­andi og í til­kynn­ing­unni segir að mark­mið þeirra sé að „aðstoða vinnu­veit­endur við að halda ráðn­ing­ar­sam­bandi við starfs­fólk sitt, þar til aðstæður batna.“

Ásmundur Einars seg­ist von­ast til þess að atvinnu­rek­endur bregð­ist við þessum breyt­ingum á þann veg að halda ráðn­inga­sam­böndum við starfs­fólk sitt eins og nokkur kostur er í stað þess að ráð­ast í upp­sagnir. „Slík nið­ur­staða væri sam­fé­lag­inu öllu til heilla. Við horf­umst nú í augu við for­dæma­lausar aðstæður, m.a. á vinnu­mark­aði, og von­umst öll til þess að þessar aðstæður gangi sem hrað­ast yfir en við þurfum öll að hjálp­ast að til þess að lág­marka þann skaða sem af þessum aðstæðum hlýst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár