Besta platan með The Cure – Disintegration

Gefin út af Fiction Records þann 2. maí 1989, ýmist 10 lög á 59 mín­útum og 59 sek­úndum eða 12 lög á 71 mín­útu og 47 sek­úndum.

Hug­myndin um bestu plöt­una hverju sinni bygg­ist ein­göngu á skoðun minni og þekk­ingu. Skoðunin er oft­ast mjög sterk en þekk­ingin getur verið alla­vega. Þannig hika ég ekki við að til­nefna bestu plöt­una og þá skiptir engu hvort ég þekki allar útgáfur við­kom­andi mjög vel eða bara þessa einu – já eða eitt­hvað þar á milli.

Ég er þess vegna alltaf til í rök­ræður og upp­fræðslu frá les­endum sem annað hvort vita betur eða telja sig vita betur. Aðal­málið er að hlusta á og ræða hljóm­plötur sem heild, bestu plöt­una í hvert skipti.

Hljóm­sveitin The Cure var stofnuð árið 1976 í West Sussex á Englandi. The Cure hefur gefið út 13 breið­skífur á ferl­inum:

Three Imagin­ary Boys (1979)

Seventeen Seconds (1980)

Faith (1981)

Porn­ography (1982)

The Top (1984)

The Head on the Door (1985)

Kiss Me, Kiss Me, Kiss Me (1987)

Disintegration (1989)

Wish (1992)

Wild Mood Swings (1996)

Bloodflowers (2000)

The Cure (2004)

4:13 Dream (2008)

Ég held að engum dylj­ist að The Cure er hljóm­sveitin hans Robert Smith og í ströng­ustu skil­grein­ingu má rekja sveit­ina aftur til árs­ins 1973. Þá var hann 14 ára gam­all og næstu árin flaut hann um í ein­hverju hljóm­sveit­ar­sam­hengi í slag­togi við aðra.

Hann var hvorki for­söngv­ari eða eini laga­smið­ur­inn í hópnum og ekk­ert sem benti sér­stak­lega til þess að hann yrði sá sem hann síðar varð. Smátt og smátt færð­ist hans þáttur þó í auk­ana og eftir að bandið hafði breytt nafn­inu úr Easy Cure í The Cure var ljóst í hvað stefndi. Fyrsta platan kom út 1979 og vakti mikla athygli, hann nýorð­inn tví­tugur og fram­tíðin björt eins og sagan hefur síðan sannað. Við komum hins­vegar til leiks um tíu árum síðar, árum sem þeir not­uðu til þess að gefa út heilar 7 breið­skífur, hvorki meira né minna. Eitísið er næstum því liðið og bandið orðið eitt af þeim allra stærstu í heim­inum. Smith er 29 ára og í til­vist­ar­kreppu.

Ólöglegur dráttarvélarökumaður

Ég heyrði Disintegration fyrst árið 1992. Ég var 14 ára gam­all og í sveit allt sum­arið. Ég var þarna byrj­aður að hlusta á alls­konar tón­list, mest­megnis þunga. Þetta sumar var keyptur Zetor á bæinn, drátt­ar­vél með yfir­byggðu húsi. Fram að því höfðum við setið í kuld­anum og hávað­anum á tveimur opnum Massey Ferguson-vélum en nú gat maður unnið í ylnum og jafn­vel heyrn­ar­hlífa­laus því húsið var þónokkuð þétt. Og aðal­lúx­us­inn, maður minn, var snældu­tæki.

Ég fór sér­ferð í kaup­stað­inn til þess að kaupa óáteknar snældur og valdi síðan úr vín­yl­plöturekk­anum þær plötur sem ég vildi hafa með mér út í vinnu­dag­inn. Europe, Metallica, Bon Jovi, Nirvana, Sepultura. Þessa teg­und tón­list­ar­innar færði ég af mínum eigin plötum yfir á bandið því ég hafði vit­an­lega mætt í sveit­ina með ágætis vín­yl­stafla. En frændsystk­ini mín áttu líka plötur, þau voru örlítið eldri en ég og höfðu dottið ofan í eití­spott­inn. Duran Duran. Limahl. Aha. Og sirka hillu­metri í við­bót.

Ég próf­aði að setja þetta allt saman á fón­inn og fann fljótt fjöl­ina mína. Tyggjópoppið átti illa við mig en það sem þau vildu kalla nýbylgju var mitt stöff. Pixies. The Smiths. Og The Cure. Ég man vel að ég átti þrjár nákvæm­lega eins TDK-kassettur, og á hverja þeirra setti ég eina plötu með hverju bandi. Og á einni þeirra var Disintegration. Hún komst ekki alveg öll fyrir heldur klippt­ist af einu lagi enda spólan bara 60 mín­útur. Vín­yll­inn er næstum nákvæm­lega klukku­tími og ónýttur spotti á A-hlið­inni varð mér að falli. Mér þykir gaman að nefna það sér­stak­lega að þetta til­tekna vín­ylein­tak er í minni vörslu í dag, merkt fanga­marki frænku minnar innan í umslagið.+

Ég man eftir að hafa tekið auka­hringi á tún­inu til þess að geta hlustað lengur á tón­list þegar vinnu­deg­inum var að ljúka. Pixies og The Smiths, þar voru aðgengi­legir smellir sem ég gat fljótt sungið með. Djöfull var gaman. En þetta. Mér leið öðru­vísi þegar ég hlust­aði á Disintegration. Síð­sum­ars­kvöld í íslenskri nátt­úru, ég, hund­ur­inn og drátt­ar­vélin á leið­inni heim eftir að hafa gefið hest­unum. Og þetta var hljóð­myndin. Ég man eftir handol­íu­gjöf­inni, hvernig ég horfði niður á fram­hjólin í gegnum gler­búrið og sá þau dúa á vökva­tjökk­unum, hvernig ég sá sól­ina hverfa bak­við fjöllin, hvernig ég klór­aði Kátu bak­við eyrun og naut þess að vera 14 ára að upp­götva tón­list­ina og sjálfan mig.

30 ára ellismellur

Smith hafði fundið það út að öll meist­ara­verk tón­list­ar­sög­unnar hefðu verið samin af lista­fólki áður en það náði þrí­tugu. Það féll honum þungt. Á 29 ára afmæl­is­dag­inn sinn hóf hann að semja tón­list af miklum móð, end­ur­nýj­aði kynni sín við ofskynj­un­ar­lyf og got­nesku áhrifin sem höfðu verið ráð­andi hjá The Cure á fyrir hluta ára­tug­ar­ins.

Síðan hafði harka­lega sígið á popp­hlið­ina, bæði vegna þess að tíð­ar­and­inn kall­aði á það en einnig vegna áhrifa frá öðrum stofn­með­limi, Lol Tolhurst, sem var upp­haf­lega trymb­ill en þarna hljóm­borðs­leik­ari og hallur undir auð­melt­an­legri tón­list. Nákvæm­lega á þessum tíma og þá sér­stak­lega á tón­leika­ferða­lagi fyrir plöt­una sem á undan fór hafði Tolhurst misst alla stjórn á áfeng­is­neysl­unni og að lokum settu aðrir með­limir bands­ins það í hendur Smith að reka mann­inn sem féll honum þungt. Það gerð­ist þó ekki fyrr en við upp­tökur Disintegration en þá hafði Tolhurst verið svo gott sem óstarf­hæfur og fram­lag hans í lág­marki.

Smith samdi óhemju magn af tón­list án þess svo mikið að nefna það við aðra með­limi og vissi ekk­ert hvernig þeir myndu taka í fram­takið og var með það sem varaplan að gefa út sóló­plötu. Þessi þung­lyndi tónn var alls­ráð­andi og seinna hefur hann sagt að ástæðan fyrir því hafi verið ein­föld. Hann var að verða þrí­tugur og það féll honum svona óskap­lega þungt. Þrátt fyrir að hann segi gjarnan frá þessu á gam­an­saman hátt í seinni tíð má öllum vera ljóst að þung­lyndi hefur farið illa með Smith í gegnum tíð­ina.

Allt bandið tók fram­tak­inu opnum örmum og sagan segir að til séu 32 lög á demó­upp­tökum sem hafi síðan verið skorin niður í 12. Allir segj­ast þeir hafa vitað frá upp­hafi að platan yrði meist­ara­verk en þrátt fyrir háværar raddir þess efnis að Smith hafi samið alla tón­list­ina einn hefur hann þver­tekið fyrir það. Hans er þó ríkið, mátt­ur­inn og dýrðin og hin með­vit­aða ákvörðun um að búa til drunga­lega og grá­svarta þung­lyndis­plötu þvert á allar vænt­ingar hins popp­þyrsta mark­aðar sem beið eftir ein­hverju svip­uðu og hafði ein­kennt plöt­una á undan.

Lögin sem byrja aldrei

Ég ætla ekki að sann­reyna þessa full­yrð­ingu áður en ég set hana hér fram: Öll lögin á Disintegration fá að hljóma í að minnsta kosti 2 mín­útur áður en Robert Smith byrjar að syngja. Ókei, kannski ekki Lovesong sem er næstum því aug­ljós­lega samið sem smá­skífukandídat.

Og senni­lega eru fleiri und­an­tekn­ingar. En þetta er gegn­um­gang­andi þema, þessi ótrú­lega þol­in­mæði og traust á tón­smíð­unum. Allt er löðr­andi í gít­ar­effektum og hljóm­borðin spila ofboðs­lega rullu, ekki síst fyrir til­stilli Roger O’Donnell sem gerður var að full­gildum með­limi eftir að Tolhurst var lát­inn fara. O’Donnell þessi á svo vit­an­lega stóra Íslands­teng­ingu og spilar meðal ann­ars gesta­hljóm­borð á Lof mér að falla að þínu eyra með Maus.

Platan sló vit­an­lega í gegn og varð þeirra stærsta þegar upp var staðið. Disintegration hefur selst í meira en þremur millj­ónum ein­taka og um hana flýtur ljómi sem erfitt er að skil­greina. Hún er óskilj­an­leg. Hún er löng. Hún er súpa af hljóðum og ang­ur­værð. Sorg, slen, yfir­læti, sjálfseyð­ing. Tilgerð jafn­vel. En hún er meist­ara­verk. Hún fangar mann og heldur svo bara. Klukku­tími og korter og svo máttu anda aftur. Nema að þú sért að hlusta á vín­yl­út­gáf­una. Þar eru tveimur lögum sleppt og við fáum að anda rétt á meðan við snúum plöt­unni við. Mér finnst hún betri á vínyl. Eða kannski bara auð­veld­ari. Besta lagið er Fascination Street þótt ekki væri nema bara fyrir hið ótrú­lega bassa­sánd sem Simon Gallup ber ábyrgð á.

Pictures of You er svo mögu­lega fal­leg­asti texti sem sam­inn hefur verið. Hann hefst svona:

I've been looking so long at these pictures of you

That I almost beli­eve that they're real

I've been liv­ing so long with my pictures of you

That I almost beli­eve that the pictures

are all I can feel

Og þessi rödd sem maður trúir bara og grætur með.

60 ára unglingur

Smith er nákvæm­lega tvö­falt eldri nú þegar þetta er skrifað, sex­tugur síðan í apríl og virð­ist vera sátt­ari við lífið og menn. Það er áhuga­vert að velta því fyrir sér að á þeim 30 árum sem liðið hafa frá útgáfu Disintegration hefur The Cure aðeins gefið út 5 plötur. Átta á fyrstu tíu árunum og bara fimm síðan. Og eins óhuggu­lega og það hljómar er lík­legt að Smith hafi haft rétt fyrir sér því við höfum ekki fengið meist­ara­verk síðan. Ég hef þó hlustað á flestar plöt­urnar sem á eftir komu og var til að mynda mjög ánægður með Bloodflowers sem kom út árið 2000.

Hann hefur aldrei orðið sér til skammar tón­list­ar­lega en ég býst nú ekki við að hann skáki meist­ara­verki sínu héðan af. The Cure hefur þó senni­lega aldrei verið stærri í dag. Þeir gera eins og þeir nenna og fylla leik­vanga ef þeir hafa fyrir því að ræsa vél­ina. Eitthvað sem Robert Smith sagði að hefði einmitt verið það sem hann hefði reynt að koma í veg fyrir. Þetta hefði ekki átt að verða svona stórt. Hann vildi víst bara vera venju­legur og þung­lyndur í friði. Ojæja. Ég ætla að leyfa mér að full­yrða að hann hafi ekki verið mjög harður í afstöðu sinni gegn frægð­inni enda þótt þessi 75 mín­útna þol­raun hafi kannski ekki verið aug­ljós upp­skrift að frama.

Í dag rata mörg lög af plöt­unni á tón­leika­prógramið og engin önnur plata sem þeir sinna betur. Facination Street, Lullaby og Pictures of You hljóma næstum alltaf og nokkur til við­bótar mjög oft. Það er eitt­hvað stór­kost­legt við þá stað­reynd að þetta þung­lyndis­verk fái meiri tíma á tón­leikum en allir poppsmell­irnir. The Cure í hnot­skurn.

Ég hvet ykkur öll til að hlusta á þetta meist­ara­verk í heild. Hér er mín skoðun en ég skal glaður rök­ræða hana: Disintegration er besta platan með The Cure.

Laga­listi:

01 – Plain­song

02 – Pictures of You

03 – Closedown

04 – Lovesong

05 – Last Dance

06 – Lullaby

07 – Fascination Street

08 – Prayers for Rain

09 – The Same Deep Water as You

10 – Disintegration

11 – Homesick

12 – Untitled

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár