Uppþot vegna brauðsins stormur í vatnsglasi

„Hvenær verður næst brauð við­vörun?“ „Brauð er búið í borg­inni, líka hvíta brauðið. Fólk ætlar greini­lega að leyfa sér þessar síð­ustu klukku­stundir á jörðu.“ Þeir voru margir brand­ar­arnir sem fuku í sprengilægð­inni í síð­ustu viku.

Hillur verslana eru í dag fullar af fersku brauði.
Hillur versl­ana eru í dag fullar af fersku brauði. Mynd: Samsett mynd

Kaup­hegðun land­ans stjórn­ast að ýmsu leyti af veðri. Í óveðr­inu í des­em­ber er versl­anir þurftu að loka fyrr að deg­inum en vana­lega jókst til að mynda snakk­salan. Fyrir viku þegar rauðar við­var­anir höfðu verið gefnar út og ofsa­veður var í vændum jókst brauð­salan.

Það er óhætt að full­yrða að hneykslun hafi verið nokkuð ríkj­andi til­finn­ing hjá sumum er hillur versl­ana tæmd­ust af brauði síð­asta fimmtu­dag og langar biðraðir mynd­uð­ust við afgreiðslu­kassa.

Fjöl­miðlar fluttu hver á fætur öðrum fréttir af mál­inu og sam­fé­lags­miðlar log­uðu. Gert var stólpa­grín að því sem sumir töldu dæmi­gerða hjarð­hegðun Íslend­inga og aðrir flissuðu yfir því að það mætti vart koma smá rok, þá færu höf­uð­borg­ar­búar að hamstra mat.

En eiga brauð­kaupin miklu sér kannski eðli­legar skýr­ingar? Og voru þau svo rosa­leg í raun og veru eins og halda mætti af umræð­unni?

„Þegar að við sjáum að slæmt veður er í kort­unum gerum við ráð­staf­anir,“ segir Gréta María Grét­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Krón­unnar. Haft er sam­band við birgja og reynt að taka vörur fyrr inn til að mæta auk­inni eft­ir­spurn. „Við sjáum það að þegar að skóla- og frí­stunda­starfi er aflýst þá nýtur fjöl­skyldan þess að eiga góðan tíma saman og því er farið í versl­anir og inn­kaup gerð sem mögu­lega væru gerð á þeim degi eða tíma sem veðrið stendur yfir. Almennt má segja að versl­unin sé bara að fær­ast til en neyslan breyt­ist aðeins.“

Gréta bendir í þessu sam­bandi á að þegar versl­unum Krón­unnar var lokað fyrr en venju­lega í des­em­ber vegna óveð­urs hafi snakk­sala verið meiri en gengur og ger­ist þar sem um kvöld var að ræða. Á fimmtu­dag fyrir viku, dag­inn fyrir sprengilægð­ina umtöl­uðu, var meira keypt af brauði enda auð­velt að smyrja sam­lokur og rista brauð yfir dag­inn þegar fjöl­skyldur voru flestar heima við eins og mælt hafði verið með.

Í stað mál­tíða í skólum og leik­skólum fengu börn að borða heima þennan dag. For­eldrar fóru svo margir ekki í vinn­una. Sem sagt: Þúsundir barna og full­orð­inna voru heima. Þúsundir barna og full­orð­inna þurftu að næra sig heima.

5% fleiri viðskiptavinir

Á fimmtu­dag­inn tók Krónan inn meira magn af brauði en venju­lega á þeim viku­degi en það dugði ekki til og seld­ist það víða upp. Miðað við töl­fræð­ina má hins vegar kannski segja að umræðan um brauð­skort­inn mikla og biðrað­irnar löngu hafi verið stormur í vatns­glasi.

Við­skipta­vinir Krón­unnar voru um 5% fleiri en á venju­legum fimmtu­degi og brauð­salan á pari við það, að sögn Grétu. Hver og einn keypti þó að með­al­tali meira en almennt gengur og ger­ist á fimmtu­dögum því salan af föstu­degi færð­ist á hann. Margir flýttu mat­ar­inn­kaupum sínum um einn dag enda flestar fjöl­skyldur heima vegna við­var­ana og fyr­ir­fram vitað að margar versl­anir yrðu lok­aðar fram eftir degi dag­inn eftir.

Biðraðir sem mynd­uð­ust við afgreiðslu­kassa skýr­ast að sögn Grétu af því að þó að við­skipta­vinir hafi ekki verið stór­kost­lega fleiri en á venju­legum fimmtu­degi voru þeir að versla meira.

Í fyrsta skipti sem loka þarf vegna veðurs

Gréta segir að starfs­fólk Krón­unnar hafi lagt mikið á sig til að láta allt ganga sem best fyrir sig við þessar óvenju­legu aðstæður. Það hafi svo mætt mun fyrr en venju­lega eftir óveðrið á föstu­dag til að koma búð­unum í gott stand fyrir opnun.

Krónan fagnar tutt­ugu ára afmæli síðar á þessu ári. Versl­unum hennar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var í fyrsta skipti lokað vegna veð­urs í vetur.

Gréta segir það alls ekki vera óeðli­legt að fólk hafi þyrpst í búðir dag­inn á undan storm­inum. Það hafi í raun verið mjög jákvætt. „Við eigum að hlusta á þau til­mæli sem gefin eru og taka þau alvar­lega.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár