Eldingar í kortunum í kjölfar ofsaveðurs

Vind­hraði fór yfir 70 metra á sek­úndu í hviðum í morgun. Ofsa­veðrið er nú gengið niður en Veð­ur­stofan varar við eld­inga­veðri í fram­hald­inu.

Myndin sýnir vindhraða á landinu um klukkan 9 í morgun.
Myndin sýnir vind­hraða á land­inu um klukkan 9 í morgun. Mynd: Skjáskot Veðurstofa Íslands

Rauð við­vörun: Víðtækar lok­anir á vegum. Rafmagns- og vatns­leysi og íbúar beðnir að spara raf­magn. Mann­lausar götur, skóla­haldi aflýst og tómar hillur versl­ana. Ofsa­veðrið sem hóf að ganga yfir landið snemma í morgun, þar sem vind­hraði fór í miklar hæðir og úrkoma sömu­leiðis, hefur haft marg­vís­legar afleið­ingar. Engin alvar­leg slys hafa þó orðið á fólki en ein­hverjir veg­far­endur þurftu að leita skjóls í fjölda­hjálp­ar­mið­stöð á Vík.

Vind­hraði mæld­ist 71 metri á sek­úndu í hviðu við Hafn­ar­fjall um klukkan 10 í morgun. Það er með því mesta sem mælst hefur hér á landi. Mjög hvasst var í Vest­manna­eyjum og fór með­al­vindur upp í 45 m/s og í 58 m/s í hviðum.

En það var ekki aðeins vind­ur­inn sem var óvenju­legur heldur líka úrkoman. Samkvæmt óyf­ir­förnum frum­nið­ur­stöðum mæla Veð­ur­stof­unnar var úrkoman mest í Vest­manna­eyjum, 68,7 mm. Mikill munur var á hæsta og lægsta hita á land­inu í morgun. 6,6°C voru undir Hafn­ar­fjalli á sama tíma og tæp­lega tutt­ugu stiga frost mæld­ist í Köldu­kinn.

Veð­ur­stofan, almanna­varnir, Vega­gerðin og lög­reglu­emb­ætti höfðu ítrekað varað við veðr­inu og svo virð­ist sem almenn­ingur hafi hlustað á þau varna­ar­orð. Veð­ur­spáin gekk eftir og rauð við­vörun var í gildi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Suð­ur­landi, Suð­aust­ur­landi og í Faxaflóa. Þetta er í annað sinn frá því að lita­kerfið var tekið upp sem Veð­ur­stofan gefur út rauða við­vörun. Það gerð­ist í fyrsta sinn í óveðr­inu í des­em­ber.

Til frek­ari glöggv­unar eru hér nokkrar skil­grein­ingar Veð­ur­stof­unnar:

Rauð við­vörun: Miklar líkur eru á veðri sem hefur mjög mikil sam­fé­lags­leg áhrif, eða slíkt veður er yfir­stand­andi. Ein­stak­lega áköfum og hættu­legum veð­ur­skil­yrðum er spáð. Búast má við miklum skemmdum og líkur á slysum eru miklar, ógn við líf og limi. Viðbúið er að sam­göngur legg­ist með öllu af og aðgengi að innviðum/þjón­ustu verði skert.

Á Suð­ur­landi var í morgun varað við ofsa­veðri og „jafn­vel fár­viðri“. En hver er mun­ur­inn á þessu tvennu?

Ofsa­veður: Ofsa­veður er skil­grein­ing á vind­hraða líkt og fram kemur í grein Trausta Jóns­sonar veð­ur­fræð­ings. Ofsa­veður er það kallað þegar vind­hrað­inn nær 28,5-32,6 m/​​​s. Við svo mik­inn vind­hraða eru áhrifin þau að miklar skemmdir verða á mann­virkjum og úti­vera á ber­svæðum verður hættu­leg. Vindur­inn rýfur hjarn og lyftir möl og grjóti.

Fárviðri: Í fár­viðri fer með­al­hraði vind­hviða yfir 32,7 metra á sek­úndu. Allt laus­legt fýkur, þar á meðal möl og jafn­vel stórir steinar, segir á vef Veð­ur­stofu Íslands. „Kyrr­stæðir bílar geta oltið eða fokið. Heil þök tekur af húsum. Skyggni oft­ast tak­markað, jafn­vel í þurru veðri.“

Afleið­ingar veð­urs­ins hafa í stórum dráttum verið eft­ir­far­andi:

Snjóflóð féll á veg­inn við Laufás rétt fyrir hádegið og er veg­ur­inn lok­aður. Hætta getur verið á fleiri flóðum á Greni­vík­ur­vegi og eru íbúar beðnir að vera ekki á ferð­inni. Ekki verður átt við mokstur fyrr en veðri slotar og talið er öruggt, segir í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á Norð­ur­landi.

Töluvert hefur verið um raf­magns­trufl­anir. Landsnet er með stöðuga vöktun á flutn­ings­kerfi sínu og greinir jafn­óðum frá bil­unum og við­gerðum á sam­fé­lags­miðlum. Rarik gefur einnig út sam­an­tekt á trufl­unum í dreifi­kerfi sínu reglu­lega og klukkan 11 í morgun var staðan eft­ir­far­andi:

Vest­ur­land: Norð­ur­hluti Hval­fjarðar og Svína­dalur raf­magns­laus. Mikil selta er á svæð­inu.

Suð­ur­land: Trufl­anir á tólf stöðum. Raf­magns­laust á bæjum undir Eyja­fjöllum og í Vík og í Mýrdal. Rafmagn skammtað í Vík og íbúar beðnir um að fara spar­lega með það. Raf­magns­laust í upp­sveitum Árnes­sýslu og við Þing­valla­vatn frá Miðfelli að Mjóanesi. Þá er raf­magns­laust í Holtum, Land­sveit og upp með Heklu­bæjum. Einnig er raf­magns­laust í Land­eyjum og 27 staurar brotnir. Línan milli Kirkju­bæj­ar­klaust­urs og Víkur er úti og þar með er raf­magns­laust í Álfta­veri, Með­al­landi og hluta Skaft­ár­tungna.

Aðstæður á Suð­ur­landi voru farnar að skána fyrir klukkan ell­efu í morgun og vinnu­flokkar voru farnir af stað í Árnes­sýslu. „Þessu til við­bótar er eld­inga­veður að koma yfir landið og það getur bæði valdið trufl­unum, en einnig getur þetta tafið fyrir trufl­ana­leit og við­gerðum.“

Aust­ur­land: Sveit­ar­fé­lagið Horna­fjörður raf­magns­laust, þ.m.t. Höfn, vegna trufl­unar í flutn­ings­kerf­inu. Einnig er bilun í dreifi­kerf­inu. Eldingar hafa verið á svæð­inu.

Heita­vatns­laust varð í Rangár­þingi, þar með talið Hellu og á Hvols­velli og í Ása­hreppi vegna raf­magns­leysis hjá Rarik.

Þjóð­vegir frá höf­uð­borg­inni voru allir lok­aðir um tíma í morgun en hafa svo verið opn­aðir fyrir umferð einn af öðrum.

Björg­un­ar­sveitir og lög­regla hafa sinnt fjöl­mörgum verk­efnum í morgun. Í Vest­manna­eyjum, þar sem vind­hraði fór mest upp í 44 m/s, bár­ust við­bragðs­að­ilum 25 til­kynn­ingar, m.a. vegna foktjóns. Þá sökk bátur í höfn­inni.

Þá flæddi sjór á land í Reykja­nesbæ og Garði eins og sjá má á mynd­skeiði Vík­ur­frétta hér að neðan.

Þó að veðrið hafi gengið nokkuð niður víð­ast hvar ber enn að hafa gætur á veð­ur­spám. Sú nýjasta er þessi:

Snýst í sunnan hvass­viðri með deg­inum, fyrst syðst, en áfram rok og ofan­koma um landið norð­an­vert fram á kvöld. Lægir tals­vert á land­inu í kvöld og nótt og styttir upp.

Gengur í austan og norð­austan 13-20 m/s á morgun, en 20-25 um tíma syðst á land­inu. Rigning eða slydda um landið sunnan- og aust­an­vert, en snjó­koma á Vest­fjörðum. Þurrt á Norður- og Vest­ur­landi framan af degi, en dálítil úrkoma þar seinni­part­inn. Hiti 0 til 7 stig, hlýj­ast syðst.

Fjöldi eld­inga hafa mælst handan skil­anna og á Suð­aust­ur­landi eru líkur á að það verði vart við eld­ingar þegar að skilin ganga yfir. Veð­ur­stofan varar einnig við eld­inga­veðri á Suð­ur­landi í dag og á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár