Besta platan með Portishead – Dummy

Gefin út af Go! Beat þann 22. ágúst 1994, ýmist 10 lög á 44 mín­útum og 29 sek­úndum eða 11 lög á 49 mín­útum og 17 sek­úndum.

Hug­myndin um bestu plöt­una hverju sinni bygg­ist ein­göngu á skoðun minni og þekk­ingu. Skoðunin er oft­ast mjög sterk en þekk­ingin getur verið alla­vega. Þannig hika ég ekki við að til­nefna bestu plöt­una og þá skiptir engu hvort ég þekki allar útgáfur við­kom­andi mjög vel eða bara þessa einu – já eða eitt­hvað þar á milli.

Ég er þess vegna alltaf til í rök­ræður og upp­fræðslu frá les­endum sem annað hvort vita betur eða telja sig vita betur. Aðal­málið er að hlusta á og ræða hljóm­plötur sem heild, bestu plöt­una í hvert skipti.

Hljóm­sveitin Portis­head var stofnuð árið 1991 í Bristol-sýslu á Englandi. Portis­head hefur gefið út 3 breið­skífur á ferl­inum:

Dummy (1994)

Portis­head (1997)

Third (2008)

Portis­head hefur aldrei full­kom­lega skil­greint með­limi hljóm­sveit­ar­innar en í dag­legu tali eru þau yfir­leitt nefnd þrjú til sög­unnar, Geoff Barrow sem raf­tón­list­ar­gúru, Beth Gibbons sem söng­kona og Adrian Utley sem gít­ar­leik­ari. Þetta er ekki alveg svona ein­falt eins og kemur í ljós síðar. En byrjum á þeirri stað­reynd að þegar bandið var stofnað var Barrow 19 ára, Gibbons 26 ára og Utley 34 ára. Í dag eru þau því 47, 54 og 62 ára.

Rokkarinn sem féll

Ég var rokk­hundur og þoldi ekki hip hop. Það var vissu­lega ansi skil­yrt því á þessum tíma varstu á öðrum hvorum vagn­inum. Og ég var á rokkvagn­inum. Eða við skulum frekar segja að ég hafi verið á hljóð­færa­vagn­inum. Mjög lengi framan af var ég hald­inn þeirri rang­hug­mynd að tón­list þyrfti að vera flutt af mann­eskjum sem spil­uðu á hljóð­færi og/eða sungu. Tölvur og tón­list voru ekki í sama meng­inu. Þegar ég reyni að greina þetta svona eftir á held ég að í þessu hafi falist að tón­list­ar­flutn­ingi skyldi alltaf fylgja mögu­leik­inn á að mis­takast verkið, eða í það minnsta að fram­kvæmdin væri mis­jöfn.

Tón­list­ar­flutn­ingur átti að lit­ast af spenn­unni sem mynd­að­ist í hvert skipti, óviss­unni um hvernig allt yrði. Hvers vegna ætti ég að mæta á tón­leika hjá ein­hverjum sem ýtir bara á takka til að setja það í gang sem hljóm­aði nákvæm­lega eins í gær og fyrra­dag? Þá get ég alveg eins setið heima og hlustað á plöt­una. Ég er auð­vitað fall­inn frá þessu í dag. Í það minnsta 98%. Ég á ennþá erfitt með að hlusta á tón­list­ar­fólk sem ýtir bara á play, bætir engu við það sem á upp­tök­unni er og kallar það lif­andi flutn­ing. Auðvitað eru tölvur ekki verri hljóð­færi en önnur, skárra væri það nú, en svona var ég og það langt inn á tíunda ára­tug síð­ustu aldar, átti mjög erfitt með allar rappplötur ver­aldar og lét elektróníska lista­menn fara mjög í taug­arnar á mér. Ég var í hinu lið­inu!

Það eru fleiri plötur en Dummy sem áttu þátt í að snúa mér frá þess­ari villu en hún vó lík­lega þyngst. Þetta var nefni­lega allt svo skrýtið. Þetta hljóm­aði eins og lif­andi trommu­leikur. En samt eins og ein­hvers konar for­ritun. Og ofan á það alls­konar trommu­heila­hljóð sem samt voru ekki alveg á eðli­legum stöðum og hljóm­uðu oft und­ar­lega. Jú, fullt af gítar, það hjálp­aði til. En hann var stundum mjög nið­ur­klipptur og raf­rænn og tölvu­lykt af öllu saman. Sem sagt, frá­bær hljóð­færa­leikur um allt en samt hljóm­aði allt pínu eins og hip hop. Afar rólegt hip hop. Og til við­bótar þessi ótrú­legi söngur sem hljómar eins og ekk­ert annað, full­kom­inn en samt svo gall­aður. Já, að því er virð­ist yfir­nátt­úru­legur á köflum. Hvað var þetta? Hvernig gerir maður svona?

Afslöppuð ríðitónlist

Enda þótt stefnan sem Portis­head er kennd við – stefnan sem hóf sig til flugs frá Bristol á þessum tíma með þess­bæjar lista­fólki á borð við Massive Attack, Tricky og auð­vitað Portis­head og kölluð er trip hop – sé í hugum fólks yfir­leitt afslöppuð ríði­tón­list hafa með­limir Portis­head margoft lýst því hvernig þeir sjá hana sem mun agressí­vari tón­list en svo. Já, þeir segi ég, því Gibbons hefur jú aðeins veitt örfá við­töl á ferl­inum sem eykur enn á hið mistíska við­mót hennar og per­sónu. Hvort þessi franska upp­lifun varð til þess að fæla hana frá slíku skal ekki full­yrt, en það er þó ekki ólík­legt:

En sem sagt. Svo virð­ist vera að Barrow og Utley sjái Portis­head sem meira hávaða­band en við hin viljum meina. Barrow hefur oftar en ekki nefnt Nirvana til útskýr­ingar, ekki að hann sjái þessar tvær sveitir sem svip­aðar heldur öllu heldur að Nirvana hafi verið band sem hik­aði ekki við að fara frá lægstu lægðum og upp í hæstu hæðir, frá vöggu­vísum í algert brjál­æði. Og þegar maður hugsar þetta svona er kannski eitt­hvað til þessu því vissu­lega ger­ist svo­leiðis reglu­lega hjá Portis­head. En beri maður saman Glory Box og Smells Like Teen Spirit fellur kenn­ingin vit­an­lega um sig sjálfa.

Maður skyldi víst aldrei skil­greina list sína sjálfur.

Trip hop í boði Thatcher

Dummy er fyrsta plata Portis­head og varð til sam­hliða band­inu. Geoff Barrow og Beth Gibbons höfðu hist á fundi fyrir atvinnu­lausa frum­kvöðla í boði Margaret Thatcher og hafið sam­starf um leið. Barrow var þá strax orð­inn upp­gjafa rokk­ari sem hafði fiktað hell­ing í tækjum og tólum, orð­inn fær sampl­ari og ágætis hljóð­færa­leik­ari. Gibbons átti hand­fylli af lögum sem sum hver end­uðu einmitt á Dummy og hafði skýra stefnu í þá átt að vilja vinna fyrir sér sem tón­listar- og söng­kona.

Eftir fikt og til­raunir réð­ust þau í að setja saman fyrsta lagið, It Could Be Sweet og ein­hvers staðar í ferl­inu skildu þau dyrnar eftir opnar fram á gang. Í öðru her­bergi hljóð­vers­ins hafði hinn starfs­leiði leigugít­ar­leik­ari Adrian Utley nýlokið við að taka upp ein­hvern skyldu­djass og heyrði lagið óma. Hann sveif á Barrow án fyr­ir­vara og með þeim tókst vin­skapur sem stendur enn í dag. Utley vildi vita allt um staf­ræna hljóð­vinnslu og á móti kynnti hann Barrow fyrir allra­handa furðu­hljóð­færum á borð við þeremín og cimbalom sem svo aftur lita umrædda plötu gríð­ar­lega sterkum litum.

Þannig má glöggt sjá að Barrow er ekki bara for­rit­ari heldur allra handa snill­ingur, Gibbons er ekki aðeins söng­kona heldur ofboðs­legur laga­smiður og Utley er ekki bara gít­ar­leik­ari heldur glúr­inn pæl­ari og fyr­ir­taks útsetj­ari. Í þessu sam­hengi varð platan til í subbu­legum hljóð­verum og æfinga­hús­næðum. Meðlimir segj­ast helst muna eftir slæmum skyndi­bita og gríð­ar­lega óhóf­legum sígar­ett­ureyk­ingum.

Á þessu stigi máls­ins er fjöldi með­lima álita­mál. Þegar litið er á upp­lýs­ing­arnar á innra umslagi plöt­unnar er nokkuð ljóst að Utley hefur ekki talist full­gildur með­limur heldur eru það þau tvö hin sem eru í for­grunni. Sumar raddir segja að Utley hafi verið gerður full­gildur með­limur stuttu eftir útgáf­una en aðrar segja að það hafi aldrei verið rætt. Svona var þetta bara á þessum tíma­punkti og svo þró­að­ist þetta þangað sem við erum í dag. Á þessu stigi máls­ins er líka álita­mál hvort Portis­head hafi verið hljóm­sveit eða eitt­hvað annað. Eitt af því fyrsta sem þau tóku sér fyrir hendur var til að mynda stutt­mynda­gerð og úr varð strop­virkið To Kill a Dead Man.

Barrow er ekki ánægður með þetta und­ar­lega verk þegar hann hugsar til baka og seg­ist helst halda að þau hafi búið mynd­ina til í þeim til­gangi að skreyta hana með tón­list. Í öllu falli er hin áleitna for­síðu­mynd Dummy fengin úr mynd­inni, mynd af Gibbons í hlut­verki sínu.

Yfir vínyl á hjólabretti

Við upp­tökur plöt­unnar brutu þau allar reglur sem þekkj­ast við hljóð­upp­tökur. Stærsta lúða­pæl­ingin sneri nú senni­lega að trommu­upp­tök­unum. Þannig var hinn ofur­mann­legi trymb­ill Clive Dreamer lát­inn spila trommutakta inn á 16 rása teip sem þaðan voru gróf­mixaðir og press­aðir á vín­yl­plötur. Þessar plötur voru síðan dregnar eftir gólf­inu og ein­hver seg­ist muna eftir því að hafa rennt sér yfir þær á hjóla­bretti.

Eftir það var vín­yll­inn spil­aður á plötu­spil­ara og þá oftar en ekki í gegnum lélegan æfingagít­armagn­ara, með rispum, braki, suði og öllu saman og þaðan aftur inn á teip. Eftir það voru trommutakt­arnir klipptir niður og sampl­aðir og síðan púslað saman í það sem við heyrum á plöt­unni í dag.

Gæti þarna verið komin skýr­ingin á því hvernig ég, mað­ur­inn á rokkvagn­inum, gat fellt mig við það sem þó var í meg­in­at­riðum raf­tón­list? Vissu­lega allt saman á end­anum unnið í tölvu, nið­ur­klippt og lúppað, en verður þó ekki meira alvöru og lif­andi en þetta. Svipaða sögu má segja um aðra hljóð­vinnslu á plöt­unni. Hún er vís­vit­andi látin hljóma „illa“ til þess að hljóma áhuga­verð. Rödd Gibbons er gott dæmi. Þessari engla­rödd er í eft­ir­vinnslu ýtt upp að eyr­anu á hlust­and­anum, svo óskap­lega að heyra má smjatt og más, jafn­vel nasa­blástur í smá­at­riðum.

Verðlaun eru fyrir aumingja

Dummy sló í gegn um leið og hún kom út. Allir virt­ust sam­mála um að hún væri ein mik­il­væg­asta plata sam­tím­ans og það ferskarsta sem heyrst hafði lengi. Hún fór hátt á vin­sæld­ar­lista bæði í Evrópu og Banda­ríkj­unum og allt virt­ist ger­ast af sjálfu sér. Á eftir fylgdu tón­leikar, þó ekki í neinum stór­kost­legum mæli og reyndar hefur Portis­head ekki spilað nema rúm­lega 200 tón­leika á öllum ferl­inum. Til sam­an­burðar spil­aði Oasis á 241 tón­leikum árin 1994 og 1995. 1995 vann sveitin hin stór­merki­legu Mercury-verð­laun sem veitt eru fyrir bestu plötu sem gefin er út ár hvert á Bret­landseyjum.

Barrow lét hafa eftir sér að verð­launin væru skrípa­leikur líkt og öll önnur keppni í tón­list. Vissu­lega ekki ótrú­leg ummæli frá hroka­fullum tví­tugum manni sem nýlega hefur slegið í gegn en þar virð­ist hann þó hafa verið heill í skoðun sinni. Og þau senni­lega öll því bandið hefur sama og ekk­ert gert bein­línis til að við­halda vin­sældum sínum í gegnum tíð­ina. Bestu lögin á Dummy eru Myster­ons, Roads og Glory Box. Og Sour Times. Og Numb. Og Wandering Stars. Jahérna, þessi plata er ótrú­leg. Já og It’s a Fire, lagið sem er bara á sumum útgáfum plöt­unnar, til að mynda ekki á vín­yl­út­gáf­unni minni. Í dag tog­ast salan á plöt­unni í átt að 4 millj­ónum og hún mallar alltaf ár frá ári.

Thatcher = Tinder

Árið 1997 kom önnur platan út og var sam­nefnd hljóm­sveit­inni. Hún er frá­bær en á und­ar­legan hátt er lítið meira um það að segja. Ég man eftir að hafa keypt hana þegar hún kom út, fund­ist hún afskap­lega fín og síðan sett diskinn upp í hillu við hlið­ina á Dummy og senni­lega 10 smá­skífum sem ég hafði safnað af henni.

Í stór­kost­legum róleg­heitum varð ein plata til í við­bót, Third sem kom út 11 árum síðar, árið 2008. Sú plata er líka frá­bær og gaman að heyra hvernig bandið hafði þroskast, þarna hljóm­aði margt sem ég hafði ekki áður heyrt. Þessar tvær síð­ari fara stundum á fón­inn hjá mér sem og tón­leika­platan Roseland NYC Live sem reyndar ratar oftar í sjón­varpið. Beth Gibbons að spila á raf­magns­gítar og syngja, það er eitt­hvað rosa­legt við það. Ég varð ást­fang­inn fyrir 10 árum af kon­unni minni meðan við horfðum, kon­unni sem ég á tvö börn með og ætla að gift­ast á næsta ári. Og hún af mér. Takk Thatcher.

Ég hvet ykkur öll til að hlusta á þetta meist­ara­verk í heild. Hér er mín skoðun en ég skal glaður rök­ræða hana: Dummy er besta platan með Portis­head.

Laga­listi:

01 – Myster­ons

02 – Sour Times

03 – Strangers

04 – It Could Be Sweet

05 – Wandering Star

06 – It's a Fire

07 – Numb

08 – Roads

09 – Pedestal

10 – Biscuit

11 – Glory Box

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár